Fréttablaðið - 08.08.2011, Blaðsíða 14
8. ágúst 2011 MÁNUDAGUR14
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Okkar innilegustu þakkir viljum við
færa öllum þeim fjölmörgu sem stóðu
þétt við bakið á okkur og gáfu okkur
styrk og stuðning við hræðilegt fráfall
okkar elskuðu,
Bergþóru Bachmann
Basel, Swiss, áður Grundarhúsum 30,
Reykjavík.
Fjölskylda, vinir og vinnufélagar, hjálp ykkar hefur
verið okkur ómetanleg, að ógleymdum öllum þeim sem
hafa rétt okkur hjálparhönd við að koma Tecklu aftur
til Íslands.
Eyrún Þóra Baldursdóttir Bachmann
Ingi Steinn Bachmann
Guðríður Jónsdóttir Bachmann
Ástrós Jónsdóttir Bachmann
Sóley Rut Jónsdóttir Bachmann
MOSAIK
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Birgir Þorgilsson
fv. ferðamálastjóri,
andaðist 4. ágúst. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Ragnheiður S. Gröndal
Hrefna Birgisdóttir
Brynja Birgisdóttir Jan Helsinghoff
Sigrún Birgisdótir Guðjón Gunnar Ögmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæri eiginmaður minn og vinur,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Þór Ólafsson
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
aðfaranótt 5. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni mánudaginn 15. ágúst kl. 13.00.
Sigríður Haraldsdóttir
Birgir Þór Gunnarsson Ásta Karen Rafnsdóttir
Gerða Gunnarsdóttir Guðmundur Arnar Jónsson
Lára Guðrún Gunnarsdóttir
Gunnar Þór, Íris Ósk, Tara Sif, Arna Rán, Jón Gunnar
og langafabörn.
Við sendum alúðarþakkir öllum þeim
sem heiðruðu minningu ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Jóhönnu G.
Guðbrandsdóttur
og sýndu okkur samúð, hlýhug og vinarþel við andlát
hennar og útför. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar fyrir kærleika og
frábæra umönnun síðustu æviár hennar.
Sigurður Þorkelsson
Þorkell Sigurðsson Sigríður Ólafsdóttir
Guðbrandur Sigurðsson Ásdís Þórbjarnardóttir
Árni Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Jason Ólafsson
Hæðargarði 35, Reykjavík,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 31. júlí, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag, mánudag 8. ágúst,
og hefst athöfnin kl. 13.00.
Inga Sigríður Ingólfsdóttir
Björg Jónsdóttir Gestur Pálsson
Hjördís Jóndóttir Jörgen Moestrup
Ásta Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
60
„Ég tala um að tilheyra Kirkju Jesú
Krists hinna síðari daga heilögu.
Stundum kalla ég mig mormóna. Það
fer kannski eftir því hvernig liggur á
mér,“ segir Ólafur Einarsson, grein-
arforseti Reykjavíkurgreinar Kirkju
Jesú Krists Hinna síðari daga heilögu
sem fagnar 35 ára afmæli. „Kirkjan
byggir á Biblíunni og Mormónsbók.
Biblían er opinberanir eða heimildir
frá gamla heiminum, en Mormónsbók
er opinberanir og heimildir frá nýja
heiminum,“ segir Ólafur og útskýrir
að forfeður indíána í Suður-Ameríku
hafi skrifað Mormónsbók að mestu
leyti.
Saga kirkjunnar á Íslandi nær aftur
til ársins 1851 þegar tveir íslensk-
ir námsmenn komu heim frá Kaup-
mannahöfn og tóku að boða fagnaðar-
erindið í Vestmannaeyjum. Þar fundu
þeir marga sem meðtóku boðskap-
inn en nýi söfnuðurinn varð engu að
síður fyrir mikilli andspyrnu og voru
skírnir hans bannaðar. Af þeim sökum
sigldu margir kirkjumeðlimir vestur
um haf til Bandaríkjanna árið 1855.
Frá þeim tíma og til aldamóta fluttu
um 150 fjölskyldur frá Íslandi til Utah-
ríkis. „Það var nýlega verið að opna
varanlega sýningu um vesturfarana
í Vestmannaeyjum því það fóru svo
margir úr eyjum á þessum tíma. Það
fór alveg hálfur bærinn vegna trúar
sinnar og ofsókna, og einnig vegna
boðs um að koma til Síonar í Utah,“
segir Ólafur.
Í dag eru í kringum 300 safnaðar-
meðlimir í Kirkju Jesú Krists hinna
síðari daga heilögu. „Það er heilmikið
að gerast hjá unga fólkinu í söfnuðin-
um. Við erum með barna- og unglinga-
starf og svo fyrir fólk á aldrinum 18-30
ára. Í augnablikinu eru fá börn, en það
gengur í bylgjum,“ segir Ólafur.
Í röðum mormóna starfar fjöldi trú-
boða og eru flestir ungir menn. „Alla
jafna er vel tekið á móti þeim. Yfirleitt
eru það útlendingar sem sinna þessu
starfi og íslendingar hjálpa til. Á sama
tíma fara margir héðan til sambæri-
legra starfa erlendis,“ segir Ólafur og
tekur fram að Kirkja Jesú Krists sé
trúboðskirkja. „Hún er byggð á orðum
Krists sem sagði fylgjendum sínum að
fara út og boða fagnaðarerindið.”
Annað markvert sem Ólafur minnist
á í starfi kirkjunnar eru ættfræðirann-
sóknir. „Kirkjan fór um allan heiminn
árið 1938 og tók allar kirkjubækur og
manntöl upp á míkrófilmur og þetta er
í raun grunnurinn sem Friðrik Skúla-
son byggði á þegar hann fór að vinna
að Íslendingabók með Íslenskri erfða-
greiningu. Upprunalegu heimildirn-
ar eru margar hverjar ónothæfar nú,
en hver sem er getur komið og skoð-
að sína sögu á míkrófilmunum,“ segir
Ólafur og bætir að lokum við að nú
sé í gangi vinna við að skrá upplýs-
ingarnar á tölvutækt form svo allt sé
aðgengilegt á netinu. nielsg@365.is
REYKJAVÍKURGREIN KIRKJU JESÚ KRISTS HINNA SÍÐARI DAGA HEILÖGU: 35 ÁRA
Stunda bænagjörðir, sögu-
ritun og ættfræðirannsóknir
GUÐRÆKINN MAÐUR „Kirkjan byggir á Biblíunni og Mormónsbók,” segir Ólafur Einarsson,
greinarforseti Reykjavíkurgreinar sem fagnar 35 ára afmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Krónprins Sádi-Arabíu lagði fram friðaráætlun í sjö liðum á þessum degi
árið 1981, en hún gerði meðal annars ráð fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestínumanna og að höfuðborg þess yrði gamli hluti Jerúsalem. Einnig
að allt herlið Ísraelsmanna yrði dregið til baka frá svæðum sem höfðu
verið hertekin í sex daga stríðinu 1967. Þá voru önnur ríki fyrir botni
Miðjarðarhafs hvött til að viðurkenna Ísrael gegn því að Ísrael viðurkenndi
ríki Palestínumanna.
Þetta var í fyrsta skipti sem Sádi-Arabar lögðu fram tillögur að lausn
deilunnar milli Ísraela og Palestínumanna. Þeim var fagnað en síðan þá
hefur málum lítt þokað áfram.
ÞETTA GERÐIST: 8. ÁGÚST 1981
Sádi-Arabar leggja
fram friðartillögu
LOUIS VAN GAAL fótboltaþjálfari er sextugur í dag.
„Er ég svona klár eða þú svona vitlaus?”