Fréttablaðið - 08.08.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.08.2011, Blaðsíða 6
8. ágúst 2011 MÁNUDAGUR6 Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Heimilistæki frá Siemens til að prýða eldhúsið þitt og létta þér störfin. Lausnina færðu hjá okkur. FRÉTTASKÝRING Mun nást sátt um rammaáætlun? Unnið er að tillögu til þingsályktun- ar í iðnaðarráðuneytinu um hvern- ig kostir í rammaáætluninni verða flokkaðir. Um þrjá flokka er að ræða: virkjanakosti, verndunarkosti og biðkosti. Í síðastnefnda flokkinn falla þeir kost- ir sem ákveða á síðar hvernig verða nýttir; til verndunar eða virkjunar. Katrín Júlíus- dóttir iðnaðar- ráðherra segir að von sé á þingsályktunar- tillögunni fyrir miðjan þennan mánuð. Tillagan byggir á áfanga- skýrslu verk- efnastjórnar um rammaáætlun, en hún kom út 6. júlí. Þar var að finna lista yfir 66 virkjanakosti sem nefndin telur nýtanlega. Það er síðan póli- tísk ákvörðun að grisja þá kosti, ákveða hverja eigi að vernda og hverja nýta. Ljóst er að áherslumunur er á afstöðu stjórnarflokkanna tveggja. Samfylkingin hefur viljað setja fleiri kosti í flokk virkjanlegra, þá sé búið að leggja línurnar til lengri tíma og ljóst sé hvaða kost- ir verði nýttir í framtíðinni. Katrín hefur einmitt talað fyrir því að með rammaáætluninni náist sátt í þessum málum og deilum um ein- staka virkjanakosti fækki. Það sé einfaldlega hluti af stefnumótun hvort virkja eigi á ákveðnu svæði eða ekki. Eitt af skilgreindum hlut- verkum áætlunarinnar er að skapa sátt um vernd og nýtingu náttúru- svæða. Innan Vinstrihreyfingarinnar - græns framboð er það viðhorf hins vegar sterkara að sá tíma- punktur að ákveða í eitt skipti fyrir öll hvaða svæði verði virkjuð sé einfaldlega ekki runninn upp. Þar á bæ vilja menn því frekar hafa virkjanlega kosti færri, en fjölga í staðinn þeim sem eru á biðlista. Þar er einnig ríkari vilji til verndunar svæða en innan Samfylkingarinnar. Þingsályktunin er, líkt og áður segir, á borði iðnaðarráðuneytisins. Efni hennar, það er raunverulegir flokkunarlistar, hafa ekki komið inn á borð þingflokkanna. Ljóst er hins vegar að ráðherrar iðnað- ar og umhverfis hafa haft með sér samstarf í málinu. Þegar tillagan lítur dagsins ljós tekur við sex vikna umsagnarferli. Þar gefst öllum kostur á að tjá sig um efni hennar og koma athuga- semdum á framfæri. Miðað við þá miklu gagnrýni sem vinnan við rammaáætlun hefur hlotið, má gera ráð fyrir því að athugasemdir verði fjölmargar. Það mun velta á því hvernig listi iðnaðarráðherra verður hvort tekst að koma honum í gegnum þing- ið, eftir að athugasemdafrestur almennings er liðinn. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru það einkum tvö svæði sem standa munu í þingmönnum Vinstri grænna og raunar sumum Samfylkingarmönnum einnig: Þjórsárver og neðri hluti Þjórsár. Svandís Svavarsdóttir umhverfis- ráðherra hefur lýst því yfir að stefnt sé að friðlýsingu Þjórsár- vera. Það þýðir að Norðlingaöldu- veita er ekki lengur uppi á borði, nema að henni verði gjörbreytt. Ekkert liggur fyrir um slíkt á þessari stundu. Það verður hins vegar þrautin þyngri að sætta andstæð sjónar- mið á þingi og ljóst er að fjölmarg- ir stjórnarþingmenn eru andvígir virkjununum í Þjórsá og vilja auka við verndarsvæði áætlunarinnar. Það verður því pólitískur línu- dans að sætta þessi sjónarmið og slagurinn mun snúast um Þjórsár- verin, og þar með Norðlingaöldu- veitu, og virkjanirnar í neðri hluta Þjórsár. kolbeinn@frettabladid.is Norðlingaalda og neðri hluti Þjórsár munu valda deilum Iðnaðarráðherra vinnur nú að tillögu til þingsályktunar um flokkun virkjanakosta vegna rammaáætlunar. Ekki er sátt innan stjórnarflokkanna um málið. Stækkun Þjórsárvera mun útiloka Norðlingaölduveitu. Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir þremur virkjunum í neðri hluta Þjórsár, en dómsúrskurð þurfti til að umhverfisráðherra staðfesti það skipulag. Ekkert framkvæmdaleyfi liggur hins vegar fyrir og raunar hefur iðnaðarráð- herra sent Orkustofnun tilmæli um að engin ný framkvæmdaleyfi verði gefin út fyrr en þingið hefur afgreitt þingsályktunartillöguna, í síðasta lagi 1. febrúar 2012. Virkjanir í Þjórsá URRIÐAFOSS Verði af virkjunum í neðri hluta Þjórsár mun vatnsrennslið um Urriða- foss minnka umtalsvert. Virkjanirnar eru á skipulagi en ekki er búið að sækja um framkvæmdaleyfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR LONDON, AP Lögreglan í London bjó sig í gær undir framhald á óeirð- um sem brutust út í norðurhluta borgarinnar á laugardag. Snemma í gærkvöldi höfðu óeirðaseggir brotið rúður í verslunum og eyði- lagt lögreglubíl. Lögreglan hefur lofað ýtarlegri rannsókn á aðdraganda óeirða í norðurhluta borgarinnar sem hóf- ust aðfaranótt sunnudags. Á þriðja tug lögreglumanna slasaðist í átök- um við mótmælendur. Mótmælendur kveiktu í bygg- ingum og tveggja hæða strætis- vagni, og létu greipar sópa í versl- unarmiðstöð. Alger ringulreið ríkti um miðnætti þegar þjófar tæmdu verslanir í hverfinu. Mótmæli voru skipulögð við lög- reglustöð í Tottenham-hverfinu á laugardag í kjölfar þess að lög- reglumenn skutu mann til bana á fimmtudag. Einhverjir úr hópi mótmælenda hentu bensínsprengjum og aðrir börðu á lögreglumönnum með kylfum og járnstöngum. Alls voru 46 handteknir meðan á óeirðunum stóð á laugardags- kvöld, en 26 lögreglumenn voru sárir eftir átökin. - bj Á þriðja tug lögreglumanna slasaðist í óeirðum sem brutust út í Norður-London: Óeirðir í London annan daginn í röð ÓEIRÐIR Kveikt var í nokkrum bygg- ingum, tveimur lögreglubílum og tveggja hæða strætisvagni í óeirðunum á laugardag. NORDICPHOTOS/AFP SLYS Svissnesk hjón lentu í hættu í Skyndidalsá seinnipartinn í gær þegar þau óku í ána á röngum stað. Áin reif bílinn með sér og bar hann um 50 metra niður með straumnum. Þegar bíllinn stöðvaðist í ánni kom fólkið sér upp á þak bílsins og náði að hringja eftir aðstoð þrátt fyrir að símasamband sé afar stopult á svæðinu. Hringdu þau í lögregluna í Sviss sem lét Neyðarlínuna vita. Björgunarfélag Hornafjarðar, sem var samstundis kallað út, gat komið fólkinu til aðstoðar. Fólk- inu var bjargað af þaki bílsins og varð ekki meint af. Bíllinn var dreginn úr ánni og er hann mikið skemmdur. - sv Svissnesk hjón í vanda: Bíllinn flaut 50 metra í ánni ÍSRAEL, AP Avigdor Lieberman, utanríkisráðherra Ísraels, varaði við því í gær að stjórnvöld í Pal- estínu undirbyggju fordæmis- lausar blóðs- úthellingar í september. Kom yfirlýsing Liebermans í framhaldi af stuðningi Sam- einuðu þjóð- anna við sjálf- stæði Palestínu. Hvatti Lieber- man til þess að Ísrael sliti sam- bandi við Palestínu. Lieberman studdi þó yfirlýs- ingu sína engum gögnum. Tzachi Mosche, talsmaður Liebermans, sagði að hann drægi ályktanir sínar út frá skýrslum leyniþjón- ustunnar og opinberum yfirlýs- ingum palestínskra ráðamanna. - mmf Hvetur til sambandsslita: Blóðsúthelling- ar skipulagðar AVIGDOR LIEBERMAN MENNING Tæplega 50 styrkir verða veittir vegna menningar- nætur í ár. Það eru Höfuðborgar- stofa og Landsbankinn sem veita styrkina. Rúmlega 60 sóttu um. Sem dæmi má nefna að 8 fá styrk á sviði tónlistar, 2 vegna menningar og fræðslu, 2 fá vegna leiklistar, 7 fjölllistaviðburðir verða styrktir, 4 fá styrk til að opna húsnæði sín fyrir gestum, 3 dansatriði verða styrkt, 2 mynd- listar- og ljósmyndasýningar og loks fá 5 styrki í flokknum allskonar. - kóp Menningarnótt undirbúin: Styrkir veittir vegna viðburða Hefur þú farið á Fiskidaginn mikla á Dalvík? Já 22,5% Nei 77,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Telurðu að fækka eigi verk- efnum ríkisins? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.