Fréttablaðið - 08.08.2011, Blaðsíða 8
8. ágúst 2011 MÁNUDAGUR8
Í HIGH COURT OF JUSTICE
CHANCERY DIVISION
COMPANIES COURT
Í MÁLI FRIENDS PROVIDENT LIFE ASSURANCE LIMITED
- og -
Í MÁLI FRIENDS PROVIDENT PENSIONS LIMITED
- og -
Í MÁLI BUPA HEALTH ASSURANCE LIMITED
- og -
Í MÁLI FRIENDS PROVIDENT LIFE AND PENSIONS LIMITED
- og -
Í MÁLI FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000
Hér með tilkynnist að þann 28. júlí 2011 var umsókn gerð samkvæmt hluta 107 í lögunum
Financial Services and Markets Act 2000 (“Lögunum”) hjá High Court of Justice,
Fjármáladeild, Fyrirtækjarétti í London af Friends Provident Life Assurance Limited
(“FPLAL”), Friends Provident Pensions Limited (“FPP”), Bupa Health Assurance Limited
(“BHA”) og Friends Provident Life and Pensions Limited (“FPLP”) um Skipanir:
(i) undir hluta 111 í lögunum þess efnis að samþykkt sé áætlun (“áætlunin”) um flutning
allra langtíma tryggingaviðskipta (eins og skilgreint er í lögunum) FPLAL og BHA og
hluta langtíma tryggingaviðskipta (eins og skilgreint er í lögunum) FPP í FPLP; og
(ii) að gerðar séu viðbótarráðstafanir í tengslum við áætlunina í samræmi við hluta 112 og
112A í lögunum.
Afrit af skýrslunni sem óháður sérfræðingur gerði um skilmála áætlunarinnar samkvæmt
hluta 109 í lögunum (“skýrsla um áætlunina”), bækling sem inniheldur yfirlýsingu um
skilmála áætlunarinnar og samantekt skýrslunnar um áætlunina og áætlunarskjalið má
nálgast endurgjaldslaust með því að hringja í +44 (0)1722 326785 eða skrifa Insurance
Business Transfer Department, Unit 28-33, Blakey Road, Milford, Salisbury, SP1 2UD, United
Kingdom. Þessi skjöl og önnur, að meðtöldum tryggingafræðilegum skýrslum, eru tiltæk á
vefsíðu Friends Life Group plc, www.fpinternational.com/is/flutningur2011.
Afgreiða á umsóknina hjá Royal Courts of Justice, Strand, London WC2A 2LL þann
18 nóvember 2011. Allir þeir (að meðtöldum starfsmönnum FPP, FPLAL, BHA eða FPLP) sem
telja að hagsmunir þeirra verði fyrir neikvæðum áhrifum við framkvæmd áætlunarinnar eiga
rétt á aða vera viðstaddir dómsafgreiðsluna og gera grein fyrir skoðunum sínum, annað
hvort í eigin persónu eða með aðstoð lögfræðings. Það myndi hjálpa til við ferlið ef þeir sem
hyggjast gera slíkt gætu haft samband skriflega við Herbert Smith LLP, lögfræðinga FPP,
FPLAL, BHA og FPLP, á heimilisfangið sem gefið er upp hér að neðan, sem fyrst og helst
fyrir 14. nóvember 2011, og útlistað sjónarmið sín.
Þeir sem vilja gera athugasemdir við áætlunina en ætla ekki að vera viðstaddir
dómsafgreiðsluna geta komið þeim á framfæri með því að senda skriflega tilkynningu
um þær til Herbert Smith LLP á heimilisfangið hér að neðan, sem fyrst og helst fyrir
14 nóvember 2011, þar sem þeir útlista sjónarmið sín.
Dagsett 8. ágúst 2011.
Herbert Smith LLP (ref 2067)
Exchange House
Primrose Street
London
EC2A 2HS
United Kingdom
Claim No. 6394 of 2011
ATVINNUMÁL „Ég er búinn að selja
tvö hús sem ég hefði viljað afhenda
fyrir áramót en ég veit ekki hvern-
ig ég á að fara að því þar sem ég fæ
enga smiði. Ég er að skila húsi núna
sem ég hefði átt að vera búinn að
afhenda fyrir talsverðum tíma.“
Þetta segir Stefán Einarsson,
verktaki á Akureyri, sem byggir
svokölluð Kanadahús. Hann kveðst
hafa fengið lista hjá Vinnumála-
stofnun fyrir norðan með nöfn-
um um 20 smiða. „það gat enginn
þeirra komið í vinnu til mín. Sumir
unnu bara hjá einstaklingum. Aðrir
voru erlendis og enn aðrir voru að
fara í sumarfrí. Ástandið er væg-
ast sagt mjög sérstakt. Ég skil að
vísu að menn fái sér svarta vinnu
með atvinnuleysisbótum til þess að
hafa ofan í fjölskylduna. Menn eru
svo skattpíndir. Ég verð hins vegar
grautfúll þegar þetta bitnar á mér.“
Stefán hefur verið með smiði frá
Kanada í vinnu við smíði húsanna.
Það sé hins vegar of kostnaðar-
samt. „Við fáum ekki atvinnuleyfi
fyrir þá nema í tvo mánuði. Það
gengur ekki að kaupa flugfar fyrir
menn á tveggja mánaða fresti því
að við þurfum að reka þetta með
eins litlum kostnaði og hægt er.
Mér finnst jafnframt hart að þurfa
kannski að ráða smiði frá Póllandi
og Lettlandi þegar á annan tug þús-
unda er á atvinnuleysisskrá hér.“
Kristján Jónsson, sem á bifreiða-
verkstæðið K2M Kraftbílar, hefur
verið í vandræðum með að fá bif-
vélavirkja til starfa. „Við höfum
auglýst en viðbrögðin hafa verið
afar dræm.“
Á Vélaverkstæði Hjalta Einars-
sonar vantar menn til starfa í hinum
ýmsu iðngreinum. „Við höfum leit-
að eftir málmiðnaðarmönnum, vél-
virkjum, vélstjórum, rafvirkjum og
rafeindavirkjum auk verkamanna.
Að vísu hefur ekki verið mikil end-
urnýjun í málmiðnaði og vélvirkjun
í nokkur ár. Skólakerfið hefur verið
á villigötum en það er annar hand-
leggur. Mér finnst aftur á móti að
margt geti verið að kerfinu þegar
fólk fæst ekki í vinnu. En ég vil ekki
vera harðorður. Það er ekkert grín
að missa vinnuna,“ segir Einar Þór
Hjaltason starfsmannastjóri.
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra bendir á að harðar reglur
gildi neiti menn á atvinnuleysisskrá
að þiggja vinnu. „Þeir eiga að fara
út af skránni nema um alveg sér-
stakar ástæður sé að ræða.“
Ráðherrann segir að í jafn-
miklu atvinnuleysi og hér ríkir sé
hætta á að menn skrái sig atvinnu-
lausa og fái bætur en séu samt
ekki reiðubúnir fyrir markaðinn.
Að loknu átaki Alþýðusambands
Íslands, Samtaka atvinnulífsins og
ríkisskattstjóra um eflingu góðra
atvinnuhátta verði staðan metin.
Sérstakt vettvangsteymi fyrr-
greindra aðila hefur frá miðjum
júní heimsótt á annað þúsund fyr-
irtækja. Steinþór Haraldsson, stað-
gengill ríkisskattstjóra, segir menn
í rekstri ekki alltaf átta sig á þeim
reglum sem gilda. Dæmi séu um
brot hjá einhverjum fyrir tækjanna.
„Það á eftir að vinna úr þessu.
Teymið gefur daglegar skýrslur.
Sumt er komið í lag nú þegar en
annað þarfnast ítarlegri skoðunar.
Við erum ekki að tala um svart þjóð-
félag yfir heildina. Langstærstur
hluti launa skilar sér til ríkissjóðs
með eðlilegum hætti.“
ibs@frettabladid.is
Tuttugu smiðir á skrá
en engir fást í vinnu
Verktaki á Akureyri er í vandræðum með afhendingu húsa þar sem hann fær
ekki smiði til starfa. Um 20 smiðir á atvinnuleysisskrá gátu ekki komið í vinnu.
Viðbrögð við auglýsingum fyrirtækja eru sögð dræm.
AÐ STÖRFUM Hrun í byggingageiranum hefur valdið atvinnuleysi. Ekki tekst þó alltaf
að fá smiði á atvinnuleysisskrá í vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FERÐAMENNSKA Flestir þeirra erlendu ferða-
manna sem komu hingað til lands í fyrra,
fljúgandi til Keflavíkur, eru breskir ríkis-
borgarar. Þeir voru rúmlega sextíu þúsund
það ár. Þjóðverjar hafa rutt Bandaríkjamönn-
um úr öðru sæti og eru nú næstfjölmennastir
í þessum hópi, rúmlega 54 þúsund. Þetta
kemur fram í samantekt sem Hagstofan gaf
nýverið út.
Bretarnir reynast vera tryggir gestir því
þeir voru einnig fjölmennasti hópurinn árið
2005. Aukinn áhugi á Íslandi virðist hins
vegar vera að kvikna í Þýskalandi því í fyrra
komu hingað tæplega 54 þúsund Þjóðverjar,
sautján þúsund fleiri en 2005.
Ferðir Iceland Express til Winnipeg setja
mark sitt á þennan lista en í fyrra komu rúm-
lega þrettán þúsund Kanadamenn til landsins
miðað við 3.400 árið 2005.
Spánverjum fjölgar einnig ört í þessum
hópi, en þeir voru tvöfalt fleiri í fyrra en þeir
voru fyrir sex árum.
Af þessum helstu gestaþjóðum fækkaði
einungis í flokki Japana, séu árin 2005 og
2010 borin saman, en þeim fækkaði um fimm
hundruð. - jse
Fleiri Þjóðverjar koma til landsins nú en fyrir fimm árum samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands:
Breskir ferðamenn fjölmennastir sem fyrr
Ferðamenn eftir þjóðerni
2005 2010
Bretar 57,792 60,326
Þjóðverjar 36,959 54,377
Bandaríkjamenn 54,270 51,166
Danir 34,624 38,139
Norðmenn 23,963 35,662
FRÁ LEIFSSTÖÐ Ýmissa grasa gætir í alþjóðaflórunni
í Leifsstöð en fyrir utan Íslendingana eru þó Bretar
venjulega fjölmennastir.
SÝRLAND, AP Sýrlenski stjórnarher-
inn réðst í gær gegn uppreisnar-
mönnum í þremur borgum í land-
inu í gær. Mannréttindasamtök sem
fylgjast grannt með ástandinu segja
í það minnsta 52 hafa fallið í árás-
unum.
Hörðust voru átökin í borginni
Deir el-Zour þar sem hermenn
bundu enda á níu daga umsátur um
borgina og réðust á uppreisnar-
menn. Vitað er um 42 sem létust.
Ástandið í borginni er sagt afar
alvarlegt. Talsmaður uppreisnar-
manna segir skorta lyf, mat og elds-
neyti.
Árás hermanna á borgina Hama
héldu einnig áfram. Talsmaður
spítala í borginni sagði í gær að
átta fyrirburar sem voru í hita-
kössum hafi látist í síðustu viku
eftir að hermenn tóku rafmagnið
af spítalanum.
Harðar árásir stjórnarhersins á
vígi uppreisnarmanna hófust við
upphaf Ramadan, helgimánaðar
múslima. Talið er að Basjar Assad,
forseti Sýrlands, vilji koma í veg
fyrir að fjöldasamkomur í mosk-
um landsins breytist í allsherjar-
mótmæli gegn stjórn hans.
- bj
Stjórnarher Sýrlands heldur áfram árásum á uppreisnarmenn í landinu:
Á sjötta tug létu lífið í átökum
MÓTMÆLT Sýrlendingar í Egyptalandi
mótmæltu stjórn Basjars Assad Sýr-
landsforseta í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JEMEN, AP Forseti Jemen, Ali
Abdullah Saleh, hefur verið
útskrifaður af spítala í Sádi-Arab-
íu. Saleh slasaðist illa þegar ráðist
var á forseta-
höllina í Sanaa,
höfuðborg
Jemen í júní.
Forsetinn er
enn undir eftir-
liti lækna og
ekki er vitað
hvenær hann
snýr aftur til
Jemen. Hann
dvelst nú í hús-
næði í eigu konungsfjölskyldunnar
í Sádi-Arabíu. Saleh hefur komið
einu sinni fram opinberlega eftir
árásina og sagði þá að hann hefði
undirgengist átta aðgerðir. Lengd
spítaladvalarinnar hefur vakið upp
vangaveltur um hvort forsetinn
muni snúa aftur til Jemen. - mmf
Forseti Jemen laus af spítala:
Verður áfram í
Sádi-Arabíu
BORGARBYGGÐ Byggðaráð Borgar-
byggðar krefst þess að Orkuveita
Reykjavíkur hefji þegar í stað
framkvæmdir við nýja vatnsveitu
í Reykholtsdal og tryggi íbúum
og fyrirtækjum nægjanlegt vatn.
Þetta kemur fram í Skessuhorni.
Líkt og Fréttablaðið hefur
greint frá hefur verið viðvar-
andi vatnsskortur í dalnum. Svo
rammt hefur að honum kveðið að
sú staða hefur komið upp að ekki
sé hægt að sturta niður í klósett-
um á Fosshótel Reykholti.
Byggðaráð hélt 200. fund sinn
í Reykholti á fimmtudag. Fyrir
honum lá bréf frá slökkviliðs-
stjóra Borgarbyggðar þar sem
áhyggjum var lýst af vatns-
skorti með tilliti til slökkvistarfs.
Byggðaráð tók undir það. - kóp
Vatnsskortur í Reykholtsdal:
Byggðaráð kref-
ur OR úrbóta
REYKHOLT Orkuveitan hefur þurft að
keyra vatn í bílum á svæðið vegna
lélegra vatnsbóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Brú yfir Staðará í útboð
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í
byggingu brúar yfir Staðará í Stein-
grímsfirði. Um er að ræða 40 metra
langa eftirspennta bitabrú í tveimur
höfum, 9 metrar að breidd. Tilboðum
skal skila fyrir klukkan 14 30. ágúst og
verða þau opnuð síðar sama dag.
VEGAGERÐ
ALI ABDULLAH
SALEH
1. Hversu langt er grillið sem notað
er á Fiskideginum mikla á Dalvík?
2. Hvað heitir yfirdýralæknir?
3. Hvað vinna margir hjá Securitas
við afgreiðslustörf á landinu?
SVÖR:
1. 8 metrar. 2. Halldór Runólfsson. 3. 60
til 70 manns
Ég skil að vísu að
menn fái sér svarta
vinnu með atvinnuleysis-
bótum til þess að hafa ofan
í fjölskylduna. Menn eru svo
skattpíndir.
STEFÁN EINARSSON
VERKTAKI
VEISTU SVARIÐ?