Fréttablaðið - 08.08.2011, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 08.08.2011, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 T HG Arkitektar fengu fyrstu verðlaun fyrir til- lögu sína um hönnun og skipulag íbúabyggð- ar í úthverfi Vilníus, höfuðborg- ar Litháens. „Það voru fjárfestar í Vilníus sem komu að máli við okkur og báðu okkur um að taka þátt í þessari samkeppni,“ segir Ragnar Auðunn Birgisson, arki- tekt hjá THG Arkitektum. „Þetta er fínna hverfi í úthverfi Vilníus. Þarna eru einbýlishús af stærri gerðinni og það var verið að leita eftir einhverju nýju og fersku sem er ekki alveg það hefðbundnasta á þessum slóðum.“ Verið er að byggja upp hverfið sem THG Arkitektar hönnuðu. Aðspurður segir Ragnar að þar sé töluvert af litlum vötnum og tjörnum, skóglendi og grösug- um hæðum. „Þetta verður opið og skemmtilegt úthverfi,“ segir Ragnar en samkvæmt tillögu THG Arkitekta er efnisval að mestu litháískt og mikið um steinklæðn- ingu og við. Hugað verður vel að skjólgóðum útisvæðum, breytilegu veðurfari og hitastigi. Ragnar segir að óskað hafi verið eftir annars vegar einbýlishús- um og hins vegar parhúsum. „Við tókum mið af landslaginu við val á því hvort húsin yrðu á einni hæð eða tveimur,“ upplýsir Ragnar og tekur fram að húsin verði opin, ljós og björt. „Þetta verður í nútíma- legum skandinavískum stíl eins og hefur verið ríkjandi hérlendis undanfarin ár. Mikið gler, góð lofthæð og opin rými sem renna saman. Við vildum hafa flæði á milli rýma.“ Ragnar segir að verkefnið auki bjartsýni um að eitthvað sé að gera fyrir arkitekta, bæði hérlendis og erlendis. „Við erum að flytja inn smá vinnu,“ segir Ragnar og bætir við: „Við vonum að það verði farið í þetta af alvöru hraða, að þetta verði ekki bara eitt og eitt hús.“ Ragnar segir að fullur hugur hafi verið í fjárfestunum að reisa hverfið eftir þeim hugmyndum sem THG Arkitektar lögðu fram. „Hvort þetta verður nákvæmlega eins og við lögðum til á eftir að koma í ljós. Þetta verður þróað áfram í vinnu- ferlinu.“ martaf@frettabladid.is THG Arkitektar hlutu fyrstu verðlaun fyrir tillögu um hönnun og skipulag íbúabyggðar í úthverfi Vilníus. Hanna hverfi í Vilníus FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bonito ehf. Friendtex Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is Opnunartími: mánud.-föstud. kl. 11:00 - 18:00 laugardag 11:00 - 14.00 ÚTSALA KAUPIR 2 OG 3JA FLÍKIN ER FRÍ ATH. ÓDÝRASTA ER FRÍ NÚNA ER BARA HÆGT AÐ GERA GÓÐ KAUP Lítið hringlótt og uppfullt af möguleikum. www.weber.is Listh Gosasnagi fyrir gleraugu er nýjasta afurð 25togo stúdíósins í Taívan. Hann ætti að koma sér vel fyrir fólk sem er gjarnt á að týna gleraugunum sínum. Þau eru vel skorðuð á snagan- um og eiga sér þar vísan og öruggan stað. Sjá nánar á www. designboom.com.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.