Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.08.2011, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 26.08.2011, Qupperneq 26
2 föstudagur 26. ágúst núna ✽ sumarlok augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 meðmælin FLOTT Skoska leikkonan Kelly MacDonald var falleg að vanda er hún sótti ráðstefnu á vegum Pixar. NORDICPHOTOS/GETTY Enn velta menn því fyrir sér hver verði arftaki Johns Galliano hjá Dior-tískuhúsinu. Líkt og kunn- ugt er orðið var Galliano vikið frá störfum eftir að hann var kærður fyrir kynþáttahatur. Nýjustu fregnir herma að bandaríski hönnuðurinn Marc Jacobs gæti tekið við sem yfir- hönnuður Dior en þá þyrfti að að fylla hans skarð hjá Louis Vuitton. Hin hæfileikaríka Phoebe Philo, sem nú starfar sem yfirhönnuður hjá Celine við góðar orðstír, hefur verið orðuð við stöðu yfirhönn- uðar hjá Vuitton verði af því að Jacobs taki við hjá Dior. Philo yrði þó áfram hjá Celine og mundi því stýra hönnun tveggja stórra tísku- húsa á sama tíma. Fréttirnar eru sannarlega for- vitnilegar hvort sem eitthvað er hæft í þeim eður ei, enda er Jacobs með hæfileikaríkari hönnuðum seinni ára. - sm Marc Jacobs orðaður við Dior: Vangavelturnar halda áfram Til Dior? Marc Jacobs er orðaður við stöðu yfirhönnuðar hjá tískuhúsinu Dior. NORDICPHOTOS/GETTY K ristín Lýðsdóttir og Dóra Dúna Sighvatsdóttir skipa plötusnúðatvíeykið SAD SAD SAD. Þær stöllur eru báðar búsettar í Kaupmannahöfn og þykja efni- legir plötusnúðar. Vinkonurnar kynntust er þær voru sextán ára að aldri og tóku fljótt eftir því að þær höfðu svip- aðan tónlistarsmekk. Þær mynd- uðu þó ekki SAD SAD SAD fyrr en í febrúar í fyrra og síðan þá hafa þær spilað víða í Danmörku og meðal annars komið fram á tón- listarhátíðinni Trailerpark Festi- val. „Vinur okkar hafði heyrt okkur spila í einhverju eftir- partýi og bað okkur um að spila á barnum sínum stuttu síðar. Við auðvitað slógum til og eftir það hætti síminn ekki að hringja. Áður en við vissum af vorum við farn- ar að spila allt að þrisvar í viku. Okkur fannst það einum of mikið þar sem við erum báðar í fullri vinnu og tókum þá ákvörðun að spila frekar sjaldnar og þá á stöð- um sem við elskum. Við viljum alls ekki vera „sell out“,“ útskýrir Dóra Dúna. Nafngiftin er sprottin út frá lagavali stúlknanna en þær spila mikið af sorlegum ástarlögum sem eiga það til að gleymast innan um allt teknóið sem spilað er á skemmtistöðum í dag. „Nafn- ið kemur frá laginu D´yer Mak´er með Led Zeppelin en viðlagið er: „When I read the letter you wrote me, it made me mah mah mad. When I read the words that it told me, it made me sah sah sad“. Við elskum báðar þetta lag,“ segir Kristín. Þær stöllur segja viðtökurn- ar hafa verið glimrandi góðar og ætla þær að halda spilamennsk- unni áfram. Inntar eftir því hvort von sé á þeim heim til Íslands eru þær fljótar til svars: „Okkur langar mikið til Reykjavíkur að spila, enda báðar með mikla heimþrá. Okkur langar aðallega að spila á Dillon, Kaffibarnum eða Rauða ljóninu. Bókið okkur.“ - sm Kristín Lýðsdóttir og Dóra Dúna Sighvatsdóttir vinsælar í Danmörku: SPILA SORGLEGAR ÁSTARBALLÖÐUR Vinsælt tvíeyki Kristín Lýðsdóttir og Dóra Dúna Sighvatsdóttir mynda plötusnúðatvíeykið SAD SAD SAD. Þær spila ástarlög og hafa slegið í gegn í Danmörku. MYND/NICOLAI LEVIN Markaðsdagar Útimarkað- ur Íbúasam- taka Laugar- dals verður á morgun í grennd við Grasagarðinn. Markaðurinn verð- ur með sama sniði og áður og hefst klukkan 11.00. Að þessu sinni verð- ur markaðurinn haldinn í samstarfi við Grasagarðinn og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og má því búast við því að þetta verði heljarinnar fjöl- skylduskemmtun sem enginn má missa af. Sama dag er haldin hin árlega Hverfahátíð Miðborgar og Hlíða á svæði Vals í Hlíðarenda. Í bili Sýningin Í bili verður opnuð í Hafnar- borg í kvöld klukkan 20.00 en hún samanstendur af verkum tólf lista- manna og listamannahópa. Verk- in eru flest ný og vísa til sögulegs upphafs safna sem kennd eru við furðustofur endurreisnarinnar, eða Wunderkammer líkt og það nefnist á þýsku. Í þeim mátti finna sjaldgæfa muni sem evrópskir aðalsmenn höfðu með frá framandi slóðum. Meðal þeirra sem eiga verk á sýn- ingunni eru Daníel Björnsson, Grétar Reynisson, Haraldur Jónsson, Hildi- gunnur Birgisdóttir, Ingirafn Steinars- son og Magnús Árnason. LAKKAÐAR NEGLUR Lakkaðar neglur setja gjarnan punktinn yfir i-ið þegar halda skal út á lífið. Prófið endilega sterka og óhefðbundna liti eins og þessa tvo. Meiri Vísir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Fylgstu með Pepsideildinni í Boltavaktinni á Vísi. Beinar textalýsingar allra leikja, útvarpslýsing á leik í hverri umferð í Boltavarpinu og umfjöllun strax að loknum leik. Myndbönd með viðtölum öll mörkin í sjónvarpi Vísis. Vertu á Boltavaktinni með Vísi í sumar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.