Fréttablaðið - 26.08.2011, Síða 28
4 föstudagur 26. ágúst
Svandís Dóra
Einarsdóttir hefur
verið viðloðandi leiklist
síðan hún man eftir sér.
Hún hefur leikið í fjölda
auglýsinga, stuttmynda,
kvikmynda og sjón-
varpsþátta og hefur að
auki ferðast með hópa
um landið á hestbaki. Í
vetur mun hún fara með
hlutverk Jóu í Veghúsum
í verkinu Heimsljós í
Þjóðleikhúsinu.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
S
vandís er uppalin í
Kópavoginum og er
dóttir hestamanns-
ins Einars Bollason-
ar og Sigrúnar Ing-
ólfsdóttur. Hún stundar hesta-
mennskuna af miklum móð en
áður vann hún jafnframt við
tamningar. Foreldar hennar reka
Íshesta og hefur Svandís unnið
sem leiðsögumaður hjá fyrirtæk-
inu í hálendisferðum frá tvítugs-
aldri. „Ég kem úr mikilli hesta-
fjölskyldu og fór fyrst á bak þegar
ég var enn inni í maganum á
mömmu. Ég hef átt nokkra hesta
um ævina og þann fyrsta fékk
ég í fæðingargjöf frá mömmu og
fæddist hann aðeins viku á undan
mér og er enn á lífi. Sú meri var
fyrsti keppnishesturinn minn en
er núna komin á elliheimili uppi
í sveit,“ segir hún.
Svandís á einnig hundinn
Spræk sem er ársgamall Border
Collie og hefur hann fylgt henni
víða um land í sumar. „Hann
er mjög hlýðinn núna en þegar
hann var yngri át hann allt, skó,
myndavél sem ég átti, bækur og
hvað eina,“ segir hún brosandi.
GAMALT ÁHUGAMÁL
Í vetur mun Svandís stíga á fjal-
ir Þjóðleikhússins í hlutverki Jóu
í Veghúsum í Heimsljósi Halldórs
Laxness. Hún útskrifaðist úr leik-
listardeild Listaháskólans vorið
2010 en segir leiklistaráhugann
alltaf hafa blundað í henni. „Ég
ákvað að kýla á leiklistina af al-
vöru eftir stúdentinn og ætlaði út
í nám. Ég skráði mig í ensku í Há-
skólanum í millitíðinni og gekk
til liðs við Stúdentaleikhúsið og
kynntist krökkum sem höfðu
skráð sig í inntökuprófin hér
heima. Ég fór þá að skoða skól-
ann betur og bera hann saman
við skólana sem ég hafði kynnt
mér í Englandi og Bandaríkjunum
og komst að því að mér leist best
á námið hér.“
Hún viðurkennir að leiklist-
in geti verið hark en segist jafn-
framt ekki geta hugsað sér betra
starf. „Þegar ég fer í leikhús eða
bíó verð ég oft fyrir svo miklum
áhrifum. Mér finnst heillandi að
geta komið sögu og upplifun til
áhorfenda og hreyft við þeim
á einhvern hátt. Ég græt sjálf
stundum í bíói og leikhúsi og á
auðvelt með að sökkva mér í þá
veröld. Það finnst mér líka svo
heillandi við leiklistina, að fá að
búa til karakter og skapa annan
heim frá grunni.“
Svandís lauk nýverið við að
leika í kvikmyndinni Borgríki
sem verður frumsýnd síðar í
haust. Hún segir skrítið að horfa
á sjálfan sig á kvikmyndatjaldinu
í fyrsta sinn en tekur fram að það
venjist furðu fljótt. „Fyrst hugsar
maður „ó, guð!“, en svo fer maður
að horfa á þetta öðrum augum.“
MÁTULEGA KÆRULAUS
Leikarastarfið mun seint teljast
tryggt og tekjurnar enn síður.
Innt eftir því hvort starfinu fylgi
miklar fjárhagsáhyggjur svar-
ar Svandís því neitandi. „Maður
kemur oftast beint úr námi og
er því vanur að lifa sparlega á
námslánum. Ég var til dæmis
orðin mjög fær í að elda alls
kyns baunarétti á námsárunum.
Á sunnudögum fór ég aftur á
móti oft í mat til foreldra minna
og fékk þá smá kjöt. En auðvitað
getur það tekið á taugarnar að
vera ekki með mánaðarlegar
tekjur en það lærist þó. Hlutirnir
hafa samt þá tilhneigingu til að
reddast þannig að ég er mátulega
kærulaus með þetta allt saman.“
HIMNESKA SUMARIÐ
Svandís hefur verið í sambandi
með Sigtryggi Magnasyni leik-
skáldi í rúmt ár og kynntist parið
fyrst í gegnum Nemendaleikhús-
ið. Ástin kviknaði þó ekki fyrr
en nokkru síðar og þá á Ísafirði.
„Ástin kviknaði á tónlistarhátíð-
inni Aldrei fór ég suður í fyrra.
Sigtryggur er fæddur og uppalinn
í sveit og er með hestadellu eins
og ég. Svo er hann líka viðloðandi
leiklistina þannig að við höfum
alltaf um nóg að tala,“ segir hún
og brosir.
Svandís skrifar nú sitt fyrsta
leikverk með Sigtryggi og hefur
það hlotið titilinn Nú er him-
neska sumarið komið. Samstarf-
ið gengur að hennar sögn vel og
vinna þau auðveldlega saman.
„Hann er mikið skáld og sér að
mestu um skrifin á meðan geng
ég um gólf og blaðra út í loftið,“
segir hún hlæjandi.
Verkið er byggt á sögu langafa
og langömmu Sigtryggs. „Hún
lést ung og skildi eftir sig mann
og tvo unga syni. Stuttu eftir
dauða hennar fór langafi hans
í trans og byrjaði hönd hans að
skrifa bréf sem hófst á orðunum
„Nú er himneska sumarið komið“
og var það kona hans sem skrif-
aði í gegnum hann. Næstu fjöru-
tíu árin skrifaði hann reglulega
með ósjálfráðri skrift bréf frá
látinni eiginkonu sinni til hans
sjálfs og sona þeirra. Það má því
segja að verkið fjalli um eilífa
ást,“ útskýrir hún.
Parið sest við skriftir hvenær
sem það á lausa stund og segir
Svandís andagiftina koma yfir
þau á ólíklegustu stundum. „Við
vorum í hestaferð um daginn
þegar hann spratt allt í einu upp
og fór afsíðis að skrifa nokkra
mónólóga – þá hafði andinn
skyndilega komið yfir hann –
á meðan sat ég, fararstjórinn,
frammi og drakk bjór með ein-
hverjum Frökkum. Þannig að
þetta kemur í gusum.“
ALVÖRU STELPA
Líkt og áður hefur komið fram fer
Svandís með hlutverk í uppsetn-
ingu Þjóðleikhússins á Heims-
ljósi. Verkið verður frumsýnt á
annan í jólum og segist Svandís
afskaplega spennt fyrir því að æf-
ingar hefjist. „Þetta er bæði mik-
ill heiður og frábær reynsla og
í þokkabót fæ ég að vinna með
skemmtilegu og hæfileikaríku
fólki og mögnuðum leikstjóra,
Kjartani Ragnarssyni. Persónan
Jóa í Veghúsum er hluti af þríeyki
sem berst með verkalýðnum gegn
yfirvaldinu og ein af ástkonum
FANN ÁSTINA Á ÍSAFIRÐI
Ný fjölmiðlakönnun Capacent Gallup
staðfestir vinsældir Fréttablaðsins.
Rúmlega 72% íbúa höfuðborgarsvæðisins
á aldrinum 18-49 lesa að meðaltali hvert
tölublað Fréttablaðsins - nær þrefalt fleiri
en lesa næsta dagblað þar á eftir.
Fólkið í
landinu les
Fréttablaðið
Allt sem þú þarft...
Prentmiðlakönnun Capacent Gallup.
Apríl til júní 2011, meðallestur á tölublað.