Fréttablaðið - 26.08.2011, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 26.08.2011, Blaðsíða 40
26. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR28 BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur Meðal annars efnis: Umdeildustu virkjunarstæðin Fossarnir og landið við neðri hluta Þjórsár sem hverfur verði virkjunaráform þar að veruleika. Tíska haustsins Jakkaföt, litagleði, einfaldleiki og áhrif frá sjöunda og áttunda áratugnum ráða ríkjum. Aftur á svið eftir átta ára hlé Baltasar Kormákur leikur í Listaverkinu í Þjóðleikhúsinu. ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta Hvað skulda ég þér? Vúhú! Sjáiði snjóinn! Vó. Út á sleða? Gera snjókarl?Fara á göngu- skíði? Gera engla? Hvað eigum við að gera fyrst? Jæja...? Þegar þú segir „fyrst“, þá geri ég ráð fyrir að það sé eftir að við leggjum okkur í svona fimm tíma. Úti á lífinu með Artúri konungi... ... við pöntuðum hringborð... ég bað sérstaklega um hringborð! Oooojjjjj! Það er einhver búinn að æla inni í eldhúsi! Ha??? Hvar? Í pönnu! Á elda- vélinni! Þetta er ekki æla! Þetta er stroganoff! Ojjjj! Það er bara verra! LÁRÉTT 2. samsull, 6. tveir eins, 8. poka, 9. kvk nafn, 11. komast, 12. aðfall, 14. skaf, 16. org, 17. titill, 18. nafar, 20. stöðug hreyfing, 21. ókyrrð. LÓÐRÉTT 1. brenna, 3. kringum, 4. braskari, 5. slagbrandur, 7. orðrómur, 10. þrá, 13. hluti verkfæris, 15. koddi, 16. hljóð- færi, 19. kyrrð. LAUSN LÁRÉTT: 2. gums, 6. oo, 8. mal, 9. gró, 11. ná, 12. aðsog, 14. skrap, 16. óp, 17. frú, 18. bor, 20. ið, 21. órói. LÓÐRÉTT: 1. loga, 3. um, 4. mangari, 5. slá, 7. orðspor, 10. ósk, 13. orf, 15. púði, 16. óbó, 19. ró. Lífið er ekki lengur saltfiskur. Lífið er plast. Tölvurnar okkar, símarnir, leik- föng, hjólahjálmar, bílar, flugvélar, föt, húsgögn, rafmagnssnúrur, barbídúkkur, málning... Sumt af því sem við fyrstu sýn virðist vera úr tré eða málmi er í raun úr plasti. Flestur neysluvarningur er vafinn inn í mörg lög af plasti og síðan settur í plastpoka til að auðvelda heimflutning. Plastást heimsins er afar rökrétt. Það er svo auðvelt að nota plast, þægilegt að láta það passa inn í líf sitt. Það er mótanlegt, einangrar vel, er létt, sveigjanlegt, ryðgar ekki og er auðvelt að þrífa. Svo er það yfirleitt ódýrt, oft lit- skrúðugt og lítil lykt af því. Plast er manngert efni, búið til úr olíu en það er hægt að búa allt til úr plasti. HUNDRAÐ og fimmtíu ára plast- lifnaður heimsins er hins vegar farin að taka sinn toll. Plast er unnið úr hráolíu, sem er ekki til í endalausu magni og verður auk þess dýrari með hverjum deginum. Plast brotnar afar hægt niður í nátt- úrunni, þannig að stór hluti af rusli heimsins er plast. En þó að plast eyðist illa í náttúrunni geta efni úr því samt borist í matvæli sem eru geymd í eða neytt úr plastílátum. Efni þessi sem líkjast horm- ónum geta haft margvísleg áhrif á manns- líkamann, til dæmis dregið úr frjósemi og flýtt kynþroska. Í KYRRAHAFINU miðju er hringiða sem er tólf sinnum stærri en Ísland. Í henni hringsnúast hundrað milljón tonn af plasti sem hafa sogast þangað úr ruslahaugum og grunnsævi meginlandanna sem að Kyrrahafinu liggja. Plastið tætist smám saman niður í hringiðunni og endar í meltingarkerfi smádýra á hafsbotni, sem eru líka á botni fæðukeðjunnar. Þannig berst þetta plast svo inn í líkama okkar. Það er ekkert skrýtið að við elskum plast, það verður alltaf stærri og stærri hluti af okkur. Mannkynið breytist hægt og síg- andi í lifandi risabarbídúkkur. NÆST þegar þú ferð í búð, væri kannski ráð að kippa með lítið notuðum plastpoka, sem ég er alveg viss um að þú átt í hrúg- um heima hjá þér, frekar en að kaupa alltaf nýjan? Eða bara baðmullartuðru? Og hvernig væri að skila heimilisplastinu í endurvinnslugám frekar en að henda því í ruslið? Einn af góðum kostum plasts er nefnilega sá að það er auðvelt að endur- vinna það og nota aftur og aftur. En best væri samt að vera meðvituð um að plasta ekki heiminn í drasl. Lífið er plastfiskur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.