Fréttablaðið - 26.08.2011, Qupperneq 40
26. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
Meðal annars efnis:
Umdeildustu virkjunarstæðin
Fossarnir og landið við neðri hluta Þjórsár sem
hverfur verði virkjunaráform þar að veruleika.
Tíska haustsins
Jakkaföt, litagleði, einfaldleiki og áhrif frá sjöunda og
áttunda áratugnum ráða ríkjum.
Aftur á svið eftir
átta ára hlé
Baltasar Kormákur leikur í Listaverkinu í Þjóðleikhúsinu.
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Hvað skulda ég
þér?
Vúhú!
Sjáiði
snjóinn!
Vó.
Út á sleða?
Gera
snjókarl?Fara á
göngu-
skíði?
Gera engla?
Hvað eigum við
að gera fyrst?
Jæja...?
Þegar þú segir
„fyrst“, þá geri
ég ráð fyrir að
það sé eftir að við
leggjum okkur í
svona fimm tíma.
Úti á lífinu með
Artúri konungi...
... við pöntuðum hringborð... ég bað
sérstaklega um hringborð!
Oooojjjjj! Það er
einhver búinn
að æla inni í
eldhúsi!
Ha??? Hvar?
Í
pönnu!
Á elda-
vélinni!
Þetta er ekki æla!
Þetta er stroganoff! Ojjjj! Það
er bara
verra!
LÁRÉTT
2. samsull, 6. tveir eins, 8. poka, 9.
kvk nafn, 11. komast, 12. aðfall, 14.
skaf, 16. org, 17. titill, 18. nafar, 20.
stöðug hreyfing, 21. ókyrrð.
LÓÐRÉTT
1. brenna, 3. kringum, 4. braskari, 5.
slagbrandur, 7. orðrómur, 10. þrá, 13.
hluti verkfæris, 15. koddi, 16. hljóð-
færi, 19. kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gums, 6. oo, 8. mal, 9.
gró, 11. ná, 12. aðsog, 14. skrap, 16.
óp, 17. frú, 18. bor, 20. ið, 21. órói.
LÓÐRÉTT: 1. loga, 3. um, 4. mangari,
5. slá, 7. orðspor, 10. ósk, 13. orf, 15.
púði, 16. óbó, 19. ró.
Lífið er ekki lengur saltfiskur. Lífið er plast. Tölvurnar okkar, símarnir, leik-
föng, hjólahjálmar, bílar, flugvélar, föt,
húsgögn, rafmagnssnúrur, barbídúkkur,
málning... Sumt af því sem við fyrstu sýn
virðist vera úr tré eða málmi er í raun úr
plasti. Flestur neysluvarningur er vafinn
inn í mörg lög af plasti og síðan settur í
plastpoka til að auðvelda heimflutning.
Plastást heimsins er afar rökrétt. Það er
svo auðvelt að nota plast, þægilegt að láta
það passa inn í líf sitt. Það er mótanlegt,
einangrar vel, er létt, sveigjanlegt,
ryðgar ekki og er auðvelt að þrífa.
Svo er það yfirleitt ódýrt, oft lit-
skrúðugt og lítil lykt af því. Plast
er manngert efni, búið til úr olíu
en það er hægt að búa allt til úr
plasti.
HUNDRAÐ og fimmtíu ára plast-
lifnaður heimsins er hins vegar
farin að taka sinn toll. Plast er
unnið úr hráolíu, sem er ekki til
í endalausu magni og verður
auk þess dýrari með hverjum
deginum. Plast brotnar
afar hægt niður í nátt-
úrunni, þannig að stór
hluti af rusli heimsins
er plast. En þó að plast
eyðist illa í náttúrunni
geta efni úr því samt borist
í matvæli sem eru geymd í eða neytt úr
plastílátum. Efni þessi sem líkjast horm-
ónum geta haft margvísleg áhrif á manns-
líkamann, til dæmis dregið úr frjósemi og
flýtt kynþroska.
Í KYRRAHAFINU miðju er hringiða sem
er tólf sinnum stærri en Ísland. Í henni
hringsnúast hundrað milljón tonn af plasti
sem hafa sogast þangað úr ruslahaugum
og grunnsævi meginlandanna sem að
Kyrrahafinu liggja. Plastið tætist smám
saman niður í hringiðunni og endar í
meltingarkerfi smádýra á hafsbotni, sem
eru líka á botni fæðukeðjunnar. Þannig
berst þetta plast svo inn í líkama okkar.
Það er ekkert skrýtið að við elskum plast,
það verður alltaf stærri og stærri hluti af
okkur. Mannkynið breytist hægt og síg-
andi í lifandi risabarbídúkkur.
NÆST þegar þú ferð í búð, væri kannski
ráð að kippa með lítið notuðum plastpoka,
sem ég er alveg viss um að þú átt í hrúg-
um heima hjá þér, frekar en að kaupa
alltaf nýjan? Eða bara baðmullartuðru?
Og hvernig væri að skila heimilisplastinu
í endurvinnslugám frekar en að henda því
í ruslið? Einn af góðum kostum plasts er
nefnilega sá að það er auðvelt að endur-
vinna það og nota aftur og aftur. En best
væri samt að vera meðvituð um að plasta
ekki heiminn í drasl.
Lífið er plastfiskur