Fréttablaðið - 26.08.2011, Blaðsíða 46
26. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR34
SJÓÐHEITIR TÍMAR HJÁ KAMERON BINK
ÚR HINUM VIRTU DANSÞÁTTUM!
Stórglæsileg JÓLAsýning!
REYKJAVÍK – ÞRÓTTI, Þróttur, Engjavegi 7
KÓPAVOGUR – HK, Digranesvegi
GARÐABÆ – SJÁLANDSSKÓLA, Löngulínu 8.
REYKJAVÍK - KÓPAVOGUR - GARÐABÆR
Í glæsilegri aðstöðu:
Tryggðu þér
pláss með þv
í að
skrá þig stra
x á
dancecenter.
is
dancecenter.is
dancecenter@dancecenter.is
777 3658
Nánari upplýsingar fást á
og á facebookgrúbbu DanceCenter RVK.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á
eða hringja
í síma hjá DanceCenter Reykjavík.
DÖNSUM svo lengi sem lifum!
Jazzfunk Street Hip hop Break
Nútímadans Barnadansar & Ballett
10-12 ára, 13-15 ára, 16-19 ára,
20-24 ára, 25-35 ára, 35+
Fjöldi 12 vikna námskeiða í HÆSTA Gæðaflokki!
Minnum á ÁRSKORTIN!
FRÍTT 1
3. SEP
T
& SÉR
KJÖR!
Nánar
i upplý
singar
:
www.s
tod2.i
s/Vilda
rklúbb
ur
Skráni
ng: as
krift@s
tod2.i
s
dancecenter.is!
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri
„Maður er allur endurnærður eftir gott plank,
og tilfinningin eftir að hafa sett fjöldamet í
planki verður örugglega sæt því samstaðan sem
skapast þegar margir gera sama hlutinn er svo
skemmtileg,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir,
forstöðumaður kynningarmála hjá Mosfellsbæ,
þar sem reynt verður að setja Íslandsmet í
planki við setningu bæjarhátíðarinnar Í túninu
heima á Miðbæjartorginu í kvöld klukkan 20.
Plank varð áberandi í byrjun árs, en í
plankastellingu er lagst á magann og teygt úr
sér svo maður verði eins og þráðbein spýta,
andlitið snýr niður og handleggir liggja með
síðum.
„Á Miðbæjartorginu er fínasti plankveggur
þar sem hægt verður að raða niður plankandi
fólki. Plank hentar öllum og er alls ekki erfitt
á veggnum góða. Því verður spennandi að
sjá hvort nokkur hundruð mæta til að planka
saman, eða jafnvel þúsundir, en þá flokkast það
eflaust undir óstaðfest heimsmet,“ segir Sig-
ríður Dögg og hvetur landsmenn alla til að eyða
fögru ágústkvöldi með Mosfellingum í einstakri
og skemmtilegri afrekstilraun.
„Bæjarstjórinn plankar vitaskuld fremstur
í flokki enda í fanta plankaformi eftir að vera
búinn að hita vel upp með magaæfingum í
hádegispásunum undanfarið,“ segir Sigríður
Dögg galvösk.
Eftir Íslandsmet í fjöldaplanki verður gengið
fylktu liði í Ullarnesbrekkur þar sem kveiktur
verður varðeldur og sunginn brekkusöngur. Sjá
nánar um dagskrá bæjarhátíðarinnar á mos-
fellsbaer.is - þlg
Reyna við Íslandsmet í planki
PLANK Hér planka þau saman, eins og glaðlegir
kópar á steini, þau Daði Þór Einarsson, skipuleggjandi
hátíðarinnar Í túninu heima, Sigríður Dögg Auðuns-
dóttir kynningarstjóri og Haraldur Sverrisson, bæjar-
stjóri Mosfellsbæjar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Enski tónlistarmaðurinn og sál-
arsöngvarinn Paul Young spilar
ásamt hljómsveit sinni í Eld-
borgarsal Hörpunnar 4. október.
Young naut mikilla vinsælda á
níunda áratugnum og hefur á
ferli sínum átt að minnsta kosti
fjórtán lög sem hafa komist inn
á vinsældalista. Þar má nefna
Everytime You Go Away, Living
For the Love of the Common
People, Come Back And Stay,
Where Ever I Lay My Hat (That´s
My Home) og Senza Una Donna.
Miðasala á tónleikana hefst 1.
september kl. 12 á Harpa.is og í
síma 528 5050.
Paul Young
til Íslands
SYNGUR Í HÖRPUNNI Enski tónlistar-
maðurinn Paul Young syngur í Hörpunni
4. október. NORDICPHOTOS/GETTY
Ballaða Alans Jones og Írisar
Hólm, Stay With Me, er núna
fáanleg á síðunni Tónlist.is en
lagið fór í útvarpsspilun fyrr í
sumar. Allur ágóðinn rennur til
Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna. Myndband við
lagið er væntanlegt um miðjan
næsta mánuð. Þar verður þemað
ást en ekki brúðkaup eins
og áður var fyrirhugað.
Lagið er eftir Jones,
sem er með fleiri járn
í eldinum. Hann er
að skipuleggja tón-
leika á Nítjándu
hinn 1. desember.
Meðal flytjenda
verða Jóhanna
Guðrún, Haffi
Haff og Bryndís
Ásmundsdóttir.
Ballaða frá
Jones í boði
NÝ BALLAÐA Lagið
Stay With Me sem Alan
Jones syngur með Írisi
Hólm er fáanlegt á
Tónlist.is.
Leikarinn Jason Bateman á von
á sínu öðru barni með eiginkonu
sinni, Amöndu Anka, dóttur
söngvarans Paul Anka. Fyrir á
parið dótturina Francescu Noru
sem er fjögurra ára gömul.
Paul Anka, faðir Amöndu, sagði
í viðtali við sjónvarpsstöðina ET
að von væri á annarri stúlku og
að fjölskyldan væri himinlifandi
með fréttirnar. „Jason er yndis-
legur maður og frábær eigin-
maður og faðir,“ sagði Paul Anka.
Verður faðir
í annað sinn
ÖNNUR STÚLKA Jason Bateman og
eiginkona hans, Amanda Anka, eiga von
á öðru barni. NORDICPHOTOS/GETTY