Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 16
6. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR16
Ástkær móðir okkar,
Dr. Sigríður Þóra
Valgeirsdóttir
Klapparstíg 1, 101 Reykjavík,
varð bráðkvödd á heimili sínu þann 3. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Dagmar Vala Hjörleifsdóttir
Sigríður Hjörleifsdóttir
Ingólfur Hjörleifsson
og fjölskyldur þeirra
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Svavar Harðarson
bifreiðarstjóri,
Fróðasundi 3, Akureyri,
er látinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Brynhildur Pálsdóttir
Gunnar Hörður Svavarsson Sigrún Rósa Kjartansdóttir
Páll Svavarsson Helga Björg Guðmundsdóttir
Ingunn Ósk Svavarsdóttir Sigurður Ingi Friðriksson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Elfa Ólafsdóttir
Hraunbæ 150, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut laugardaginn
3. september. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigurður Guðni Sigurðsson
Ólafur Elfar Sigurðsson Snædís Valsdóttir
Svanborg Þórdís Sigurðardóttir Óttarr Ólafur Proppé
Sigrún Laufey Sigurðardóttir
og barnabörn.
Verslunin er lokuð í dag vegna útfarar
Önnu Biering
Blómatorgið Birkimel
Móðir mín, f.v. tengdamóðir, amma
og langamma,
Sylvía Þorsteinsdóttir
hjúkrunarkona
áður til heimilis að Guðrúnargötu 8,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn
2. september. Útförin fer fram frá Áskirkju miðviku-
daginn 7. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsam-
lega afþakkað en þeim sem vildu minnast hinnar látnu
er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Haraldur S Þorsteinsson
Sigrún Hv. Magnúsdóttir Stefán Hallgrímsson
Óskar Haraldsson
Erla Sylvía Haraldsdóttir Craniv A Boyd
Borgar Þór Bragason Freydís Kneif Kolbeinsdóttir
Þórunn Sylvía, Þórdís Birna, Ester.
timamot@frettabladid.is
Merkisatburðir
1914 Benedikt G. Waage, síðar forseti ÍSÍ, syndir fyrstur manna
úr Viðey til lands, á tæpum tveimur tímum.
1928 Bandalag íslenskra listamanna stofnað til að styðja vöxt og
viðgang íslenskra lista, gæta hagsmuna listamanna og efla
samvinnu þeirra.
1943 Skurðaðgerð við brjósklosi í baki, sú fyrsta hér á landi,
gerð þegar Snorri Hallgrímsson skar upp konu a Sjúkra-
húsi Hvítabandsins í Reykjavík.
1944 Annar burðarstrengur Ölfusárbrúar slitnar og tveir bílar
falla í ána. Báðir bílstjórar björguðust.
1952 Iðnaðarsýning opnuð í Reykjavík.
1984 Aðeins munar nokkrum metrum að tvær farþegaþotur
rekist á eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli. Alls voru 403
manns um borð í þotunum.
68
Opinber útför Díönu prinsessu af Wales fór
fram þennan dag fyrir fjórtán árum. Hún hófst
klukkan 9.08 að staðartíma í Lundúnum, þegar
kirkjuklukkur hringdu til að gefa til kynna brott-
för líkfylgdar hennar frá Kensington-höll.
Líkkista Díönu lá á opnum byssuhestvagni
sem lagði af stað frá heimili hennar í Kens-
ington-höll og ók meðfram Hyde Park til St.
James-hallar, þar sem lík Díönu hafði staðið í
fimm daga áður en það var flutt til Kensington-
hallar. Hvarvetna var flaggað í hálfa stöng og
fylgdust konungsþegnar tárvotir með líkfylgdinni
og ungum sonum Díönu sem gengu á eftir
hestvagninum.
Díana var jarðsungin frá Westminster Abbey
og lögð til hvílu í Althorp-kirkjugarðinum.
Yfir 2.000 manns mættu í athöfnina í Westmins-
ter Abbey, en henni var sjónvarpað um allan
heim. Jarðarför Díönu prinsessu fékk eitt mesta
áhorf í sögu sjónvarpsútsendinga, en alls horfðu
38,8 milljónir Breta á útförina í sjónvarpi og yfir
tveir milljarðar manna á heimsvísu.
ÞETTA GERÐIST: 6. SEPTEMBER 1997
Díana prinsessa til hinstu hvílu
Jón Arnar Magnússon, tugþraut-
arkappi og um árabil einn fremsti
íþróttamaður landsins, hefur undan-
farin ár búið á Englandi þar sem hann
nam við stærsta og þekktasta háskóla
Evrópu í kírópraktorsfræðum, AECC,
eða Anglo-European College of Chi-
ropractic. Hann er nú fluttur heim,
útskrifaður doktor í fræðunum með
fimm ára nám að baki og hefur hafið
störf sem kírópraktor á Kírópraktor-
stofu Íslands. Þar aðstoðar hann meðal
annars aðra íþróttamenn sem þjást af
meiðslum sem hann þekkir oft af eigin
raun.
„Jú, þetta hafðist þótt maður hafi
gert þetta á gamals aldri – að fara í
nám. Það höfðu liðið einhver fjórtán
ár frá því að ég hafði síðast setið á
skólabekk og það má segja að ég hafi
verið með höfuðverk fyrstu mánuðina
af því að setja mig inn í enska fræða-
málið en svo kom þetta nú. Enda snýst
þetta auðvitað fyrst og fremst um rétt
hugarfar,“ segir Jón Arnar en áhuginn
kviknaði út frá hans eigin reynslu af
meiðslum í íþróttunum.
„Maður reyndi auðvitað ýmislegt
hnjask og ef maður lenti illa, hvort
sem var í stangarstökki, langstökki
eða hástökki, gat eitthvað gerst og
þá var það yfirleitt kírópraktor sem
hjálpaði til svo maður gæti haldið
áfram keppni. Ég lenti í þessu nokkr-
um sinnum og við það kviknaði áhug-
inn. Maður sá hvernig íþróttamenn
komust í gegnum keppnir og æfingar
í tiltölulega heilu lagi með aðstoð kíró-
praktors.“
Jón Arnar segir kírópraktora þó
ekki síður eiga erindi við fólk almennt.
Stoðkerfið sé heild og meðan fólk sendi
bílana sína í skoðun og olíuskipti megi
það ekki gleyma eigin líkama. Kíró-
praktorsstofa Íslands sem Jón Arnar
starfar hjá opnaði fyrir um ári í Sport-
húsinu og Jón Arnar segir hana státa
af stafrænum röntgentækjum, eina
kírópraktorsstofan hérlendis með slík
tæki. Þá séu myndirnar teknar af fólki
standandi, þannig að fullt álag sé á lið-
ina meðan myndað er og niðurstöður
séu því afar nákvæmar.
„Annars finnst mér bara gaman
að vera kominn heim og hlakka til að
geta tekist á við hlutina með jákvæðni
að leiðarljósi. Maður vissi ekki alveg
í hvers konar aðstæður maður var að
koma, miðað við hvað á hefur geng-
ið. Svo verða einhverjir líka að koma
aftur heim úr náminu. Það vill stund-
um gleymast að fólk býr við sömu
vandamál erlendis og við búum við
hér heima.“
Jón Arnar fylgist vel með ungu
íþróttafólki og segist bíða spenntur
eftir því að metin sín falli. „Til þess
voru þau nú sett og ég vil bara að þau
falli sem fyrst, þau mega ekki verða of
gömul. Svo fær maður auðvitað fiðring
í kringum heimsmeistaramótið.“
juliam@frettabladid.is
AFREKSMAÐURINN JÓN ARNAR MAGNÚSSON: NÝÚTSKRIFAÐUR KÍRÓPRAKTOR
MIÐLAR AF EIGIN REYNSLU
VILL SJÁ GÖMLU METIN FALLA „Til þess voru þau nú sett og ég vil bara að þau falli sem fyrst,
þau mega ekki verða of gömul,“ segir Jón Arnar Magnússon, fyrrum tugþrautarkappi og nýút-
skrifaður kírópraktor. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ROGER WATERS, aðalsprauta Pink Floyd, er 68 ára
„Ég leit alltaf á bækur í forundran yfir því hvernig nokkur gat komið frá sér svo mörgum orðum, en
skilnaðurinn og það að verða ástfanginn á ný hefur virkjað hæfni mína til að semja fleira en tónlist.“
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
Anton Ingimarsson
verslunarstjóri,
sem lést á heimili sínu miðvikudaginn 31. ágúst,
verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju,
laugardaginn 10. september kl. 14.
Elva Rut Antonsdóttir
Ingimar Hrafn Antonsson
Ingimar Antonsson Gíslína Helgadóttir
Sigríður H. Ingimarsdóttir
Hjördís I. Ingimarsdóttir
Hafdís Elfa Ingimarsdóttir
Gylfi Ingimarsson
Ólöf Pálína Úlvarsdóttir