Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 30
6. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR22 www.sindri .is / sími 5 75 0000 LOADING IÐNAÐARHURÐIR LOADING HURÐIR Loading hurðir eru klæðskerasniðnar með tilliti til stærðar og mismunandi aðstæðna. Mikið framboð lita ásamt öryggisþáttum sem tryggir öruggt aðgengi að hurð. Hurðin veitir góða einangrun ásamt því að vera traust gagnvart veðurofsa. GOTT VERÐ 22 menning@frettabladid.is Leiklist Lókal - alþjóðleg leiklistarhá- tíð í Reykjavík Ýmsir flytjendur Leiklistarhátíðinni Lókal er lokið. Það var leikið víðs vegar um bæinn þó að aðalbækistöðin hafi verið Tjarnarbíó. Mörg lítil atriði, lítil sögubrot eða hugdettur og uppá- komur eiga máske eftir að lifa með áhorfendum en það sem einkenndi verkin á heildina séð var einmitt að það voru mest sundurlaus atriði, tengd saman með hjálp tækni eða líkamsáreynslu, en ekki hefðbundin dramatík. Á fimmtudagskvöld var boðið upp á einstaka upplifun í skóla nokkrum í Tjarnarbíó, School of Transform- ations, eftir leikhópana Herbergi 408 og Mobile Homes. Áhorfend- ur voru virkir þátttakendur í sýn- ingunni. Leikurinn barst út fyrir húsið; áhorfendur tóku til dæmis þátt í mótmælum fyrir framan ráð- húsið þar sem raunveruleikinn og leikurinn mættust því stjórnlaga- ráðsfulltrúi stóð þar og lýsti starfi ráðsins og bað fólk um að styðja bætta stjórnarskrá og betra líf í landinu. Þessi sýning var saman- sett úr mörgum atriðum sem mörg hver áttu botna sína í raunveru- leikasjónvarp. Ég held að áhorfend- ur hafi verið mjög glaðir með þessa sýningu og sinn hlut í henni, hvort sem menn hafi nú gaman af því að faðmast og syngja í hóp með ókunn- ugum eður ei. Kanadíska sýningin Phobophilia hófst í Tjarnarbíói en þaðan voru 24 áhorfendur teymdir og leiddir í Iðnó, þar sem bundið var fyrir augu þeirra og skrölt með hópinn upp í leikfimissal Menntaskólans í Reykjavík. Þar voru augnbindin fjarlægð og fólki boðið til sætis til þess að taka þátt í eða verða áhorf- endur að aftöku. Verkið, sem byggði á texta Jean Cocteau, var fyrst og fremst vídeólistsýning úr litlum kassa sem leiðir hugann óneitanlega í átt að tæknidýrkuninni út úr hinni eiginlegu frásögn. Listamennirnir Stephen Lawson og Aaron Pollard áttu heiðurinn að þessari sýningu, sem eins og margt annað á hátíðinni var sundurlaus. Áhorfendagangan náði ekki að tengjast hinni verðandi aftöku, þó svo maður geti ímyndað sér hver var meiningin hafi verið. Á glampandi sviði Gamla bíós gaf að líta sýninguna The Island. Þar brölta ungmenni um í svefnpokum segjandi sögur og framkvæma leik- brellur nánast eins og í fjölleika- húsi. Íslendingarnir Friðgeir Ein- arsson og Ingibjörg Magnadóttir og Kanadabúarnir Arne McPherson og Freya Olafson leiddu saman hesta sína í sýningu sem sameinaði mynd- list og leiklist og skemmti áhorfend- um rækilega. Á litla sviði Borgarleikhússins sýndi finnski hópurinn Oblivia sýninguna Entertainment Island. Hér réði naumhyggjan ríkjum; engin leikmynd og búningar ekki tengdir sögum sem upp komu og talið í sjálfu sér af mjög skornum skammti. Hópurinn vann þó snilld- arlega saman ádeiluverk á neyslu- samfélagið og brjálæðið í kring- um útlitsdýrkunina. Vel hefði mátt stytta þessa þriggja tíma sýningu um eina klukkustund en þetta var engu að síður góð sýning. Leikhópurinn Verk Produtsjoner, sem gerir út frá Ósló, réðst í magn- að verk byggt á texta Pär Lager- kvist, og var sýnd í Tjarnarbíói. Þar vantaði svo sannarlega ekki leikmynd, búninga, smink, brúður, reykvélar og allt tilheyrandi víti eða himnaríki. Löngu látið fólk lýsir sínu lífi og hvernig heimarnir tengj- ast saman. Þau reyna að drepa tím- ann með því að tala saman. Þetta var mikið fyrir augað og leikið á ensku en einhvern veginn var eins og þýðingin hafi ekki alveg verið leikurunum töm. Ein saga sem sögð var fjallaði um mann sem hafði alla sína tíð á jörðinni verið vörð- ur á klósetti og tekið við klinki og afhent litla afrifu af pappír. Gest- irnir komu og fóru, urðu eldri og það varð vörðurinn líka en það var enginn sem sá hann. Verkið fjallaði á vissan hátt um að sýna sig og sjá aðra og leitina að guði. Tvær íslenskar sýningar voru endurfluttar á hátíðinni; Fjalla- Eyvindur var sýndur í Norðurpóln- um í leikstjórn Mörtu Nordal. Von- andi verður sú góða sýning tekin áfram og aftur til sýninga. Sýningin er heildstæð og laus við alla tilgerð. Verði þér að góðu er líka hreint út sagt frábær, þar sem hvatir og hegðun er sett í rannsóknarbúning á snilldarlegan máta. Erfitt var að finna heildarbrag á Lókal-hátíðinni í ár; enginn eigin- legur þráður sameinaði leiksýning- arnar ef frá er talið samskipti og/ eða samskiptaleysi og gott ef leitin að guði er ekki stóra mengið. Hvað sem öðru líður þá eru hátíðir sem þessar uppbyggilegar og það er vandasamt að setja saman svona verkefnaskrá. Elísabet Brekkan Samskiptaleysi og leitin að guði Þórdís Aðalsteinsdóttir hlaut um helgina verðlaun og viðurkenn- ingu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur, fyrir framlag sitt til myndlistar. Erró afhenti verð- launin í Hafnarhúsinu á laugardag við opnun á sýningu á teikningum Errós og Attersee. Þórdís býr í Bandaríkjunum en móðir hennar, Marta Hildur Richter, tók við verð- laununum fyrir hönd dóttur sinnar. Erró stofnaði listasjóð Erró til minningar um móðursystur sína og er honum ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna. Þetta er í tólfta sinn sem styrkur er veittur úr sjóðnum en framlagið rennur til listakonu sem þykir skara fram úr. Stjórn sjóðsins skipa safnstjór- ar Listasafns Reykjavíkur, Lista- safns Íslands og Listasafnsins á Akureyri. Í tilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur segir að verk Þórdís- ar segi sögur sem séu í senn pers- ónulegar og byggðar á frásögnum annars staðar frá, til dæmis úr bókmenntum eða fréttum. „Með hið mannlega eðli að leið- arstefi verða verkin óháð tíma og rúmi og lúta lögmálum dæmi- sögunnar en varpa um leið fram spurningum um mörk siðferðis í samskiptum manna.“ Þórdís hlaut styrk úr listasjóði Guðmundu VIÐ AFHENDINGUNA Martha Hildur Richter tók við verðlaununum fyrir hönd dóttur sinnar. Með henni á myndinni eru Erró, Ólafur Ragnar Grímsson og Hafþór Yngvason. SÍÐUSTU SUMARTÓNLEIKARNIR Síðustu tónleikar sumarsins í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar verða haldnir í kvöld klukkan 20.30. Þá leikur Þórarinn Stefánsson píanóleikari einleiksverk fyrir píanó sem samin eru út frá íslenskum þjóðlögum eða útsetningar á þeim. Elstu verkin eru eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson en hin yngstu eru Fagurt er í fjörðum og Krummi svaf í klettagjá eftir Kolbein Bjarnason og verða þau frumflutt á tónleikunum. ETERNAL SMILE Tilkomumikið og sjónrænt verk norska leikhópsins Verk Produktsjoner vakti sérstaka eftirtekt gagnrýnanda. PHOBOPHILIA Áhorfendur voru teymdir fyrst frá Tjarnarbíói í Iðnó og þaðan í Menntaskólann í MR þar sem þeim var boðið að verða vitni að aftöku. Sundurlaust verk sem skilaði ekki tilætluðum áhrifum að mati gagnrýnanda.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.