Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 18
6. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 Framhald af forsíðu ÍSLENSKT HUNDANAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli gott í þjálfun og í leik VINSÆLVARA Eldri konur sem borða dökkt súkkulaði einu sinni til tvisvar í viku draga úr hættu á hjartaáfalli um þriðjung. Að borða súkkulaði á hverjum degi hefur hins vegar ekki þessi jákvæðu áhrif, sam- kvæmt nýlegri bandarískri rannsókn. Heimild: www.bbc.co.uk Parkinsonsveiki er hrörnunar- sjúkdómur í heila og kemur næst á eftir Alzheimer í algengi en um 500 til 600 manns þjást af parkin- son á Íslandi á hverjum tíma. Af hverju taugafrumur í heila hrörna er enn óljóst en hrörnunin verður helst í kjörnum sem meðal annars hafa áhrif á hreyfifærni. „Við á taugasviðinu á Reykja- lundi höfum markvisst sinnt park- insonssjúklingum í hópum frá árinu 1999. Við höfum aflað okkur þekkingar og reynslu á þessum tólf árum sem við viljum miðla til annars heilbrigðisstarfsfólks,“ segir Ólöf H. Bjarnadóttir, lækn- ir á Reykjalundi, en Reykjalundur ásamt Taugalæknafélagi Íslands og GlaxoSmithKline stendur fyrir málþingi um parkinsonsveiki í Valsheimilinu á fimmtudaginn. Málþingið er ætlað heilbrigðis- starfsfólki. Ólöf segir margt jákvætt hafa gerst í meðferð parkinsonsveiki undanfarna áratugi. „Fyrstu dópa- mínlyfin komu á markaðinn á sjö- unda áratugnum. Þá gat fólk farið að hreyfa sig. Þá hefur orðið mikil þróun í aðgerðum auk þess sem vonir eru bundnar við ígræðslur og stofnfrumur sem þó eru enn á tilraunastigi,“ segir hún. Ólöf segir einnig hafa komið fram síðustu fimmtán ár að park- insonsveiki er mun flóknari sjúk- dómur en áður var talið. Einkennin séu ekki aðeins í hreyfingum held- ur séu einnig einkenni í sjálfráða taugakerfinu auk vitrænna og and- legra einkenna. „Þessu viljum við miðla á málþinginu auk þess sem við leggjum áherslu á þá staðreynd að hreyfing og öll þjálfun hefur góð áhrif á parkinsonssjúklinga og ýmislegt bendir til þess að þjálfun hafi einnig taugaverndandi áhrif á heilann.“ Einn fyrirlesara á málþinginu er Andri Þór Sigurgeirsson sjúkra- þjálfari á Reykjalundi. Hann kynnti meistaraverkefni sitt í fyrra þar sem fram komu jákvæð áhrif mikillar þjálfunar á einkenni parkinsonsveiki. „Parkinsonssjúklingar eiga það til að taka stutt skref. Við vild- um athuga hvort mikil ganga með sjónrænum bendingum (þver- læg strik með millibili sem þarf að stíga yfir) gæti haft áhrif á skreflengd þeirra til lengri tíma,“ útskýrir Andri. Tveir hópar park- insonssjúklinga þjálfuðu fjór- um sinnum í viku í fjórar vikur. Annar með sjónrænum bending- um en hinn aðeins með hvatningu þjálfara. „Í ljós kom að sjónrænar bendingar höfðu ekki mikil áhrif en hins vegar hafði gönguþjálfun- in ein og sér gríðarlega mikil áhrif á skreflengd og gönguhraða sem skiptir máli upp á göngufærni,“ segir Andri og telur niðurstöðuna mjög jákvæða því þetta staðfesti mikilvægi reglulegrar þjálfunar. Hann jákvæð áhrif mikillar þjálfunar alltaf koma betur í ljós. „Sem dæmi eiga parkinsonssjúk- lingar til að tala lægra og radd- styrkurinn minnkar. Mikil þjálf- un í að æfa þá að tala hátt hefur áhrif á raddstyrkinn og meira að segja sjást jákvæðar breytingar í heilanum og meiri virkni verður á svæðum sem voru skemmd,“ upp- lýsir Andri sem gerir ráð fyrir að það sama eigi við um líkamlega þjálfun. „Við sjáum það til dæmis hjá heilablóðfallssjúklingum að mikil þjálfun hefur einhver græð- andi áhrif á heilann.„Við segjum stundum að lyfin séu númer eitt hjá parkinsonssjúklingum en að þjálfunin sé númer eitt og hálft.“ Nánari upplýsingar um dagskrá málþingsins má nálgast á reykja- lundur.is. solveig@frettabladid.is Þjálfun gerir mikið gagn Málþing um parkinsonsveiki verður haldið í Valsheimilinu á fimmtudaginn. Þar verður greint frá því helsta sem áunnist hefur í meðferð sjúklinga síðasta áratug. Meðal annars mun Andri Þ. Sigurgeirsson sjúkraþjálf- ari fjalla um góð áhrif þjálfunar á parkinsonssjúklinga en hann varði mastersrannsókn sína í fyrra. Andri Þór Sigurðsson sjúkraþjálfari og Ólöf H. Bjarnadóttir læknir, bæði starfandi á Reykjalundi, munu bæði halda fyrirlestur á málþingi um parkinson á fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Síðasta rúman áratug hefur Sell- ars kennt dáleiðslu meðfram því að bjóða upp á meðferð. „Á námskeiði sem ég hélt í Skotlandi í fyrra- vor var Íslendingur sem bað mig að koma til Íslands og halda sams konar námskeið. Ég sló til og komst að því að Íslendingar, bæði fagfólk og almenningur, eru sérstaklega móttækilegir fyrir nýjungum eins og þessum. Mér hefur verið boðið að halda námskeið víða um heim en er að velta því fyrir mér hvort Ísland geti ekki orðið miðstöð fyrir kennslu í þessum fræðum, því nú þegar er ég búinn að þjálfa upp færa dáleiðslu- tækna sem gætu jafnvel aðstoðað mig við kennsluna. Mér er það mikil alvara með þessu að ég er þegar búinn að skrá mig á íslenskunám- skeið í Háskóla Íslands,“ segir Sell- ars glaður í bragði. Næsta diplómanámskeið byrjar 23. september (sjá http://4.is/dt) og gerir Sellars ráð fyrir því að halda annað námskeið í dáleiðslu við þung- lyndi á Íslandi á næsta ári. vera@frettabladid.is Sellars segir Íslendinga opna fyrir dáleiðslu og sér fyrir sér að Ísland geti orðið miðstöð fyrir dáleiðslukennslu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.