Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1962, Blaðsíða 3

Faxi - 01.12.1962, Blaðsíða 3
Des.-blað 10 & & & Ps & fjp & & fW & & & Ps & & XXII. AR 1962 PS Hann birtist sem barn Jólahugleiðing eftir séra Björn Jónsson ,,Þér tnunuð finna ungbarn, reifað og liggjandi í jötu.“ Liik. 2, 12. Heilög jól ganga senn í garð. Enn sem fyrr snerta þau hina viðkvæmu strengi barnslundarinnar í mannlegu hjarta. Og það er eðlilegt, af því að þau leiða okkur að jötu, þar sem lítið barn hvílir. Mörgum veitist örðugt að tileinka sér hið dýpsta og innilegasta í jólagleðinni. — Aður fyrr var þessu á allt annan veg farið. Þá var hjartanleg jólagleði eðlileg og sjálfsögð. En þá átti sál okkar ennþá heima í paradís æskunnar, þótt hið ytra umhverfi þeirrar paradísar væri e. t. v. aðeins lágreist baðstofa, fátæklegir húsmunir og fábreyttir lifnaðarhættir. Þá voru jólin okkur gleðileg jól, — og við sáum ævintýradýrð alls kyns un- aðar í myrkri skainmdegisins, þegar jólaljósin voru tendruð. Þá þurfti aðeins örsmáa, ódýra gjöf til að gleðja. Eitt kerti, sem brann á lágum snúð var nóg. Boðskapur jólaguðspjallsins og jólasálmanna var barnshuganum fagur og heilagur sann- leikur, sem efasemdalaust var tekið á móti. En nú er eins og allt sé orðið breytt. Jólagleðin á ekki eins greiðan aðgang að hjörtum okkar eins og fyrr. — Við höfuni vissulega lært margt, eignazt margt, síðan við vorum börn. En við höfum vísast glatað ýmsu, sem betra hefði verið að hafa en missa. Hin djúpa og hreina jólagleði er forréttindi þeirra, sem eru börn — eða geta orðið börn í anda. Þau eru athyglisverð, orð jólabarnsins, sem hann eitt sinn sagði, er hann sjálfur var full- tíða maður: „Nema þér snúið við og verðið eins og börnin, komist þér alls ekki inn í himnaríki." — Því að himnaríki er andlegt ástand, — það er sæla og gleði, sem unnt er að eiga hér á jörð. Hvað á Jesús við með þessu, að verða „eins og börnin?“ Það er vafalaust erfitt að svara því svo tæmandi sé. — En mér finnst, að með þeim vilji hann m. a. — og fyrst og fremst — segja þetta: „Þið gerið ykkur alltof stór, þið mannanna börn. Til þess að komast inn í himnaríki, verðið þið að minnka." Við gerum okkur of stór. Við mundum vera miklu gæfu- stmari og glaðari, bæði unt jólin og endranær, ef við gerðum okkur ekki svona stór. Þetta hefir slæm áhrif á mannlegt líf. Við rekumst hvert á annað, — stjökum hvert við öðru, — reynum að ryðja hvert öðru frá. Og við þykjumst líka svo vaxin úr grasi, að við lítum niður á þá, sem við eigum sam- leið með og hreykjum okkur yfir þá. Með þessu völdum við samferðamönnunum margþættu böli, en mestu þó sjálfum okkur, af því að þau olnbogaskot, sem við gefum öðrum og þau öfundaraugu, er við sendum þeim, mæta okkur aftur fyrr eða síðar á lífsleiðinni með margföldum vöxtum. En þetta, hve stór við erum að eigin vitund, veldur því, sem verra er. Við hreykjum okkur yfir sjálfan hinn heilaga Guð, — já, — gerum okkur jafnvel að dómurum vfir honum. Við kvörtum og kveinum yfir stjórn hans á heiminum og and- streymi lífskjaranna. Við rísum gegn vilja hans, ef okkur fellur hann eigi, — og förum eftir eigin gimd og geðþótta. Það er næsta hlálegt að hugsa sér manninn, sem fyrir Guði er svo óendanlega smár, hreykja sér hátt og bjóða honum sem er allt í öllu, byrginn. Það er svipað og ef þú ætlaðir að hylja sjálfa sólina með því einu að senda nokkrum sandkornum í sólarátt. Samræmið og fegurðin, sem jólin prýða mannlífið með ör- skamma stund á ári hverju, eiga sér sjaldan langan aldur. Lífið yrði fagurt, ef ávallt væru jól mildinnar, friðarins og gleðinnar í mannlegum hjörtum. En því miður fara mennirnir aftur að ýfast og hreykja sér, — gerast stórir gagnvart Guði og mönn- um. Og ríki himnanna, — friðarríki Krists, færist þá aftur „á fölva stjörnu að allra skýja baki,“ eins og eitt þjóðskáld- anna kemst að orði. Sá friður, sem vitnar um velþóknun Guðs er okkur svo fjarri vegna þess að við gerum okkur of stór. Jólin flytja okkur þann boðskap skýrt og einarðlega, að við þurfum að verða eins og börnin, til þess að komast inn í himna- ríki. Og hví skyldum við þá ekki snúa við og verða eins og börnin, fyrst fylling guðdómsins birtist í barni, sem fæddist í fjárhúskofar Eru eigi jólin heilög áminning til hvers og eins: „Æ, snúið af hrokaleið háu og hallizt að jötunni lágu. Þá veginn þér ratið hinn rétta því rósir í dölunum spretta"? / Allt okkar mikillæti, — alla okkar ímynduðu stærð og alla dýrkun heimsins hégóma lét Guð að engu verða, er hann birti sjálfan sig í barninu fátæka. Og hið sama gerði hann rúmum þrjátíu árum síðar, er hann birti sig á krossinum á Golgata. Því að milli jötunnar er fórnar- og þjáningabrautin bein og óslitin. En — urn leið og Guð við jötuna fellir sinn úrslitadóm yfir öllu mannlegu stærilæti — í hvaða mynd sem það birtist, þá talar hann til okkar með hlíðri föðurraust: „Barnið mitt, gef mér hjarta þitt. Gjör þig eigi lengur stóran, því að ég hefi gjört mig lítinn þín vegna. I barnsmynd kom ég i þennan heim. Nú skalt þú aftur verða barn með bljúgri lund og koma inn í ríki himnanna. Og með frið himnaríkis í hjarta skaltu heyja ævinnar stríð og vinna sælan sigur.“ „Barnslundin ein og barnsins hjartalag beini þér veg um höfin nótt og dag.“ Guð gefi þér — í Jesú nafni: Gleðileg jál. m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.