Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1962, Blaðsíða 9

Faxi - 01.12.1962, Blaðsíða 9
En fyrst að hann vill láta það þannig vera, hvað hefur þá einn vesæll maður við því að segja. Og vissulega breytir hann oft böli í blessun. Þau eru sönn þessi orð: „Maðurinn upphugsar sinn veg,' en Drott- inn stýrir gangi hans.“ — Hjúskapur og heimilislíf? — Já, ég gifti mig 16. des. 1933. Konan mín heitir Guðlaug Bergþórsdóttir frá Suðurgarði í Vestmannaeyjum. Við eig- um 5 börn á lífi, 3 dætur og 2 syni, öll uppkomin. Tvo drengi misstum við á fyrsta ári. Við námum land hér í Njarð- víkum og nefndum húsið okkar Hvol. Konan hefir staðið mér dyggilega við hlið. Og víst er góður lífsförunautur dásamleg Guðs gjöf. — Störf? —Síðari árin hefur búskapurinn verið mitt aðalstarf. — Hvað er langt síðan þú tókst við formannsstörfum í sóknarnefndinni hér? — Það var haustið 1960, sem ég var kos- inn formaður og safnaðarfulltrúi Njarð- víkursafnaðar. En í honum eru aðeins íbúar hér í Innri-Njarðvík. — Þar hefur réttur maður lent á rétt- um stað. — Ekki vil ég nú segja það. Vafalaust eru margir mér færari. En mér þykir vænt um kirkjuna okkar og vil gjarnan leggja henni lið. — Það hefur þú líka sannarlega sýnt í verkinu. — Ojæja, — það er nú minnst mér að þakka af því, sem áunnizt hefur. Að baki framkvæmdanna stendur hlýhugur og hjálpfýsi margra samtaka manna. — Hverjar eru helztu framkvæmdirnar þessi tvö síðustu ár? — Haustið 1960 var sett stétt úr steypt- um hellum í kringum kirkjuna. Og þá var einnig þessi stétt, sem við stöndum á, lögð frá kirkjudyrum út að sáluhliði. Um sama leyti var kirkjan yfirfarin að utan, steypt og málað milli hleðslusteina. Haustið 1961 var kirkjan svo öll máluð að innan, sönglofti breytt og ýmislegt fleira lagfært. Þá voru einnig kirkjubekkir lagfærðir, settur á þá svampur með skinn- áklæði. Að lokum var svo kirkjuhvelf- ingin einangruð. Síðastliðið sumar var kirkjuþakið malað, svo og kirkjugluggar að utan. í sumar var einnig kirkjugarðurinn málaður af Áka Gránz, og fyrsta verk, sem unnið var á hinu nýja verkstæði Frið- riks Valdimarssonar, var unnið fyrir kirkj- una. Tók hvorugur neitt fyrir þá vinnu. Altaristaflan í Njarð- víkurkirkju. — Myndin er tekn árið 1959. Hreppsnefndin hefir einnig stutt mjög að þessum málum. — Allt er þetta vel þegið á svo skömm- um tíma. Og miklar þakkir eiga þeir skilið, sem hér hafa lagt hönd á plóginn. — Já, ég vil biðja þig að koma á fram- færi mínum innilegustu þökkum til allra velunnara kirkjunnar okkar, bæði nær og fjær. Og þeir eru margir, sem hafa sýnt hug sinn í verkinu bæði fyrr og síðar. Það er nú t. d. skemmst að minnast ljósa- krónunnar, hátíðaskrúðans og altarisklæð- isins, sem Jórunn Jónsdóttir í Njarðvík gaf, og hökulsins, sem safnaðarkonur gáfu, svo að fátt eitt sé nefnt. — Já, ég man ekki betur en að kirkj- unni hafi borizt gjafir á hverjum einustu jólum í þau 10 ár, sem ég hef þjónað hér. Og víst ber það söfnuðinum og velunn- urum hans fagurt vitni. En gætir þú ekki gefið lesendum Faxa einhverjar upplýs- ingar um sögu Innri-Njarðvíkurkirkju ? — Það vill nú einmitt svo vel til að ég hef alveg nýlega aflað mér þeirra eftir öruggum heimildum. Ekki verður með neinni vissu vitað, hvenær kirkja var fyrst reist í Njarðvík. Hennar getur ekki í kirknaskrá Páls bisk- ups Jónssonar um 1200. En þar er aðeins getið þeirra kirkna, er prest þurfti til að fá. Má því vel vera að kirkja hafi þá verið í Njarðvík, en henni þjónað af nágranna- presti. Fyrsti máldagi kirkjunnar er frá 1269. Var kirkjan þá helguð Maríu, Pétri og Páli, Lárentíusi og Olafi. Átti hún sem svaraði 20 hundruðum í heimalandi fimm kúgildi í búfé, kúgildis hross og skip, er metið var til hundraðs og ennfremur nokk- urt annað fé og kirkjugripi sæmilega. Þar skyldi þá vera prestur og syngja allar heimilistíðir. En ekki er að sjá að þar hafi nein sókn til legið. Samkvæmt reka- skrá á Rosmhvalanesi frá þessum tíma á Kirkju-Njarðvík ásamt Byjaskerjum níunda hlut í hval þar. I Hítardalsbók um 1367 segir, að Maríu og Þorlákskirkja í Njarðvík eigi eina kú og er af því að ráða, að eignum hennar hafi þó mjög hrakað frá 1269, og fráleitt hefur þar þá verið prestur. í máldaga Vilchins biskups um 1367, er ekki getið um eignir kirkju hvorki í landi né búfé. Aðeins taldir upp kirkjumunir. Er af mál- daganum að ráða, að þá sé þar kirkja ný endurbyggð. Njarðvík er fengin konungi sem sektar- fé vegna Jóns bónda Einarssonar með bréfi 21. júlí 1515. Jörðin virðist síðan vera í eign konungs og er seld ásamt hjáleigun- F A X I — 169
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.