Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1962, Blaðsíða 59

Faxi - 01.12.1962, Blaðsíða 59
Hagsýni bætir allra hag Rafveitur Keflavíkur, Njarðvíkur og Gerða- hrepps hafa nýlega sent viðskiptamönnum sínum bréf, þar sem óskað er eftir samstarfi um að hagsýni sé gætt við notkun straum- frekra tækja um eldunartímann. Þetta mun vera algjör nýjung, og hefur rit- stjóri Faxa sýnt þá lipurð, að ætla nokkrum línum rúm í blaðinu þessu máli til ferkari skýringar. Rafveiturnar kaupa orkuna af Rafmagns- veitum ríkisins eftir gjaldi, sem miðast við mesta 30 mín. álag ársins = árs/kW. Þetta er svonefnt „toppgjald", 1092,00 kr. fyrir hvert kW. Þessi toppur hefur undantekningarlaust, þar til í fyrra, myndast á haust- eða vetrar- vertíð um eldunartímann, kl. 6,30—7 að kvöld. Það er, fyrir samtímis álag frá eldun- fiskvinnslu-, Ijósa- og annarri notkun. Nú síðari ár hefur verið mjög gott samstarf milli rafveitunnar og frystihúsarekenda og fleiri um að halda toppnum niðri, og minnka þeir álagið eftir beztu getu, þegar við óskum þess, þó það kosti þá nokkra fyrirhöfn og ef til vill vill aukaútgjöld. Með þessu, svo og vökulli gæzlu á klukk- um, sem slökkva á hitanotkun og fleiru, hef- ur með hverju árinu náðst betri og betri nýting út úr toppálaginu, og sparað við það stórfé, sem þýðir að kW.-stundagjaldið getur verið lægra, til hags fyrir alla. En öllu eru takmörk sett, og í fyrra kom toppur á eldunar- tímanum kl. 5.30—6 aðfangadag jóla, en þá voru örugglega allar fiskvinnsluvélar stopp. Þessi toppur fór að vísu lítið fram úr þeim, sem áður var kominn á vertíðinni. A sama tíma á gamlárskvöld var hætta á enn nýjum toppi, en ráðstafanir voru gerðar til þess að halda honum niðri. Til þess að skýra betur þennan svonefnda „topp“. Læt ég fylgja línurit, sem sýnir viku- legt mesta álag hjá Rafveitu Keflavíkur árin 1956—1959. Á því sést hvað sumartíminn er illa nýttur. Lengst til hægri sést hvernig á- lagið berytist yfir einn sólarhring. Það getur átt við hvaða rúmhelgan sólarhring sem vera skal og fyrir flestar rafveitur, sveiflan verður mjög svipuð. Kári Þórðarson. Yfir nóttina er álagið t. d. rúmlega Vs af mesta álaginu, en fer snar hækkandi frá kl. hálf átta. Kl. hálf níu hita margir morgun- kaffi, en minnka svo aftur. Eftir kl. 10 stígur það, og nær hámarki kl. 12. Yfir miðjan dag- inn er álagið rúmlega % mesta álags, en hækkar ört frá kl. 5 og nær hámarki kl. 7. Um tíu leytið að kvöldinu sýnist eins og margir hiti sér kvöldkaffi. Á helgum er þetta svolítið öðruvísi — allt seinna og lægra. Aðfangadagur jóla og gamlárskvöld eru alveg í sérflokki. Þá kemur bara einn toppur, sem nær hámarki kl. sex um kvöldið. Þetta stafar af því, að flestar húsmæður eru að brasa eitthvað í ofninum samtímis og önnur eldun fer fram á mörgum hellum, svo þarf að nota strauboltann til þess að strjúka yfir eitthvað og inni þarf að vera hlýtt og bjart. Allt þetta skeður svo samtímis á flestum heimilum, að segja má að byggja þurfi topp- stöðvar þessa vegna. Hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og fleirum hefur árlega komið toppur á þessum tíma. Bréfið, sem sent var, er smá-tilraun, en getur komið að töluverðu gagni, ef nokkrir notendur sýna tillitssemi, þó sérstaklega á aðfangadag, jólakvöld og gamlárskvöld. — Sumar spennistöðvar eru með mjög mikið álag yfir þessi eldunartímabil — jafnvel svo, að hætta er á að þær „slái út“ eða skemmist. Þetta stafar af því, að öll rafmagnsupphitun- in er á, samtímis mikilli eldavéla og ljósa- notkun. Ef húsmæður og aðrir sýndu almennt hag- sýni við notkun straumfrekra tækja, sérstak- lega yfir síðustu 30 mín. hvers eldunartíma- bils, mundi það þýða betri nýtingu raforku- vera og dreifingarkerfa og þar af leiðandi lægra rafmagnsverð. Allir geta haft áhrif á toppinn til hækkun- ar eða lækkunar, en það eru vinsamleg til- mæli til allra, sem hafa rafmagnsupphitun, að þeir gæti hófsemi og minnki álagið eins og mögulegt er á tímabilinu milli kl. 5—6 á aðfangadag jóla og sömuleiðis gamlárskvöld. Gleðileg jól. Kári Þórðarson. Eitt sinn var unglingspiltur sjómaður á mótorbát, sem gerður var út frá Sandgerði. Dag nokkurn fer hann til útgerðarmannsins og biður hann um peninga. Útgerðarmann- inum var mjög annt um að pilturinn eyddi ekki hírunni sinni í óþarfa og að hann ætti sem mest inni um lokin, þegar upp yrði gert. Hann spurði því piltinn: „Og hvað ætlarðu nú að gera við þetta, góði?“ „Eg ætla að senda henni mömmu það,“ svaraði pilturinn. Útgerðarmaðurinn var tortrygginn, en pilturinn sór og sárt við lagði að hann segði satt. Lét þá útgerðarmaðurinn undan og fékk honum peningana. Þegar pilturinn var farinn út, segir útgerð- armaðurinn við þá, sem inni voru: „Eg varð að láta strák angann fá aurana, en ég er alveg handviss um, að hann hefur aldrei átt neina mömmu.“ Það var hér einu sinni lítill drengur, sem átti afmæli fyrsta desember. Þegar hann í fyrsta sinn tók eftir því að alstaðar voru uppi flögg þennan dag, fer hann til pabba síns og segir: „Pabbi, hvernig ætli fólkið hafi frétt það að ég ætti afmæli í dag? Það er alstaðar flaggað.“ Guðlaugur Sigurðsson send- ir Guðmundi Finnbogasyni á Hvoli þessa vísu í tilefni fimmtugsafmælis Guðmundar nú fyrir skemmstu: Heilbrigð sálin hefir völd, hjá þér vinur kæri. Hefurðu lifað hálfa öld! Eg heillaósk þér færi. VVVV^VVVVVVVVVVVVV F A X I — 219
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.