Faxi - 01.06.1964, Síða 9
Yzti hluti
Vogastapa.
anum er hóll lítill, sem Grímshóll nefnist.
Kemur hann allmikið við þjóðsögur. Segir
í Þjóðsögum Jóns Arnasonar, að þar hafi
ungur vermaður, Grímur að nafni, komið
að bæ huldumanns, sem bauð honum að
róa með sér á vetrarvertíð. Lét Grímur til
leiðast. Réru þeir jafnan tveir á báti og
öfluðu vel, höfðu um lokin fengið 10
hundruð til hlutar. Réri Grímur þarna
margar vertíðir og líkaði vel vistin. Tókust
ástir með Grími og dóttur bónda, svo að
hann sótti að lokum reitur sínar, hélt með
þær sem leið liggur suður á Vogastapa og
sást ekki í mannabyggð upp frá því. Er
talið, að bær hludumannsins sé hóllinn efst
á Stapanum, sem upp frá þessu nefndist
Grímshóll.
Mjög hefur þótt villugjarnt og slysahætt
á Vogastapa í myrkri og vondum veðrum.
Villugjarnast var þó talið hjá Grimshól, og
höfðu menn fyrir satt að hólbúar villtu um
fyrir mönnum. Er þess oft getið í annálum
og öðrum frásögnum, einkum frá 19. öld,
að menn yrðu úti á Vogastapa eða hröp-
uðu þar fram af björgunum. Þótti þar
löngum mjög reimt. Hafa sögur um reirn-
leika á þessum stað verið að myndast allt
fram á þennan dag, eftir að bifreiðar urðu
algengust farartæki. Hafa nokkrar þeirra
sagna þegar verið skráðar, en einhverjar
munu óskráðar enn.
Framh.
Aðalfundur
Kaupfélags Suðurnesja
Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja var
ltaldinn í Aðalveri í Keflavík, sunnudag-
inn 31. maí.
Auk stjórnar, deildarstjórna og endur-
skoðenda, voru mættir á fundinum 41
fulltrúi frá öllum deildum félagsins.
Formaður félagsstjórnar, Hallgrímur
Th. Björnsson, setti fundinn og bauð full-
trúa og aðra viðstadda velkomna. Hann
minntist nylátins stjórnarmanns, Kristins
Jónssonar, sem andaðist föstudaginn 29.
niaí í sjúkrahúsi Keflavíkur eftir stutta
en erfiða legu. — Hafði Kristinn ætíð verið
mikill og góður samvinnumaður og löng-
um átt sæti í stjórnum kaupfélagsins. Að
loknu máli formanns, risu fundarmenn
ur sætum í virðingarskyni við hinn látna
sæmdarmann.
Fundarstjórar voru kjörnir Guðni Magn-
usson og Karl Steinar Guðnason og fund-
arritarar Svavar Arnason og Gunnar Arna-
son.
Þá flutti formaður skýrslu félagsstjórnar
og kaupfélagsstjóri Gunnar Sveinsson las
og skýrði reikninga félagsins. Heildarvelta
kaupfélagsins og dótturfélags þess, —
Hraðfrystihúss Keflavíkur h.f., var kr.
98.078.474,93, þar af var sala aðkeyptra
vara kr. 69.302.708,04 og hafði aukizt um
21% frá árinu áður. Mögulegt var að af-
skrifa eignir félagsins eins og lög leyfa og
greiða upp töp fyrri ára með kr. 891.983,00.
Þá flutti framkvæmdastjóri hraðfrysti-
hússins, Benedikt Jónsson, skýrslu um hag
og rekstur hraðfrystihússins. Heildarvelta
var kr. 24.378.571,00. Nettóhagnaður var
kr. 217.513,00, eftir að löglegar afskriftir
höfðu verið gerðar. Fyrirtækið á nú 2 báta,
Bergvík og Hamravík, sem kom til lands-
ins á árinu.
Ur stjórn kaupfélagsins átti að þessu
sinni að ganga Ragnar Guðleifsson, en í
lians stað var kosinn Sigfús Kristinsson.
Fyrsti varamaður, Sæmundur G. Sveins-
son, tekur sæti Kristins heitins Jónssonar
í aðalstjórn félagsins og 1. varamaður kjör-
inn Kristinn Björnsson og 3. varamaður
Helgi Helgason. Þórarinn Ólafsson er 2.
varamaður. Endurskoðandi, Jón Tómas-
son, var endurkjörinn og einnig varaend-
urskoðandi, Asgeir Einarsson.
í fundarhléi þáðu fulltrúar veitingar í
boði kaupfélagsins.
WMjmmmmmmmmmmiím
I 5TEINHUDUN H.F. I
I Jafnt fyrir híbýli sem I
vinnustaði: ULBRIKA I
húðun á GÓLF og
STIGA, án samskeyta.
mikið slitþol, einlitt og
| og litmynztrað. ULBRIKA H
á LOFT og VEGGI.
I Vamar sprungum, spara H
má fínpússningu,
fjölbreytt áferð og
litaval.
Sími 2 38 82
F A XI — 89