Faxi - 01.01.1975, Page 7
íÞRÓTTIR
Fyrsti íslenski alþjódadómarinn í
Við höfum í Faxa verið fremur fá-
orðir um aðra landsl'iðsmenn af Suð-
urnesjum en knattspyrnumennina, en
að komast í þann hóp, úrval þeirra sem
keppa fyr'ir hönd þjóðarinnar, hlýtur
að vera stolt hvers íþrótt'amanns. Við
ætlum að reyna að bæta úr þessu með
því að kynna einn af mörgum körfu-
knattleiksmönnum UMFN, sem komizt
hefur á tindinn, Gunnar Þorvarðarson,
23 ára rafvirkja, 190 cm á hæð. Hann
hefur leikið með meistaraflokki UMFN
í 7 ár, 25 úrvalsleiki, 1 unglin.galands-
l'eik og 7 landsleiki.
Gunnar hóf körfuknat'tleiksiðkanir
15 ára að aldri og varð brátt einn af
öflugustu leikmönnum liðsins. Með ári
hve'r'ju hefur vegur hans farið vaxandi,
unz hann var valinn í landsliðið fyrir
tveimur árum. Á yfi'rstandandi leik-
tímabili hefur Gunnar verið einn af
burðarásum UMFN, sem hefur náð
mjög góðum árangr'i í I. deildinni í
vetur.
Gunnar hefur einnig stundað aðrar
íþróttir, þar á meðal knattspyrnu, og
hefði örugglega náð langt sem mark-
vörður' ,ef meiðsli hefðu ekki orðið til
að hann sa.gði skilið við þá íþrótt.
körfuknattleik
Kristbjörn Albertsson, kennari í
Njarvíkunum, er löngu þekktur sem
mjög góður dómari, bæði í knattspyrnu
og körfuknattleik, en það eru færri sem
vita, að hann fékk fyrstur íslenzkra
körfuknattleiksdómara alþjóðleg rétt-
indi, fyrir tæpum tveimur árum. Próf-
ið tók hann úti í Halle í þýzka alþýðu-
lýðveldinu, og var hinn eini þriggja
íslendinga, sem náði tilskildum ár-
angri.
Síðan hefur Kristjbjörn starfað mik-
ið og dæmt, aðallega í ísl. deildakeppn-
inni, svo og milliríkjal'eiki. Þess utan
dæmir hann — eða hefur í vetur —
í keppni varnarliðsmanna á Keflavík-
urflugvelli, tólf leiki á viku og hlotið
mjög góða dóma fyrir hæfni í starfi.
Þess má geta, að hann hefur núna
öðlast' réttindi til að dæma í keppni
bandarískra háskól'a, sem aðeins úr-
valsdómarar fá, og er þar með búinn
að ná öllum þeim áröngum, sem körfu-
knattleiksdómarar' keppa að.
F A X I
7