Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1975, Side 8

Faxi - 01.01.1975, Side 8
TRYGGDUM SDAVARUT- VEGINUM OG FRYSTIIÐN- AÐINUM NÆGILEGT FDÁR- MAGN „Ég hef hugsað mér að ræða aðeins um starfsgrein mína að þessu sinni, þ.e. fiskframleiðslu og sjávarútveg al- mennt og tengd málefni. Ég mun að- eins s'tikla á stóru og hlaupa úr einu í annað. Hér munu blandast saman mín- ar skoðanir' á þessum málum, skoðanir annarra &g ískaldar staðreyndir í mark- aðsmálum, svo og aðal áhugamál mit't (að undanskildum laxveiðunum), en það er fiskirækt, en þar erum við ís- lendingar greinilega á eftir' ýmsum ná- grannaþjóðum okkar. Tveggja ára starf eyðilagt Fiskirækt er langtíma fjárfes'ting, — það tekur langan tíma að átta sig á staðháttum o.g skilyrðum til ræktunar, og r.ú fyr'ir stutt'u var eýðilagt hér í næsta nágrenni við okkur tveggja ára Fiskveiðar og landhelgismál, ásamt markaðsmálum, hafa verið ofarlega á baugi hjá okkur Is- lendingum að undanförnu, og verða að öllum líkindum áfram næstu vikur og mánuði. A Rotary fundi í Keflavík flutti Gunnar Sveinbjömsson erindi, þa,r sem hann vék að þessum málum, en Gunnar hefur um árabil starfað í frystiiðnaðinum og saltfiskfram- leiðslunni og því gjörkunnugur öllum þeim málum, sem lúta að vinnslu sjávarafurða og málefn- um, sem þeim eru tengd, svo sem útge,rð. Faxi hefur fengið leyfi Gunnars til að birta erindið,. og er það nokkuð stytt. uppbyggingarstarf í sambandi við lax- eldi og það er sárgrætilegt, að slíkt skuli geta skeð svo að segja fyrir fram- an augun á okkur, en við skulum vona að sú saga endurtaki sig ekki, en mig langar til að bera niður í grein sem ég sá nýlega, þar sem talið er að fiskirækt tífaldist til aldamóta ,og vonandi fylgj- umst við með öðrum þjóðum í þeim efnum. Stórfyrirtæki leggja áherzlu á fiskirækt í greininni segir, að mörg stórfyrir- tæki í Evrópu séu nú farin að stunda fiskirækt í stórum stíl og með góðum árangri. Risafyr’irtækið Unilever, sem íslendingar þekkja vel, áætlar að fá 150 tonn af Atlantshafslaxi úr laxeldi- stöð sinni við Inverness í Skotlandi, árlega næstu árin. Annað stórfyrirtæki, British Oxygen, stefnir' að því að fá um 120 tonn af regnbogasilungi úr eldis- stöð sinni við Cumberland. Þá eru nokkur fyrirtæki farin að rækta ostr- ur. Það er' því margt sem bendir til þess, að fiskirækt sé að verða mikil- vægur atvinnuvegur í Bretlandi, og eftirtektarvert er, að það eru stórfyrir- 'tækin, sem hasla sér völl á þessu sviði. Menn þar í landi eru mjög bjartsýnir á framhaldið og telja möguleika á að hægt sé að framleiða allt' að 20 þúsund tonnum af laxi í stöðvum Unilever, árlega. Úr 70 milljón tonna í 128 milljónir Fiskneyzla fer mjög vaxandi í heim- inum. Matvæla- og landbúnaðarstofn- un Sameinuðu þjóðanna hefur áæt'lað, að hún muni aukast úr' 26 pundum á hvert mannsbarn í heiminum í 30 pund árið 1980, en um aldamótin verði fisk- neyzlan 36 pund á mann, eða með öðr- um orðum, að eftirspumin aukist úr 70 millj. tonna árlega í 128 millj. tonna. FAO telur nú, að fiskiræktar'st'öðvar í heiminum framleiði um 4,5 millj. tonna á ári, þar af helmingurinn í Kína. Land eins og Bretland sé því enn á byrjunar- stigi. Tvær lestir af rækju á hektara Fiskir'æktaráhugi stórfyrir’tækjanna st'afar fyrst og fremst af þvi, að erfið- ara og dýrara hefur reynzt að veiða fisk í úthöfunum, með hverju ári. Af þessum sökum hafa Bandaríkjamenn la.gt mikla áherzlu á fiskir'ækt og standa mjög framarlega þar, enda tekið tækn- ina í sína þjónustu og þá l'ætur árang- urinn ekki á sér standa. Fyrirt'ækið Ocean Protein hefur lagt tvær millj. dala í neðansjávarræktunarstöð í grennd við Jamaica, en þar er ætlunin að framleiða hvorki meira né minna en 'tvær lestir af rækjum á hektara á ári, sem er mar.gfalt á við það sem annars staðar þekkist. Gunnar Sveinbjörnsson 8 _ F A X I

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.