Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1975, Side 10

Faxi - 01.01.1975, Side 10
JÖRUNDUR HUNDADAGAKONUNGUR — I. HLUTI Tekið saman af Sigurði Jóhannssyni Slóu eign sinni á Justita og drógu enska fánann afi íslenzkum yfirvöldum leizt ekki ó blikuna. Trampe greifi gefur út yfirlýsingu. I. Stjórnmálaástand í Evrópu á fyrsta tug 19. aldar Árið 1799 komst Napoleon til' valda í Frakklandi eft'ir þá miklu stjórnmála- legu ringulreið, sem ríkt hafði þar frá stofnun franska lýðveldisins 1792. Napóleon efldi ríki sitt mjög og ge’rðist einn umsvifamesti stjórnmálamaður Evrópu. Réði hann lögum og l'ofum á meginlandi Evrópu og þorðu fæstir þjóðhöfðingjar og stjórnmálamenn álf- I þessu blaði hefst greinar- flokkur um Jörund hundadaga- konung, eftir Sigurð Jóhannsson, aðeins 16 ára Keflvíking, sem stundar nám í Gagnfræðaskóla Keflavíkur. Sigurður hefur vakið athygli fyrir góðar ritgerðir, og þótt ungur sé að árum hafa grein- ar efti.r hann birzt í tímaritum, þar á meðal Heima er bezt, og er það nokkuð óvenjulegt. Sigu.rður hefur mikinn áhuga fyrir ætt,- fræði og sagnfræði og er nú þeg- ar orðinn vel heima í þessum greinum, enda dyggilega studdur og hvattur af kennurum sínum. Ritgerðin um Jö.rund er það fyrsta sem birtist í Faxa eftir Sigurð, en vonandi megum við verða þess aðnjótancli að geta b?.rt fleira eftir þennan unga á- hugamann á komandi árum, því Sigurður lætur va,r.la staðar num- ið á ritvellinum á næstunni, — til þess er byrjunin of góð. unnar annað en að sitja og st'anda eins og hann vildi. Enskir stjórnmálamenn vor'u þó undantekning frá þessu, þeir gerðu Napóleoni allt það ógagn sem þeir gátu og áttu í stöðugum ófriði við hann. Þarna áttust' tvö stórveldi við, Eng- land og Frakkland. Þrjú ríki, Danmörk, Svíþjóð og Rúss- l'and, höfðu gert með sér hlu'tleysis- samning ti'l þess að vernda siglingar sínar. Árið 1801 kom Nelson flotaforingi með enska flotadeild til Kaupmanna- hafnar og þröngvaði Dönum til þess að ganga úr hlutleysisbandalaginu. 6 árum síðar, árið 1807, st'óð ófrið- urinn enn. Óttuðust Englendingar' nú að Frakk- ar næðu danska fiotanum á sitt vald. Komu þeir með skipaher í Eyrarsund og gerðu Dönum tvo kosti, annan þann, áð þeir afhentu Englendingum her- flota sinn, eða þá að England myndi þegar í stað segja Danmörku stríð á hendur. Dani'r’ neituðu að afhenda her- flota sinn og settust Englendingar þá um Kaupmannahöfn. Skutu þeir á borgina og léku hana 'illa. Endalokin urðu þau, að borgin gafst upp og Englendingar höfðu danska flot- ann á brot't með sér. Varð þessi at'- burður til þess, að Danir' gengu í l'ið með Frökkum. Þegar hér var komið sögu settu Eng- lendingar hafnbann á Dani. Dönsk kaupför voru tekin og flutt til Eng- lands, hvar sem til þeirra náðist' af Englendingum. Hjálenduh Danmerkur, Island og Noregur, urðu illa ú'ti. Siglingar til landanna tepptust. Af- leiðingin varð vöruþurrð í löndunum sem leiddi til dýrtíðar, og á tímabili leit út' fyrir hungursneyð á íslandi af þessum sökum. Árið 1808 komst aðeins eitt Islandskaupfar á leiðarenda, í gegnurn hafnbann Engl'endinga. Alvar- an blasti við Íslendingum ,héldi svo fram sem horfði næsta sumar var full- víst, áð hungursneyð myndi þá þrúga landslýðiun. II. Ástand í stjórnmáliim og þjóðmálum á íslandi á fyrsta tug 19. aldar (Orstutt ágrip) Um það verður hér aðeins fjall'að í örfáum orðum, enda mun flestum ís- lendingum að nokkru kunnugt um það. ísland var undi'r' Danmörku og var löngum haft útundan. St'jórnfrelsi var sama og ekkert, öll meiriháttar mál þurftu að ganga undir Danakonung og danska embættismenn. Löggjafarvald var algerlega í höndum 10 — F A X I

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.