Faxi - 01.12.1985, Side 20
4
um tveggja ára skeið, en síðustu
24 ár ævi sinnar gekk hann ekki
heill til skógar. Hann var sam-
viskusamur læknir og nærgæt-
inn, en sjálfur sagði hann svo frá,
að hann hafi ekki fundið sig nægi-
lega sterkan í starfinu, því að at-
vinnan: læknisstörfin og áhuga-
málin: hljómlistin hafi um of
dregið hvort frá öðru.
En eftir að hann hafði lokið
embættisprófi fylgdu þessi tvö
viðfangsefni honum alla ævi, — og
tónlistinni gaf hann tómstundir
sínar, og margar næturstundir sat
hann við hljóðfærið, þegar aðrir
sváfu. Fyrstu sönglög hans komu
út er hann var 35 ára gamall, og
alls auðnaðist honum að semja
yfir 200 sönglög, sem hafa verið
gefin út. Hann leitaði mjög víða
fanga hjá ljóðskáldum, og heyrt
hef ég merka tónlistarmenn segja,
að Sigvaldi hafi búið yfir sérstakri
náðargáfu á sviði tónlistar, og hún
fólst í því, hve mikinn næmleika
hann hafði fyrir þvf að fella lag að
ljóði.
Ég kynntist tengdaforeldrum
mínum fyrst, er við Selma trúlof-
uðum okkar í ársbyrjun 1944.
Þau bjuggu þá ennþá í Grindavík.
Heimili þeirra ómaði af tónum og
grasið greri ekki að dyrum. Hann
vann þá ennþá að tónsmíðum, og
ég man eftir að eitt af síðustu lög-
um hans var við ljóðið Snær, eftir
Jón úr Vör, og tileinkaði hann
Selmu það lag. Það ríkti gleði og
frábær gestrisni á heimili þeirra.
Allir voru aufúsugestir, og Gugga
gekk um beina. Listamenn og list-
unnendur voru þar tíðir gestir, og
sumir dvöldu á heimili þeirra í
tíma, og var þetta allt hans tónlist-
arnám.
Sigvaldi þráði að helga sig tón-
listinni, en það þótti þá ekki líf-
vænleg atvinnugrein, og því sett-
ist hann í Menntaskólann og tók
stúdentspróf vorið 1902, og emb-
ættispróf í læknisfræði 1908.
Hann siglir svo til framhaldsnáms
tilDanmerkur 1908—1909, ogþar
kynnist hann hjúkrunarkonu,
Karen Margrethe Mengel-Thom-
sen, og giftu þau sig haustið 1909.
Þar steig hann mikið gæfuspor,
því hún reyndist honum frábær
lífsförunautur til hinstu stundar,
studdi hann í starfi og reyndi að
veita honum sem flestar tóm-
stundir til listsköpunar.
Sigvaldi var héraðslæknir fyrst í
Nauteyrarhéraði og sat að Ármúla
við Isafjarðardjúp og tók sér þá
ættarnafnið Kaldalóns. Þar var
hann í 12 ár, þá 4 ár í Flatey á
Breiðafirði og síðast héraðslæknir
í Keflavíkurhéraði með búsetu í
Grindavík. Þar bjuggu þau hjónin
í 15 ár. Þetta þekkir alþjóð. Hann
varð fyrir alvarlegum heilsubresti
41 árs gamall og var þá frá störfum
A myndinni eru
talið frá vinstri
Selma, kona Jóns
Gunnlaugssonar
lœknis og for-
eldrar hennar
Margrethe og
Sigvaldi Kalda-
lóns. Myndin er
tekin 1934 en
ekki er vitað á
hvaða minninga-
reit þau standa.
STAFAFELL
KEFLAVIK
Nýtískuleg ljósatæki
Toyota og Husqvarna sauma-
vélar
Hrærivélar - Ryksugur
Eldhúsviftur - Þurrkarar
Raftækjaúrval - Ferða-
viðíæki
Utvarpsklukkur
Rafmagnsborvélar m/fylgi-
hlutum
Búsáhöld - Borðbúnaður
Matar og kaffistell
Ittala glervara
Silfurplett - Kertastjakar
Bing & Gröndal jóla og
mæðraplattar - Kristall
Úrvals leikföng frá:
Barbie - Cindy og Matchbox
Fisher Price - Rugguhestar
Bílabrautir - Fótboltaspil
Jólakerti - Jólaskraut
Jólaljósasamstæður - Jólatré
Nýjar vörur daglega
Tölvur frá Sinclair Spectrum
og Commodore - Tölvuforrit
Diskettustöðvar - Stýri-
pinnar
Vasatölvur - Tölvuspil
Times úr - Ljósmyndavörur
STAPAFELL
Simi: 1730 og 2300
lengri eða skemmri tíma. Má þar
nefna Gunnlaug Scheving og
Stein Steinarr. Mörg þekktustu
málverk Gunnlaugs eru þaðan frá
sjávarsíðunni.
Eggert, bróðir hans, var þar oft,
einnig Rikarður Jónsson, mynd-
höggvari, og margir fleiri. Einn af
tryggustu vinum hans var Ragnar
Ásgeirsson ráðunautur. Hann og
kona hans Grethe komu þangað
oft með börn si'n. Ragnar segir á
einum stað í minningu um Sig-
valda: ,,Hann stráði allsstaðar
ástúð í kringum sig.“
Margrethe og Sigvaldi kunnu
vel við sig í Grindavík, og þar voru
þau nær því hálfan starfstíma Sig-
valda. Þeim var tekið þar rausn-
arlega, fyrst og fremst af Garð-
húsahjónunum, og svo af öllum
Grindvíkingum. Þar samdi Sig-
valdi mörg af sínum fögru og
þekktu lögum, — og Eggert bróðir
hans kynnti þau. Einar Kr. Ein-
arsson, fyrrverandi skólastjóri
hér í Grindavík, segir í minning-
argrein um Sigvalda: ,,Mér finnst
þetta Kaldalónstímabil í Grinda-
vík hafi verið eins og menningar-
leg vígsla í héraðinu og áhrifin af
veru hans þar verði aldrei þurrk-
uð út.“
Þótt liðin séu 40 ár frá því Kalda-
lónsljölskyldan flutti héðan frá
Grindavík, hafa vináttubönd ekki
slitnað, hugurinn hefur oft reikað
hingað. Og í dag stend ég hér að
gefnu tilefni. Dóttir Ragnars Ás-
geirssonar, frú Eva og maður
hennar, ÖnundurÁsgeirsson, eru
hér með mér í dag. Eva bað mig að
minnast Sigvalda hér nokkrum
orðum um leið og ég afhenti hér
Grindavíkurkirkju gjöf frá henni,
sem er lágmynd af Sigvalda, eftir
vin hans Rílcarð Jónsson, mynd-
höggvara. Mér er sönn ánægja að
því að tilkynna um þessa fögru
gjöf Evu til kirkjunnar, og hefir
höggvara. Ragnar gaf dóttur sinni
þessa lágmynd fyrir 25 árum.
Mér er sönn ánægja að því að
tilkynna um þessa fögru gjöf
Evu til kirkjunnar, og hefir
sóknarpresturinn, séra Jón Árni
Sigurðsson, tekið við henni og
fundið henni stað. Ég þakl<a frú
Evu mikla virðingu sýnda minn-
ingu tengdaföður míns.
Við Selma slitum aldrei vináttu
við Grindavík, og síðasta dag-
stund hennar heima var helguð
umhugsun um tónlistarferð til
Grindavíkur.
Frú Jónu og séra Jóni Árna Sig-
urðssyni óska ég allra heilla, er
þau nú flytja héðan. Grindvíking-
um óska ég bjartrar framtíðar.
Mér eru kærar minningar héðan,
því að hingað sótti ég hamingju
mína.
Jón Gunnlaugsson.
332 FAXI