Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 4

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 4
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs Formleg opnun skurðstofiideildar Adalstjóm S.K., Ingólfur Falsson formaður, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Jón K. Ólafsson, Ellert Eiríksson og Jón A. Jóhannsson. í sumar hafa staðið yfír breyt- ingar á skurðstofurými sjúkra- húss Keflavíkurlæknishéraðs. Var skurðstofuálman formlega tekin í notkun með hátíðlegri at- höfn föstudaginn 22. nóvember kl. 16:00. Reglubundin starfsemi hefur þó farið fram síðan um miðjan september. Viðstaddir opnunarathöfnina voru, auk stjórnar Sjúkrahússins, lækna og starfsliðs, flestir þeir er lagt höfðu hönd að verki eða stuðlað með öðrum hætti að gerð þessarar glæsilegu skurðstofu- deildar sem líklega er nú sú full- komnasta á landinu. Læknamir Konráð Lúðvíksson, yfírlæknir kvensjúkdómadeildar og Sigurjón Sigurðsson, beinasér- fræðingur og íþróttameinalæknir sýndu og lýstu tækjum og búnaði deildarinnar. Síðan var gestum boðið til kaffiveitinga í fundarsal Verslunarmannafélags Suður- nesja. Þar flutti formaður sjúkra- hússtjórnarinnar, Ingólfur Fals- son ávarp. Þakkaði verktökum góð störf og þakkaði einnig marg- ar góðar gjafir sem borist höfðu. Hann sagði m.a.: Sjúkrahús Keflavíkurhéraðs, var formlega vígt fyrir rúmum 30 árum. Var það byggt með hliðsjón af þeirra tíma kröfum miðað við að einn sjúkrahúslæknir væri í starfi. Árið 1981 var tekin í notk- un ný álma þar sem almennt sjúkrarými var aukið en einnig reist ný fullkomin fæðingadeild sem síðan hefur verið starfrækt. í dag starfa við sjúkrahúsið 6 sér- fræðingar í hluta eða fullu starfi, þannig að ljóst er að umsvif hafa aukist vemlega á síðustu árum. Skurðstofan var áður starfrækt í einu herbergi á efri hæð og var að- gangur að henni auðveldur jafnt fyrir boðna sem óboðna. Þótti slík aðstaða á engan hátt samrýmast nútíma kröfum, einkum hvað varðar hreinlæti og rými. Því var ráðist í að loka hluta af vestur- álmu sjúkrahússins og innrétta nýja skurðstofu með fullkomnum tækjabúnaði. Er framkvæmdum nú að fullu lokið og þykja hafa tekist mjög vel. Sjúkrahúsinu hafa borist veglegar gjafir, bæði frá einstaklingum, félagasamtök- um og fyrirtækjum. Skurðstofan nýja er þannig vel útbúin tækjum, björt og falleg. Ber að færa öllum hlutaðeigendum, sem stuðlað hafa að því að svo vel hefur til tek- ist alúðar þakkir. Slíkur stórhug- ur sem sjúkrahúsinu hefur verið sýndur í orði og verki verður seint full þakkaður. Vonandi verða Suðurnesjabúar aðnjótandi áframhaldandi upp- byggingastarfi í heilbrigðismál- um. Mikið hefur áunnist á síðari árum, en verkefnin sem bíða eru engu minni. Brýnust er þörfin fyrir bætta hjúkrunaraðstöðu aldraðra. Kostnaður við breytingar var um 10 milljónir. Framlag rikis 85%, sveitafélaga 15%. Á fjárlög- um þessa árs eru 3,9 milljónir. Sótt er um fjárveitingar kr. 4,6 milljónir, sem vonast er eftir að komi á næsta ári. „ , ,, Samantekt J.T. Konráð Lúðvtksson, yfirlœknir kven- sjúkdóma- og fœðingardeildar taldi þetta borð og lampana frábœra muni og það besta, sem nú er fáanlegt. Eyjólfur framkvœmdastjóri stendur fyrir enda borðsins og skotrar augum til Karls Steinars Guðnasonar við hinn enda borðsins. Þeir gœtu verið að hugsa hið sama: Suðurnes ávallt í fararbroddi. En hvað hugsa konurn- ar um fœðingarbekkinn? 316 FAXI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.