Faxi - 01.12.1985, Page 4
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs
Formleg opnun skurðstofiideildar
Adalstjóm S.K., Ingólfur Falsson formaður, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Jón K.
Ólafsson, Ellert Eiríksson og Jón A. Jóhannsson.
í sumar hafa staðið yfír breyt-
ingar á skurðstofurými sjúkra-
húss Keflavíkurlæknishéraðs.
Var skurðstofuálman formlega
tekin í notkun með hátíðlegri at-
höfn föstudaginn 22. nóvember
kl. 16:00. Reglubundin starfsemi
hefur þó farið fram síðan um
miðjan september.
Viðstaddir opnunarathöfnina
voru, auk stjórnar Sjúkrahússins,
lækna og starfsliðs, flestir þeir er
lagt höfðu hönd að verki eða
stuðlað með öðrum hætti að gerð
þessarar glæsilegu skurðstofu-
deildar sem líklega er nú sú full-
komnasta á landinu.
Læknamir Konráð Lúðvíksson,
yfírlæknir kvensjúkdómadeildar
og Sigurjón Sigurðsson, beinasér-
fræðingur og íþróttameinalæknir
sýndu og lýstu tækjum og búnaði
deildarinnar. Síðan var gestum
boðið til kaffiveitinga í fundarsal
Verslunarmannafélags Suður-
nesja. Þar flutti formaður sjúkra-
hússtjórnarinnar, Ingólfur Fals-
son ávarp. Þakkaði verktökum
góð störf og þakkaði einnig marg-
ar góðar gjafir sem borist höfðu.
Hann sagði m.a.:
Sjúkrahús Keflavíkurhéraðs,
var formlega vígt fyrir rúmum 30
árum. Var það byggt með hliðsjón
af þeirra tíma kröfum miðað við
að einn sjúkrahúslæknir væri í
starfi. Árið 1981 var tekin í notk-
un ný álma þar sem almennt
sjúkrarými var aukið en einnig
reist ný fullkomin fæðingadeild
sem síðan hefur verið starfrækt. í
dag starfa við sjúkrahúsið 6 sér-
fræðingar í hluta eða fullu starfi,
þannig að ljóst er að umsvif hafa
aukist vemlega á síðustu árum.
Skurðstofan var áður starfrækt í
einu herbergi á efri hæð og var að-
gangur að henni auðveldur jafnt
fyrir boðna sem óboðna. Þótti slík
aðstaða á engan hátt samrýmast
nútíma kröfum, einkum hvað
varðar hreinlæti og rými. Því var
ráðist í að loka hluta af vestur-
álmu sjúkrahússins og innrétta
nýja skurðstofu með fullkomnum
tækjabúnaði. Er framkvæmdum
nú að fullu lokið og þykja hafa
tekist mjög vel. Sjúkrahúsinu
hafa borist veglegar gjafir, bæði
frá einstaklingum, félagasamtök-
um og fyrirtækjum. Skurðstofan
nýja er þannig vel útbúin tækjum,
björt og falleg. Ber að færa öllum
hlutaðeigendum, sem stuðlað
hafa að því að svo vel hefur til tek-
ist alúðar þakkir. Slíkur stórhug-
ur sem sjúkrahúsinu hefur verið
sýndur í orði og verki verður seint
full þakkaður.
Vonandi verða Suðurnesjabúar
aðnjótandi áframhaldandi upp-
byggingastarfi í heilbrigðismál-
um. Mikið hefur áunnist á síðari
árum, en verkefnin sem bíða eru
engu minni. Brýnust er þörfin
fyrir bætta hjúkrunaraðstöðu
aldraðra.
Kostnaður við breytingar var
um 10 milljónir. Framlag rikis
85%, sveitafélaga 15%. Á fjárlög-
um þessa árs eru 3,9 milljónir.
Sótt er um fjárveitingar kr. 4,6
milljónir, sem vonast er eftir að
komi á næsta ári. „ , ,,
Samantekt J.T.
Konráð Lúðvtksson, yfirlœknir kven-
sjúkdóma- og fœðingardeildar taldi
þetta borð og lampana frábœra muni
og það besta, sem nú er fáanlegt.
Eyjólfur framkvœmdastjóri stendur
fyrir enda borðsins og skotrar augum
til Karls Steinars Guðnasonar við
hinn enda borðsins. Þeir gœtu verið
að hugsa hið sama: Suðurnes ávallt í
fararbroddi. En hvað hugsa konurn-
ar um fœðingarbekkinn?
316 FAXI