Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 51

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 51
Valdimar vinnur að um þessar mundir er hönnun skrifstofuhús- gagna fyrir trésmiðjur 3K á Sel- fossi í samvinnu við aðra. Flestir, ef ekki allir íslendingar hafa heyrt getið um Sóley, stól Valdimars Harðarsonar, arki- tekts. Stóllinn hefur vakið svo mikla athygli, frá því að hann var fyrst sýndur opinberlega í Þýska- landi í janúar 1984, að ljóst er að Valdimar hefur haslað sér völl sem virtur hönnuður á alþjóðleg- um vettvangi. Stóllinn hefur verið sýndur á nokkrum helstu hús- gagnasýningum heims og’ tugir blaða og tímarita hafa birt greinar um stólinn. Hann hefur hlotið 3 alþjóðleg verðlaun í Bandaríkjunum og Þýskalandi. Sagan af tilurð stólsins er í sjálfu sér táknræn fyrir það hve miklu má í raun hrinda í framkvæmd, komi til þolinmæði, vandvirkni, hugvit og síðan vilji og þor til að fylgja hugmyndinni eftir. Það er ekki ástæð til að rekja þá sögu ítarlega, en þó er rétt að geta þess, að trú Valdimars á Sóley var slík, að hann hafði samband við framkvæmdastjóra fyrirtækisins Kusch & Co., í Vestur-Þýskalandi, og bauð þeim stólinn. Þetta fyrir- tæki, sem er eitt af 10 stærstu fyr- irtækjum í vestur-þýskum hús- gagnaiðnaði, fékk strax áhuga á stólnum og það varð svo úr að fyr- irtækið varð sér úti um einkaleyfi á framleiðslu stólsins um allan heim, og er framleiðslan nú hafin í Austur-Asíu. í grein, í tímaritinu Möebel Int- erior Disign fyrir skömmu, er þess getið að stóll Valdimars, sé þriðja stökkbreytingin, sem átt hefur sér stað í gerð svokallaðra klappstóla frá upphafi. Sú fyrsta átti sér stað árið 1942, en þá kom fyrst fram á sjónarsviðið stóll sem hægt var að brjóta saman. Önnur meginbreytingin varð síðan árið 1968 og síðasta breytingin núna, en hún er fyrst og fremst fólgin í því, að útilokað er að stóllinn falli saman eftir að sest er í hann. Sjálfur er stóllinn dæmi um það hvernig á einstæðan hátt hefur tekist að sameina í einum efnis- legum hlut, fegurö og hag- kvæmni, enda var haft eftir fram- kvæmdastjóra Kusch fyrirtækis- ins, stuttu eftir að ákveðið var að fyrirtæki hans hæfi framleiðslu stólsins, að um væri að ræða hlut sem ætti eftir að verða sígildur. Auk þess að framleiða Sóley, hefur þýska fyrirtækið nú hafið framleiðslu á felliborði, sem Valdimar hefur teiknað og sem nota á með Sóley. Borðið er fram- leitt bæði ferkantað og hringlaga og hefur þegar vakið talsverða eft- irtekt. í lok þessa árs, eða í upphafi þess næsta er einnig væntanleg á markað úrfærsla á Sóley úr tré, sem Kusch & Co., mun líka fram- leiða. Þau atriði, sem hér hafa verið rakin, þ.e.a.s. dugnaður og þolin- mæði einstaklings við að koma á framfæri eigin hugmynd auk inn- leggs hans í starfsgrein, sem vafa- laust á eftir að koma íslenskum húsgagnaiðnaði til góða um ókomin ár, eru í raun hvert út af fyrir sig, næg ástæða til styrkveit- ingar úr starfsgreinasjóði Rotary á íslandi. Að fyrsta viðurkenning sjóðsins, skuli vera fyrir verk, þar sem allir þessir þættir koma saman í einum hlut, er okkur því sérstakt ánægjuefni. Um leið og ég, fyrir hönd Starfs- greinasjóðs Rotary á Islndi og ís- lensku Rotaryhreyfingarinnar, óska þér til hamingju, vil ég biðja þig Valdimar Harðarson að korna hér og veita viðtöku þessari viður- kenningu. Gjörðu svo vel! — Ég óska þér til hamingju meó þriburana kunningi. Og eru nú þetta drengir eda stúlk- ur eóa hvort tveggja? — Mér skildist á yfirsetu- konunni, að þaö væri svona sinn helmingurinn af hvoru. Það gerðist eina nóttina, að fíll strauk úr dýragarði, og strax morguninn eftir hringdi síminn hjá lögreglunni. Það var gömul kona sem sagði æstri röddu: —- Komið hingaö á stund- innll Það er eitthvert gríöar- stórt kvikindi úti í garöinum hjá mér, sem er að hamast við að slíta upp kálið mitt með róf- unni! — Ha, og hvað gerir það við kálið yðar? — Þið mynduð ekki trúa mér, þó ég segöi ykkur þaö, svaraði sú gamla. 0 Gvendur vitlausi bauð eitt sinn vini sínum í bíltúr upp í fjöll, og ók hratt. Vinurinn var dauðhræddur og gat loks ekki orða bundist: — Ég verð dauðhræddur þeg- ar þú keyrir svona hratt íöllum þessum kröppu beygjum, sagði hann. — Gerðu þá eins og ég. Lok- aöu bara augunum í beygjun- um. Óskum öllum Garðbúum og öðrum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla ogfarsæls komandi árs, með þökk fyrir samskiptin á liðnu ári HREPPSNEFND GERÐAHREPPS ©íebiíeg jóí Vistmenn þakka öllum þeim, er létt hafa þeim stundir á liðnu ári. Guð blessi ykkur öll. Vistmenn á Garðvangi og Hlévangi FAXI 363
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.