Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 26

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 26
ljós, að skrifstofu- og stjórnunar- kostnaður þeirra samanlagður er allt að 50% hærri en hjá Hitaveit- unni og er það trú mín, að á þeim lið ætti að vera hægt að ná umtals- verðum sparnaði. 3. í birgðahaldi ætti einnig að vera hægt að spara umtalsvert, bæði með stærri og hagstæðari innkaupum (útboðum) og á það reyndar einnig við um fram- kvæmdir og rekstur. Þá ættu birgðir Hitaveitunnar einnig að geta verið minni en þurft hefur hjá rafveitunum samtals. Að lokum ætla ég svo að kynna lauslega grófa rekstraráæutlun sem ég hef gert á föstu verðlagi fyrir næstu 7 ár (TAFLA 3). Þar sem vitað er að Landsvirkjun stefnir að því að um enn meiri raunlækkun raforku geti orðið að ræða en orðið er og að Hitaveitan stefnir að því að gjaldskrá hennar verði ekki hærri en í Reykjavík og nágrenni, er líklegt að tekjur séu að hluta ofáætlaðar. Allar forsend- ur áætlunarinnar er að finna neðst á blaðinu en þó er eitt sem ég vildi vekja athygli á, en það er að þó sagt sé að miðað sé við fast verðlag á það ekki við að öllu leyti í sam- bandi við vatnssölu til Varnarliðs- ins. í samningnum við þá, sem er í U.S.$, er nefnilega innifalin föst árleg hækkun til mótvægis við verðbólgu í Bandaríkunum, og því er það, að þessi liður hækkar langt umfram aðra og er því 1992 komin í 46% tekna úr 33,4% 1986. Annað sem ég vil benda á er það, að miðað við núverandi greiðslu- skuldbindingar Hitaveitunnar í erlendri mynt verða þær jafnar og tekjur veitunnar í erlendri mynt árið 1989 og þaðan í frá verða tekj- urnar sífellt hærri og greiðslurnar lægri. Aætluð framkvæmdaþörf við aðveitustöðvar og línur hefur ver- ið áætluð vera á bilinu 230— 250 m.kr. þar af u.þ.b. 60 m.kr. nú á næsta ári. Inn í þessari áætl- un er ekkert í sambandi við rið- breytistöðina á Keflavíkurflug- velli en vafalaust þarf að koma til einhverra fjárfestinga þar á tíma- bilinu. Ekki liggja fyrir áætlanir enn um framkvæmdaþörf í innan- bæjarkerfum rafmagns og um þær hugmyndir sem nú bera hæst í virkjana- og hitaveitumálum mun Albert Albertsson ræða hér á eftir. Til nánari skýringa og fróðleiks ætla ég síðan að láta fljóta með MYNDIR NR. 5 og 6, en þær sýna hvernig áætlaðar brúttótekj- ur skiptast milli einstakra liða og sömule'iðis hvernig fjármagnsút- streymið, ef svo má að orði kom- ast, skiptist. Ég vona svo að fundargestir séu einhvers vísari um fjárhagsstöðu Hitaveitu Suðurnesja á þessum tímamótum og vil að endingu þakka Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum þetta tækifæri til að kynna þessi mál. Fjölbrautaskóli Suðurnesja Innritun nýnema Vorönn 1986 Innritun fyrir nýnema ó vorönn 1986 fer fram á skrifstofu skólans og lýkur föstudaginn 20. desember 1985. Öldungadeild Vorönn 1986 Nýir nemendur í öldungadeild eru beðnir að skila skriflegum umsóknum á skrifstofu skólans, Sunnubraut 36, Keflavík, í síðasta lagi föstudaginn 20. desember 1985. Skólameistari TILKYIMIMING Keflavík — Njarðvík — Grindavík — Gullbringusýsla Samkvœmt lögum nr. 46/1977 og reglu- gerð nr. 16/1978, er hverjum og einum óheimilt að selja skotelda eöa annaö þeim skylt nema hafa til þess leyfi lög- reglustjóra. Þeir sem hyggja á sölu framangreinds varnings, sendi umsóknir sínar til yfirlög- regluþjóns í Keflavík, eigi síðar en 20. desember 1985. Að öðrum kosti verða umsóknir ekki teknar til greina. Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögreglu- þjóni á lögreglustöðinni í Keflavík. Lögreglustjórinn í Gullbringusýslu Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík 338 FAXI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.