Faxi - 01.12.1985, Page 26
ljós, að skrifstofu- og stjórnunar-
kostnaður þeirra samanlagður er
allt að 50% hærri en hjá Hitaveit-
unni og er það trú mín, að á þeim
lið ætti að vera hægt að ná umtals-
verðum sparnaði.
3. í birgðahaldi ætti einnig að
vera hægt að spara umtalsvert,
bæði með stærri og hagstæðari
innkaupum (útboðum) og á það
reyndar einnig við um fram-
kvæmdir og rekstur. Þá ættu
birgðir Hitaveitunnar einnig að
geta verið minni en þurft hefur hjá
rafveitunum samtals.
Að lokum ætla ég svo að kynna
lauslega grófa rekstraráæutlun
sem ég hef gert á föstu verðlagi
fyrir næstu 7 ár (TAFLA 3). Þar
sem vitað er að Landsvirkjun
stefnir að því að um enn meiri
raunlækkun raforku geti orðið að
ræða en orðið er og að Hitaveitan
stefnir að því að gjaldskrá hennar
verði ekki hærri en í Reykjavík og
nágrenni, er líklegt að tekjur séu
að hluta ofáætlaðar. Allar forsend-
ur áætlunarinnar er að finna neðst
á blaðinu en þó er eitt sem ég vildi
vekja athygli á, en það er að þó
sagt sé að miðað sé við fast verðlag
á það ekki við að öllu leyti í sam-
bandi við vatnssölu til Varnarliðs-
ins. í samningnum við þá, sem er
í U.S.$, er nefnilega innifalin föst
árleg hækkun til mótvægis við
verðbólgu í Bandaríkunum, og
því er það, að þessi liður hækkar
langt umfram aðra og er því 1992
komin í 46% tekna úr 33,4% 1986.
Annað sem ég vil benda á er það,
að miðað við núverandi greiðslu-
skuldbindingar Hitaveitunnar í
erlendri mynt verða þær jafnar og
tekjur veitunnar í erlendri mynt
árið 1989 og þaðan í frá verða tekj-
urnar sífellt hærri og greiðslurnar
lægri.
Aætluð framkvæmdaþörf við
aðveitustöðvar og línur hefur ver-
ið áætluð vera á bilinu 230—
250 m.kr. þar af u.þ.b. 60 m.kr.
nú á næsta ári. Inn í þessari áætl-
un er ekkert í sambandi við rið-
breytistöðina á Keflavíkurflug-
velli en vafalaust þarf að koma til
einhverra fjárfestinga þar á tíma-
bilinu. Ekki liggja fyrir áætlanir
enn um framkvæmdaþörf í innan-
bæjarkerfum rafmagns og um
þær hugmyndir sem nú bera hæst
í virkjana- og hitaveitumálum
mun Albert Albertsson ræða hér á
eftir.
Til nánari skýringa og fróðleiks
ætla ég síðan að láta fljóta með
MYNDIR NR. 5 og 6, en þær
sýna hvernig áætlaðar brúttótekj-
ur skiptast milli einstakra liða og
sömule'iðis hvernig fjármagnsút-
streymið, ef svo má að orði kom-
ast, skiptist.
Ég vona svo að fundargestir séu
einhvers vísari um fjárhagsstöðu
Hitaveitu Suðurnesja á þessum
tímamótum og vil að endingu
þakka Sambandi sveitarfélaga á
Suðurnesjum þetta tækifæri til að
kynna þessi mál.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Innritun nýnema
Vorönn 1986
Innritun fyrir nýnema ó vorönn 1986 fer
fram á skrifstofu skólans og lýkur
föstudaginn 20. desember 1985.
Öldungadeild
Vorönn 1986
Nýir nemendur í öldungadeild eru
beðnir að skila skriflegum umsóknum á
skrifstofu skólans, Sunnubraut 36,
Keflavík, í síðasta lagi föstudaginn 20.
desember 1985.
Skólameistari
TILKYIMIMING
Keflavík — Njarðvík —
Grindavík — Gullbringusýsla
Samkvœmt lögum nr. 46/1977 og reglu-
gerð nr. 16/1978, er hverjum og einum
óheimilt að selja skotelda eöa annaö
þeim skylt nema hafa til þess leyfi lög-
reglustjóra.
Þeir sem hyggja á sölu framangreinds
varnings, sendi umsóknir sínar til yfirlög-
regluþjóns í Keflavík, eigi síðar en 20.
desember 1985. Að öðrum kosti verða
umsóknir ekki teknar til greina.
Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögreglu-
þjóni á lögreglustöðinni í Keflavík.
Lögreglustjórinn í Gullbringusýslu
Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík
og Njarðvík
338 FAXI