Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 57
GUÐMUNDUR B. JONSSON VOGUM
FRIÐRIK ATTUNDI
OG BENEDIKT
í SUÐURKOTI
Kristján 9undi konungur Dan-
merkur og íslands, lést 1906 og
tók þá við sonur hans Friðrik
8undi, var hann talinn íslending-
um góðviljaður, enda lét hann
ekki bíða að heimsækja ísland,
því 1907 kom hann með fríðu
föruneyti á konungsskipinu
Birma ásamt fleiri skipum, var
margt gert til að honum yrði ferð-
in sem minnisstæðust.
Eitt sérstæðasta ferðalag, og að-
alferðalagið, var til Þingvalla,
Geysis og Gullfoss. Voru sam-
göngur hér sannarlega síst boð-
legar kóngafólki svo ekki sé meira
sagt, enda mun þetta hafa verið
hin sögulegasta ferð og margt um
hana skrafað og skrifað, skal ekki
farið nánar út í það hér heldur
minnast atviks eins manns, sem
kom þar skemmtilega við sögu,
Benedikt Pétursson frá Suðurkoti og kona hans Sig-
rfður Brynjólfsdóttir. Á milli þeirra er iítill gestur.
svo það ekki gleymist heldur
geymist.
Maður hét Benedikt Pétursson
frá Suðurkoti í Vogum f. 23.5.
1867, d. 15.9.1954, þá 40 ára er
þetta gerðist. Benedikt var mörg-
um kunnugur, hafði gott peninga-
vit, traustvekjandi, orðheldinn,
áreiðanlegur oghélt fast fram sínu
máli og sínum rétti. Sagt var um
Benedikt, að afloknum aðalrétt-
um, þegar uppboð hófst á óskila-
lömbum, hafi orðið einhver mein-
ingarmunur um lamb, er sumir
töldu vera gimbralamb en aðrir
það vera hrútlamb kollótt, Bene-
dikt hafði talið þetta vera gimbur,
er öll kurl komu til grafar var
þetta hrútur, þá hafði Benedikt átt
að segja: , ,Mér er sama þó það sér
hrútur, það er gimbur samt“.
Þannig gaf hann ekki eftir sitt álit
(Síeíúíeg jóí!
©ott og far^œít nýtt ár!
Þökkum
viðskiptin á
líðna árinu.
VERSLUNARBANKI ÍSLANDS
KEFLAVÍK
FAXI 369