Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 57

Faxi - 01.12.1985, Page 57
GUÐMUNDUR B. JONSSON VOGUM FRIÐRIK ATTUNDI OG BENEDIKT í SUÐURKOTI Kristján 9undi konungur Dan- merkur og íslands, lést 1906 og tók þá við sonur hans Friðrik 8undi, var hann talinn íslending- um góðviljaður, enda lét hann ekki bíða að heimsækja ísland, því 1907 kom hann með fríðu föruneyti á konungsskipinu Birma ásamt fleiri skipum, var margt gert til að honum yrði ferð- in sem minnisstæðust. Eitt sérstæðasta ferðalag, og að- alferðalagið, var til Þingvalla, Geysis og Gullfoss. Voru sam- göngur hér sannarlega síst boð- legar kóngafólki svo ekki sé meira sagt, enda mun þetta hafa verið hin sögulegasta ferð og margt um hana skrafað og skrifað, skal ekki farið nánar út í það hér heldur minnast atviks eins manns, sem kom þar skemmtilega við sögu, Benedikt Pétursson frá Suðurkoti og kona hans Sig- rfður Brynjólfsdóttir. Á milli þeirra er iítill gestur. svo það ekki gleymist heldur geymist. Maður hét Benedikt Pétursson frá Suðurkoti í Vogum f. 23.5. 1867, d. 15.9.1954, þá 40 ára er þetta gerðist. Benedikt var mörg- um kunnugur, hafði gott peninga- vit, traustvekjandi, orðheldinn, áreiðanlegur oghélt fast fram sínu máli og sínum rétti. Sagt var um Benedikt, að afloknum aðalrétt- um, þegar uppboð hófst á óskila- lömbum, hafi orðið einhver mein- ingarmunur um lamb, er sumir töldu vera gimbralamb en aðrir það vera hrútlamb kollótt, Bene- dikt hafði talið þetta vera gimbur, er öll kurl komu til grafar var þetta hrútur, þá hafði Benedikt átt að segja: , ,Mér er sama þó það sér hrútur, það er gimbur samt“. Þannig gaf hann ekki eftir sitt álit (Síeíúíeg jóí! ©ott og far^œít nýtt ár! Þökkum viðskiptin á líðna árinu. VERSLUNARBANKI ÍSLANDS KEFLAVÍK FAXI 369

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.