Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 38

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 38
MINNING JÚLÍUS EGGERTSSON MÚRARI F. 12.07. 1904 - D. 23.11. 1985 Þeir eru að kveðja einn og einn, mennirnir sem lifðu manndóms- árin þegar ég kom til Keflavíkur veturinn 1941. Þá var öðruvísi hér um að litast en í dag. Keflavík var aðeins 1200 manna kauptún og allir sem vettlingi gátu valdið unnu við sjávarafla. Mannlífið var mjög gott og gagnkvæm virðing meðal manna, hvort heldur þeir voru atvinnuveitendur eða þiggj- endur. Keðja hinna vinnandi handa var sterk, bæði til sjós og lands, hvergi veikur hlekkur. Þetta var eitt af stríðsárunum svo- kölluðu og peningar og betri lífs- afkoma í sjónmáli hjá okkur ís- lendingum, þrátt fyrir hildarleik- inn mikla sem við fórum ekki var- hluta af. Vertíðin 1941 var bæði gæfta- söm og gjöful. Hörð var keppnin um efsta aflasætið þá, eins og svo oft áður og síðar. Að þessu sinni var það vélbáturinn Guðfinnur, ca. 22 tonna, sem skilaði mestum afla á land. Formaður var hinn kunni aflamaður Guðmundur Guðfinnsson, en landformaður var Júlíus Eggertsson. Hann hef- ur nú lokið lífsgöngu sinni. Hann andaðist á Borgarspítalanum, að morgni, hinn 23. nóv. sl. eftir langvarandi vanheilsu. Júlíus fæddist hinn 12. júlí 1904, að Hávarðarstöðum í læir- ársveit í Borgarfjarðarhéraði. For- eldrar hans voru hjónin Halldóra Jónsdóttir og Eggert Ólafsson. Júlíus ólst upp í föreldrahúsum og var 9. í röðinni af 11 systkin- um. Aðeins tvö þeirra lifa hann, þau eru Eggert, vinnumaður að Arnbjargarlæk og Ólöf búsett hér í Keflavík, gift Guðmundi Jóns- syni. Júlíus hefur snemma farið að taka til hendi, eins og títt var með- al bama í sveitum landsins. Hann var kvikur á fæti og snar í snún- ingum og því mjög liðtækur verk- maður. Sem unglingur var hann í ungmennafélagi sveitarinnar og iþróttir mun hann eitthvað hafa stundað, aðallega íslenska glímu. Eins og önnur ungmenni í þá daga, hafði hann mikið yndi af út- reiðum og hestamennsku. A uppvaxtarámm Júlíusar var mikil bindindishreyfing í landinu og létu ungmennafélögin mjög til sín taka í þeim málum. Júlíus var alla tíð andvígur ofnotkun áfeng- is. Þó átti hann alla jafnan hress- ingu til að gæða gestkomandi á, á góðri stund. Sjálfur neytti hann víns í mjög litlum mæli og líklega aldrei svo, að hann fyndi fyrir áhrifum. Mikið var um það á fyrri hluta aldar, að menn úr sveitum lands- ins leituðu til Suðurnesja á vetrar- vertíð, bæði í peninga og ham- ingjuleit. Júlíus var einn þeirra. Ungur að árum fór hann ásamt Ólafi, eldri bróður sínum, á vetr- arvertíð í Sandgerði. Þeir voru harðduglegir og liprir verkmenn, enda eftirsóttir. Þeir festu síðar báðir rætur hér í Keflavík. Ólafur lést fyrir aldur fram fyrir mörgum árum. Júlíus kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Guðrúnu Berg- mann þann 7. jan. 1934. Þau reistu sér hús í útjaðri kauptúns- ins, eins og það var þá. Húsið stóð á fallegum stað, við allmikil tún sem Stefán faðir Guðrúnar undir- bjó til ræktunar og nytjaði síðan. IJúsið var og er tvær hæðir og kjallari og hafa þau alla tíð búið á neðri hæðinni. Sigríður Gísladóttir býr með sonum sínum á efri hæðinni. Hún var gift Þorsteini bróður Guðrúnar, en þau byggðu húsið í félagi með þeim Guðrúnu og Júlíusi. Mikill kærleikur hefur alla tíð ríkt milli hæðanna og verður það harmi huggun fyrir Guðrúnu, að eiga svo góða sambýliskonu að, þegar frá líður. Böm þeirra Guðrúnar og Júlí- usar eru, Guðlaug Bergmann, gift Valgeiri Helgasyni, þau búa í Ytri-Njarðvík, Guðmundur Rún- ar býr með Maríu Baldursdóttur í Keflavík og Ólafur giftur Svan- laugu Jonsdóttur, þau búa einnig í Keflavík. Samtals em afkom- endurnir orðnir 17 að tölu. Snemma á fimmta áratugnum hætti Júlíus alfarið vinnu við sjáv- arútveginn og réði sig sem hand- langara hjá múrara, sem Tfausti hét. Fólksfjölgun var hér mikil á þessum ámm. Bandaríska setu- liðið settist að á Miðnesheiðinni og lagði hinn fræga Keflavíkur- flugvöll. Herinn hefur allar götur síðan verið mikill atvinnuveit- andi. Af þeim sökum fluttust menn hingað hvaðanæva af land- inu í atvinnuleit, og þar af leið- andi óx Keflavík og varð fljótlega yfir 5000 manna bær. Handlagnir menn fengu vinnu við alls konar iðnað og var Júlíus einn þeirra. Hann komst fljótlega upp á lagið við múrverkið og vann lengst af með Valdimar Gíslasyni, múrara- meistara, við iðnina. Það var algengt eftir stríðsárin, að menn sem lengi höfðu unnið við sömu iðn, fengju fullgild rétt- indi með ráðherrabréfi. Ólafur Thors veitti Júlíusi sveinsréttindi í múrverki árið 1951. Þann tíma sem Júlíus vann við múrverk, var mikið um það að gömul hús voru forsköluð, sem kallað var og utan á ný hús var settur skeljasandur eða hrafntinna og silfurberg. Júlí- us var sérlega laginn við þessi störf og mörg eru húsin, enn í dag með handbragði hans. Júlíus veiktist hastarlega vorið 1960 af heilahimnubólgu, hann lá meðvitundarlaus nokkra daga milli vonar og ótta. Hann náði sér furðu vel aftur, en gekk þó aldrei heill til skógar eftir þetta áfall. Múrverkið reyndist nú of erfitt fyrir hann, en honum bauðst hús- varðarstarf hjá bifreiðaverkstæði S.B.K., sem hann rækti af árvekni og samviskusemi. Heilsunni hrakaði smám saman og svo fór, að fyrir 6 árum hætti hann allri vinnu eftir að hafa unnið hálfan daginn um nokkurt skeið. Júlíus var félagslyndur og var fjörugur spilamaður. Hann var meðlimur í Skákfélagi Keflavíkur og var mjög virkur félagi. Hann var góður skákmaður og eftirsótt- ur taflfélagi, sökum þess hve líf- lega hann teíldi. Júlíus og Guð- rún kona hans voru dansunnend- ur og voru stofnendur af hinum vinsæla Hjónaklúbbi Keflavíkur. Eftir að Júlíus hætti alfarið að vinna hrakaði heilsu hans smám saman frá ári til árs. Hann þráði það eitt að fá að vera heima, heim- ilið var honum allt. Guðrún eigin- kona hans sá svo um, að honum leið eins og best var á kosið. Hann andaðist eins og áður segir 23. nóv. sl. eftir að hafa verið án með- vitundar í mánuð. Veikindi Júlíusar voru ekki á torg borin, hann bar þau með stillingu og karlmennsku og var aldrei á honum að heyra að neitt amaði að. Nú koma mér í hug ljóðlínur úr kvæðinu — Dropatal eftir Guðm. Guðmundsson, skólaskáld. Ijokið er dagsins ys og erli yfir stígur húmid dökkt. Við vorum svilar, ég og Júlíus, giftir sinn hvorri systurinni. Við höfum átt margar góðar samveru- stundir, og nú að leiðarlokum kveð ég góðan dreng og þakka samfylgdina. Hérna lágu léttu sporin, löngu horfin, sama veg. Sumarblíðu sólskinsvorin saman gengu þeir og ég, vinir mínir, — allir, allir, eins og skuggar liðu þeir inn í rökkurhljóðar hallir, hallir dauðans, — einn og tveir, einn og einn, — og tveir og tveir. Við hjónin vottum Guðrúnu og börnum þeirra hjóna okkar dýpstu samúð og biðjum Drottin um styrk þeim til handa. Böðvar Þ. Pálsson 350 FAXI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.