Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 77

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 77
Leikfélag Grindavíkur Revían Grindavík ’85 Gíetníeg jóí Höfundar: Hópvinna 12 höfunda , ,Það var erfitt verk að ná saman 40—50 manns til að vinna að þess- ari revíu og það tókst raunar ekki fyrr en síðustu vikuna fyrir sýji- ingu,“ sagði Lúðvík Jóelsson for- maður Leikfélags Grindavíkur, þegar rætt var við hann að lokinni sýningu í ,,Kvennó“ leikhúsi Grindvíkinga. ,,Þetta er 10 ára afmælissýning L.G. en það var stofnað 15. júlí 1975. Okkur þótti rétt að bregða svolítið út af vanan- um og færa upp gamanmál í revíu- stíl, þar sem hægt væri að skoða samfélagið í skoplegu ljósi. Einnig gætu félagar í L.G. sýnt á sér nýjar hliðar og svo lumar alltaf einn og einn í bænum á hæfileikum sem koma að góðu gagni í revíu.“ Lúðvfk var mjög þakklátur öll- um þeim sem unnu að sýningunni fyrir frábær störf og vonaðist til þess að L.G. fengi að njóta krafta þeirra sem lengst og ber þar að nefna þá sem unnu við að leika, sjá um svið og búninga, ljós, förð- un, leikskrá, undirleik og margt fleira. Og vissulega hefur allt þetta fólk unnið gott verk. Revían, sem var sambland af nýju og gömlu, — stælt og frumsamið var vel flutt og vakti mikla kátínu, hæfilega blönduð bundnu og óbundnu máli. Atriðin hæfilega löng, — og efnið aldrei teygt um of. Sviðið einfalt og í góðu samræmi við efn- ið sem flutt var hverju sinni. Bún- ingar og gervi leikenda sýndi að ekld var kastað höndunum til neins, — allt vandað og vel unnið. Að sjálfsögðu voru þeim málum sem eru efst á baugi og hafa verið að undanförnu, gerð góð skil og skemmtileg. L.G. féll ekki í þá gryiju að skopast um of af þeim atburðum sem vakið hafa athygli fjölmiðla á Grindavlk á umliðnu misseri, — heldur er farið um þá mildum höndum. Á engan hallað, — enginn særður og allt miðað við að laða fram bros á vör þegar svartasta skammdegið nálgast. Menn fóru því með sól í sinni að sýningu lokinni í Kvennó, sem hefur tekið miklum stakkaskipt- um. Innanhúss allt nýmálað og lagfært á margan máta í leikhús- stfl. Guðveig Sigurðardóttir, sögu- maður revíunnar kom fyrst í ljós- geislann frá þeim Jóni Thorberg og Helga Enokssyni, sem önnuð- ust þá hlið mála á sýningunni með prýði, og leiddi menn síðan aftur og fram á þessari öld. Kom Guð- veig víða við. Á sjónum, í síldinni, á Víkurviljann, í Svartsengi, í Bláuhryllingabúðina, ílaxeldið, á bæjarstjórnarfund í saumaklúbb og sitthvað fleira, í slagtogi með mönnum eins og Lalla vinkli, Simba sjómanni og Magga déskota, svo að aðeins nokkrir séu nefndir. Höfðu leikhúsgestir mikla skemmtan af samfylgdinni, sem lauk með afhjúpun á miklum minnisvarða í héraði, sem reynd- ist vera Jón Gröndal, í kúreka- klæðum og gott ef ekki „sheriff‘, úr villta vestrinu. Fór þetta Joni vel, svo sem heyra mátti af góðum undirtektum viðstaddra. Hvað flutning snertir á revíunni, er varla hægt að nefna einn frem- ur en annan. Allir stóðu sig vel, en athygli vakti þó söngur og dans ívars Þórhallssonar. Svifléttur og gamansemin geislaði af andlitinu. Lúðvík Jóelsson sýndi hann er engu síðri gamanvísnasöngvari en hann er í öðrum þáttum leik- listarinnar, að leikstjórn meðtal- inni, sem hann annaðist á þessari sýningu. Það er afrek út af fyrir sig, með gríðarstóran hóp á litlu sviði. Hvernig var eiginlega hægt að koma þessu öllu svona vel heim og saman, — er það nema von að maður spyrji? Ásbjörn Egilsson og Magnús H. Valgeirsson kunnu svo sannar- lega að taka lagið og komu vel fyr- ir á sviðinu í öllum gervum. Kol- brún Sveinbjörnsdóttir var ,,enn ung í anda“ og söng af hjartans list. Einnig annaðist hún undir- leik ásamt Margréti Sighvatsdótt- ur og þær stöllurnar voru svo sannarlega með á nótunum. Fyrir söngvarana var mikill styrkur að þeim við hljóðfærin. Af sýningunni Revían Grinda- vík 85, má ráða að L.G. hefur gnótt hæfileikafólks á sínum snærum til að semja og flytja reví- ur. Nýbreytnin á 10 ára afmælinu tókst vel. Við skulum því vona, um leið og við óskum þeim til hamingju með afmælið og þökk- um fyrir veittar ánægjustundir, að ekki líði tíu ár þar til L.G. færir upp aðra revíu. emm ©ott og farSceít nýtt dr! Þökkum samskiptin á liðnu ári. HREPPSIMEFINID HAFNAHREPPS okkar flytja ykkur bestu jóla- og nýársóskir frá okkur FAXI 389
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.