Faxi - 01.10.1988, Blaðsíða 19
Maður drukknar við
Vatnsnes
Föstudaginn 1. maí 1970, fannst
lík á floti við utanvert Vatnsnes,
fram undan Stóru-Milljón. Hafði
mannsins verið leitað frá þvi um
morguninn. Maðurinn hét Jóhann-
es Jóelsson, til heimlis í Keflavík.
Hann starfaði í frystihúsinu. Fór Jó-
hannes úr vinnunni um kl. hálf níu á
fimmtudagskvöld. Þjóðviljinn segir,
að lik Jóhannesar hafi fundist í
Keflavíkurhöfn.
Sama dag fannst maður drukkn-
aður í Njarðvíkurhöfn við bát, sem
hann var skipverji á.
(Mbl. 3. maí 1970: „TVeir lfldundir“.
Þjóðv. 3. maí 1970: ,,Fannst látínn í
höfninni“.
Vísir 4. maí 1970: „TVeir menn finn-
ast drukknaðir“.
(Stutt frétt í Suðurnesjatíðindum 8.
maí 1970).
V.b. Vísir í hrakningum
Þriðjudaginn 5. maí 1970, lagði
tiu lesta vélbátur, Vísir EA, af stað
frá Hjalteyri við Eyjafjörð, áleiðis til
Keflavíkur. Einn maður var á bátn-
um, Jón Þórarinsson, frá Keflavík.
Hugðist Jón sigla bátnum norður
fyrir Horn og þaðan til Keflavíkur.
Jón keypti Vlsi á Hjalteyri og ætlaði
að gera hann út frá Keflavík. Bátur-
inn var orðinn gamall.
Ekkert bar til tíðinda fyrr en Jón
var kominn vestarlega í Húnaflóann.
Degi var tekið að halla og dimmt
orðið. En á flóanum var víða ís-
hröngl. Þar sem Jón var einn um
borð veittist honum örðugt, að
fylgjast með ísnum. Fór svo, að
hann sigldi utan í jaka, og um leið
brotnuðu þrír plankar í byrðingi
bátsins. Reyndi Jón að kalla upp
Siglufjörð og ísafjörð, en fékk engin
svör. Eitthvað heyrðist þó til hans í
landi, en nákvæm staðarákvörðun
náðist ekki.
Þegar hér var komið sneri Jón
bátnum til lands, meðan sjórinn
streymdi inn. Sigldi Jón þannig í tíu
tíma uns hann kom til Skagastrand-
ar. Var vélin þá að fara í kaf og hefði
stöðvast þá og þegar. Gert var viö
Vlsi fyrir norðan, en sjópróf fóru
fram í Keflavík.
(Tíminn 6. maí 1970: ,,Náði landi á
götóttum bátnum eftir 10 klukku-
stunda baráttu“).
Framhald í næsta blaði
Ingólfur KE 12 var byggður I Korsör (
Danmörku 1918, 32 tonn aðstcerð. Bót-
urinn eyðilagðist í eldi 4. febr. 1965 sbr.
frásögn ( sjóslysaannál 3. tbl. 1988.
ÚTBOÐ Allaf-
Óskaö er eftir tilboðum í sorphreinsun á Suðurnesjum. nýju
Útboðsgögn fást á skrifstofu S.S.S. að Vesturbraut 10a, inla
Keflavík, gegn 5.000- kr. skilatryggingu. 1 l/l/W' Us&kurnn'
Tilboðum þarf að skila á skrifstofu S.S.S.
þriðjudaginn 29. nóvember kl. 10.00 f.h.
Stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja Bókabúð Keflavíkur
FAXI 223