Faxi - 01.10.1988, Blaðsíða 4
STÆRSTA SEIÐAELDISSTÖÐ LANDSINS
Vogalax er seiða- og hafbeitarstöð staðsett í Vogum,
Vatnsleysustrandarhreppi. Hún hóf starfsemi sína vorið
1982 með tilraunasleppingum. Um 20 þúsund seiðum
var sleppt í sjóinn. Næstu árin á eftir, 1983, 1984, og
1985 var haldið áfram með tilraunas 1 eppingar en ein-
ungis var unnið á sumrin.
Vorið 1985 var stöðin tekin í notkun og framleiðsla
hafin í 630 m2 eldishúsi enda höfðu niðurstöður rann-
sókna í hafbeit sýnd jákvæðan árangur.
í dag er Vogalax stærsta seiðaeldisstöð landsins með
eldisrími fyrir 2,6 miljónir sjógönguseiða. Heildarfjár-
festing um næstu áramót mun nema rúmlega 300 milj-
ónum króna og er þá meðtalin rannsókna- og þróunar-
kostnaður frá upphafi.
Hér sést spriklandi laxinn, þegar búið er að reka hann í land og verið er að
undirbúa að háfa hann í land.
Starfsmenn vinna við að hífa laxinn upp í tankbíl.
Vogavíkin góð fyrir sleppingu
á seiðum
Sveinbjöm sagði að ástæðan fyrir
því að Vogamir hefðu orðið fyrir
valinu (sem staður laxeldisstöðvar)
væm margar. T.d. væri nóg af
hreinu fersku vatni sem hægt væri
að dæla upp, það væri stutt í háhita-
svæði þar sem hægt væri að fá heitt
vatn, staðurinn lægi ekki nærri
neinum vatnsföllum eða laxveiði-
ám, það væri stutt að koma laxinum
á alþjóðlegan flugvöll vegna útflutn-
ings og svo væri Vogavíkin mjög góð
fyrir sleppingu á seiðum.
Áætlað að sleppa
2,6 milljónum seiða
næsta sumar
Vogalax byijaði með 20-25 þús-
und seiði á ári í tilraunasleppingar
sem þeir keyptu frá öðmm stöðv-
um. 1985 byrjaði Vogalax að fram-
leiða fyrstu seiðin og vorið 1986
slepptu þeir fyrstu seiðunum frá
sér, um 36 þúsund. 1987 var 400
þúsund seiðum sleppt, nú í ár var
1000,000, seiðum sleppt og ráðgert
er að sleppa 2,6 milljónum seiða
næsta sumar.
Það tekur um 16 mánuði að
ala seiðin upp
Seiðin em alin upp í 630 m2 seiða-
eldishúsi. Þar em þau fmmalin
(kallað startfóðmn en hægt er að
startfóðra 80—100 þúsund seiði í
hveiju keri) í 32,9m2 kerjum. Þaðan
fara þau í 10 yfirbyggð 16 m2 milli-
ker úti og þaðan yfir í ker sem em
10 metrar í þvermál og 2 metrar að
dýpt.
Að sögn Sveinbjöms tekur það um
16 mánuði að ala seiðin í sjógöngu-
stærð frá því að þau em hrogn (og
þangað til þau fara í sjóinn). Það er
þumalfingursregla að taka helmingi
fleiri hrogn heldur en við ætlum að
enda með sem gönguseiði því það
drepst alltaf töluvert af seiðum. Við
vonumst til að geta haldið meðal-
heimtum um 10% af því sem fer í
sjóinn.
Heimtur þurfa að vera um 8%
Heimtur þurfa helst að vera 8% til
að stöðin standi undir sér miðað við
meðalverð á laxi. Við gemm okkur
vonir um að ná 10—12% heimtun að
meðaltali.
Laxinn er ýmist eitt eða tvö ár í sjó.
Hann er að meðaltali 2,8 kg. eftir
eitt ár í sjó en um 6 kg. eftir tvö ár
Athafnasvceði Vogalax í Vogavík undir Vogastapa. Vei sést su leið sem laxinn
fer, þegar honum er beint upp í grynningar.
æmiz
208 FAXI