Faxi - 01.10.1988, Blaðsíða 6
VELDU
BETRI
KOSTINN
NONNI OG BUBBI
HRINGBRAUT 92
SÍMAR 11580-14188
úndu sem er um helmingur þess
vatnsmagns sem höfuðborgin notar.
Miklar framkvæmdir í gangi
Lyngholt sf. hefur séð um allar
framkvæmdir hjá Vogalaxi. Hvað
snertir kerjarými í seiðaeldinu er
það komið í það horf sem það verður
næstu árin. Það er verið að reia
klakhús ásamt húsi fyrir dísel-
rafstöð sem á að anna allri raf-
magnsþörf stöðvarinnar ef raf-
magnið fer af. Einnig er verið að
reisa sjö ker sem eiga að fara undir
matfiskeldi. Hugmyndir eru einnig
uppi um að girða svæði Vogalx af
fyrir almenningi næsta sumar.
Matfiskeldi samhliða hafbeit
Sveinbjöm segist líta björtum
augum á framtíð Vogalax. Þegar
heimtur fara að verða jafngóðar og
stöðin er byggð fyrir, 2,6 milljóna
seiða sleppingu á ári, þá ættu hlut-
imir að fara að ganga upp. Nú em
áform uppi um að fara í matfiskeldi
(strandeldi) samhliða hafbeit. I
matfiskeldi em seiðin alin í kerjum
uppi á landi þar til þau ná 2—3 kíló-
um. Með þessu getur stöðin boðið
upp á ferskan lax allt árið. Svein-
bjöm segir að matfiskeldi sé mjög
álitlegur kostur fyrir Vogalax þar
sem þeir hafi nóg af 12° heitum sjó,
sem er kjörhiti fyrir laxeldi. Per-
sónulega segist hann líta á hafbeit
og strandeldi sem álitlegasta kost-
inn í laxeldi á íslandi í dag og vera
þá með fieiri tegundir en lax í
strandeldinu.
Tilraunir hjá Vogalaxi
Vogalax hyggst fara í gang með
ýmsar tilraunir sem eiga að auka
hagkvæmni stöðvarinnar. T.d. að
framleiða svokölluð O seiði en það
em seiði sem em tilbúin í sjó vorið
eftir að þau klekjast út. Em sem
sagt einum vetri skemur í eldi en
önnur seiði. Einnig tilraunir með að
sleppa mjög smáum seiðum í sjó-
inn. Því minni sem seiðin em, því
hagkvæmara fyrir stöðina ef þau
skila sér jafnvel og hin seiðin.
Vogalax hyggst einnig gera til-
raunir með að draga seiðin lengra á
sjó. Fara með þau á meira dýpi í
þeirri von að fuglar og aðrir arðræn-
ingjar komist ekki að þeim.
Bjartsýnn á framhaldið
Sveinbjöm segir að Vogalax sé
fyrst og fremst hafbeitarstöð þótt
annað verði tekið samhliða, eins og
matfiskeldi. Hann segir að stöðin
hafi góð áhrif á sveitarfélagið. Voga-
menn em stoltir af stöðinni og vilja
fá að fylgjast vel með.
Full ástæða er til bjartsýni á fram-
haldið hvort heldur um er að ræða
hafbeit eða matfiskeldi þó stór auk-
in umsvif fiskeldisstöðva í nágrenn-
inu valdi nokkmm áhyggjum.