Faxi - 01.10.1988, Blaðsíða 22
ÞEIR KOSTA AUÐVITAÐ SITT...
Þessir sjálfsögöu hlutir sem við njótum dags daglega, hiti og rafmagn eru
taldir til sjálfsagöra hluta I nútíma þjóöfélagi. Eöa gætir þú hugsað þér aö
vera án þeirra? Hitaveita Suöurnesja leggur metnaö sinn i hnökralausa
dreifingu þessara orkugjafa til Suöurnesjamanna. Láttu orkureikninginn hafa
forgang. Með því tryggir þú þér þessa „sjálfsögöu“ hluti, og greiöir lægra
orkuverð en þeir, sem ekki greiöa á réttum tíma. Ógreiddir reikningar hlaða á
sig vaxtakostnaöi. Þeir skuldseigustu greiða allt aö þriöjungi hærra orkuverð
en hinir, þar til þeir vakna upp viö vondan draum; -í kulda og myrkri.
Hitaveita Suðurnesja ■ Innheimtudeild:
ORKUMÁL
Framh. afbls. 216
hitaveituvatn.
Raforkan er flutt með tveim háspennulínum
frá Reykjavík. í dag flytja þær um 20MW, sem
keypt eru af Landsvirkjun en við framleiðum
sjálfir 6MW. Tklið er að flutningsgeta línanna sé
samanlagt um 27MW og höfum við því 33MW
til ráðstöfunar, en seljum eins og áður sagði
26MW.
A næsta ári munum við auka raforkufram-
leiðslu í Svartsengi um 3,6MW og höfum þá til
sölu 36,6MW í afli.
Samkvæmt raforkuspá Orkuspámefndar er
gert ráð fyrir talsverðri aukningu í raforkunotk-
uninni á næstu árum og skv. henni verður salan
komin í 36.4MW árið 1996. Þetta þýðir að við
getum fullnægt eftirspum raforkumarkaðarins
næstu 6-7 árin eftir að 3,6MW stækkun er lok-
ið á næsta ári.
Stækkun raforkuversins mun hinsvegar kosta
ca kr. 260 milljónir. Hún mun tryggja betri nýt-
ingu gufunnar og auka rekstraröryggi til muna.
í dag er unnið að lagningu 132kV háspennulínu
frá Svartsengi til Fitja, sem mun kosta ca kr. 43
millj. Þessi lína mun styrkja ömggari raforku-
dreifingu og koma í stað línu, sem liggur úr Vog-
um í Grindavík, en hún er nú mjög ótraust orð-
in.
Hitaveitan á traustum fótum
Þegar litið er yfir rekstrarstöðu og fram-
kvæmdir Hitaveitu Suðumesja þá blandast
manni ekki hugur um, að hún er vel undir það
búin að mæta kröfum orkukaupenda á svæð-
inu. Þróun orkumála á Suðumesjum hefir
vissulega verið hröð á undanfömum ámm, en
það er trú mín að þar hafi hvert gengið skref
miðað til aukinnar hagsældar þessarar byggðar.
Olíusamlag Keflavíkur
var stofnaðol. október 1938.
í hálfa öld hefur félagið átt ánœgjuleg og góð viðskipti
við íbúa á Suðurnesjum.
Við viljum í tilefni af afmœli félagsins senda öllum
íbúum Suðurnesja bestu kveðjur um leið og við þökkum
viðskiptin á liðnum árum. Við munum
sem fyrr kappkosta að veita ykkur sem besta þjónustu.
STJÓRN OG STARFSFÓLK OLÍUSAMLAGS KEFLAVÍKUR
226 FAXI