Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1996, Blaðsíða 2

Faxi - 01.12.1996, Blaðsíða 2
5. TÖLUBLAÐ - 56. ÁRGANGUR Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Afgreiðsla: Vatnsnesvegur 2, sími 421 1114. Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri, Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri, Geimtundur Kristinsson, Kristján Gunnarsson og Karl Steinar Guðnason Netfang ritstj.: bholm@ismennt.is Hönnun, setning, umbrot, litgreining, Filmuvinna og prentun: Stapaprent hf. Grófín 13c 230 Reykjanesbæ - Sími: 421 4388 Fax: 421 1180, Netfang: stapapr@ok.is Meðal efnis: Aldarminning Arna Magnússonar Heimsókn í Stórn- Vogaskóla Söngferð kórs Keflavíkurkirkju til Norðurlanda Viðtal við Geir Sverrisson Lokadans - smásaga Barnasíðan Siglt um Miðjarahafið - frásögn Jóhanns Líndals Fjölskyldupáttur - Eypór Þórðarsson Dagur íslenskrar tungu Litbrigði - verðlaunasmásaga Forsíðumyndin af Ytri- Njarðvíkurkirkju í hátíðarbúningi tekin af Oddgeiri Karlssyni Ijósmyndara. Séra Baldur Rafn Sigurðsson: Jólahugleiöing Þegar Guð fól okkur pað hlutverk að líta eftir sköpun sinni pá gerði hann ráð fyr'r Pv' “ó v't> mann- anna börn skyldum hvílast. Hvíld og hvíldargleði hafa pví ávallt haldist í hendur. Innihald hátíðar er að við, börnin hans, flytjumst upp í aðra tíð en hversdags. Sá tími, tíð hátíðar, lýtur öðrum lögum en erfiðis veröld, par sem ríkir fegurð lífsins oggœska guðs og manna. Hátíð jólanna erprungin táknum, en tákn benda á annað en sjálft sig. Kertalog, gjafirog hvíld frá erfiði daganna, allt petta setur svip á jólin en merking pess er táknrœn um eittlivað annað líf en við lifum daglega. Hátíð jólanna er tákn um aðra veröld en hið hrjúfa og brothœtta líf hversdags- ins. Við flytjumst upp í aðra tíð, lielga og hátíðlega. Aðventan er pá að baki og við komum saman til péttsetinnar kirkju á aðfangadagskvöld. Þá hljóma jólasálmarnir sem allirpekkja og allir syngja með einum rómi. Kirkjan öll fyllist glöðum lofgjörðarsöng og vissulega œtti svo að vera í hverri guðspjónustu árið um kring. Jólin eru heimilishátíð ekki síður en kirkjuhátíð par sem fjölskyldan kemur saman og tekur á móti himnesku Ijósi í bœn. Útbreiddar hendur mannsbarnsins mót hinu himneska Ijósi er pað vill veita inn ' lífsitt til að hrekja burt myrkrið. Frumstefjólanna er andstœða myrkursins sem vill eyða og skemma og Ijóssins sem vill gefa líf og skapa góða liluti. Myrkriö gnifir yfir mannheimi, hungursneið og stríð. Víða er líka myrkt nœrri okkur, örvœnting hins pjáða manns, Imgarhrelling peirra sem pjáningin heldur vakandi á löngum nóttum. Hér vill liann komast að til að gefa lífog von, litla barnið í jötunni pessi algjöra andstœða allra stríðstóla og öfga. Hann vill gefa okkur nýtt líf. Jólaljósin eru prungin pessari djúpu táknrœnu merkingu að Guð hefur sent í heiminn endurlausnara er skín í myrkrum mannlegs lífs oggerir heilt aftur sem sundrað hefur verið. Jólin eru einnig kœrleikshá- tíð pví að Guð elskar pennan heim okkar og pað er hátíðin sem kveikir pessa kœrleiksglóð. Kœrleiks- tónn jólanna ersvo sterkur að hann útrýmir öllu harðneskjulegu tali, öllu hranalegu viðmóti, öllu hatri, ósætti og illvilja. Jólin gróðursetja í pess stað kœrleikspel oggott viðmót til allra sama hvar í heiminum peir búa. Allir fá að finna fyrir elsku og vinarhug. Gjaman mœtti svo vera allt árið. Öll tákn jólanna mœtast ígleðifregninni sem að englamari fluttu: „Yður er ídag fresari fœddur." Myrkrið tvístrast, hrelldur hugur gleðst, vonleysi eygir von pví að Guð hefurgefið okkur von í Ijósinu eilífa. Það Ijós vill lýsa okkur veginn sem við göngum. Við getum pví verið ólirœdd, „pví sjá ég boða ykkur mikinn fógnuð..." Jesú fceðing fœri pér fógnuð inn í sálu pína. Ljósi lians ttpp lyftum vér, látum pað frá hjartanu skína. Hringi til pín hátíðin helgan jóla boðskapinn. Ingibjörg Guðmundsdóttir Gleðileg jól! 102 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.