Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1996, Side 21

Faxi - 01.12.1996, Side 21
Brceðraminning vil með fáeinum orðum m'nnast þriggja bræðra úr Garðinum sem féllu frá á síðasta ari. Þetta voru þeir Þorsteinn, Jón og Einar Jóhannessynir frá ^aukstöðum. Hlessuð sé minning Þeirra. OlI byggðalög eiga sér sögu og Þó misjalnt sé hversu vel henni er ^ óaga haldið þá skiptir hún oftast 'niklu máli í hugum íbúanna. Eðli- 'ega eiga staðhættir hvers byggðar- ’ags mikinn þátt í að móta sögu Þess og því er mikill munur á dag- iegu lífi í sjávarplássi og í sveitar- ó'eppi. Sagan verður þó fyrst og frenist til vegna þeirra einstaklinga Sern uppi eru á hverjum tírna. Og Þá gerist það oft að einstaka menn eða þá fjölskyldur skapa sjálfstæða ^afla í sögu síns byggðarlags. f*annig var því varið nteð hjónin ■ióhanncs Jónsson og Helgu Þor- steinsdóttur á Gaukstöðum í Garði. ^ Oaukstöðum var rekin öflug út- £erð sem naut mikillar virðingar, Þar var fiskverkun í landi og að auki var þar rekinn myndarlegur ðóskapur. Þau hjónin voru mjög Samhent, hann stundaði sjóinn af kappi en hún stýrði landverkum af skörungsskap auk þess sem hún ''ann mikið að félagsmálum yggðarinnar. Helgu og Jóhannesi varð 14 ai'na auðið og komust þau öll til u|lorðinsára nema tvö sem dóu á Unga aldri. Börnin voru Þorsteinm • 1914, Kristín, f. 1915, Jón, f. '9|ó, Gísli, f. 19181 d. 1919. ^einbjörg, f. 1919, Ástríður, f. 92l, Gísli Steinar, f. 1924, Jó- óannes, f. 1926, Kristín Ásthildur. • 1 ^28, Þórður, f. 1929, Sigurlaug. ' l93l d. 1933, Sigurlaug Erla, f, 933, Matthildur, f. 1935 og Einar, ' 1937. Óhætt er að segja að öll a * Þau orðið mannkostafólk sem Selt hefur mark sitt á samtíð sína. Þo Þann rsieinn Jóhannesson féll frá han: 24. júní 1995 og fór útför s fram frá Útskálakirkju að við- Þorsteinn Jóhannesson. stöddu miklu fjölmenni. Þorteinn fór snemma til sjós eins og tíðkað- ist á þeim tíma og hóf liann sjó- mannsferil sinn með föður sínum á Jóni Finnssyni.. Hann lærði til allra verka um borð og tók um tví- tugt við skipstjórninni af föður sín- um. Eftir aldarfjórðungsstörf á sjónum fór Þorsteinn í land og tók við stjórninni á fiskvinnslunni á Gaukstöðum. Þessi ár voru miklir umbrotatímar í verkun sjáfaraflans og átti Þorsteinn mikinn þátt í að efla þann atvinnuveg. Meðal ann- ars kom liann upp fyrstu síldarsölt- unaraðstöðunni í Garðinum. Þor- steinn var mikill áhugamaður um félagsmál og lók virkan þátt í starfsemi ýmissa félaga og félaga- samtaka. Hann sat m.a. í hrepps- nefnd Gerðahrepps og var lengi í forystusveit L.Í.Ú., formaður SÍF og hann var fulltrúi á Fiskiþingum í rnörg ár. Öflug var einnig þátt- taka hans varðandi öryggismál sjó- manna en þar fylgdi liann í fótspor foreldra sinna sem bæði létu sig þau mál miklu varða. Hann var um tíma formaður björgunarsveitar- innar í Garðinum og var hann geröur að heiðursfélaga árið 1985. Einar Jóhannesson var yngstur Einar Jóhannesson. systkinanna á Gaukstöðum og féll hann frá langt um aldur fram hinn 8. nóvember 1995. Æskuárin á fjörukambinum í Garðinum höfðu mikil áhrif á liann og liann fór því ungur til sjós. Fljótlega komu í ljós þeir einstöku hæfileikar hans að sjá alltaf nýjar lausnir á öllum við- fangsefnum. Hann var þúsund- þjalasmiður og uppfinninganiaður af guðs náð. Hæst bera e.t.v. ýmsar tækninýjungar sem hann innleiddi varðandi veiðar á ýmsum sjávar- dýrum. I minningargrein seni vinur hans, Sólmundur Einarsson sjávar- líffræðingur, skrifaði segir m.a.: Hann var í raun fjársjóður eða auð- lind sern við bárum ekki gæfu til að nýta til fullnustu. Síðustu árin bjó Einar á Blönduósi og þar sýndi hann svo ekki varð um villst að áhugamálin gripu hann jafnt í leik sem í starfi. Þeir sakna hans nú sárt félagarnir í Golfklúbbnum Ós því það er sama hvar gripið niður í sögu golfklúbbsins, nafnið Einar Jó er þar stórum stöfum skrifað. Jón Jóhannesson féll frá þann 10. desember 1995. Hann fæddist 1916 og átti því aðeins nokkra daga í áttræðisafmælið. Jón heitinn var einn þeirra manna sem ávallt Jón Jóhannesson. laða hið besta fram í rnönnum. Hans verður lengi minnst, ekki fyrir afrek sem skrifa má á spjöld sögunnar, heldur vegna persónu sinnar sem lét engan ósnortinn. Jón þótti mannvænlegt barn en fékk ungur spænsku veikina ill- ræmdu og í kjölfarið heilahimnu- bólgu sem skerti hans andlega at- gjörfi. Náði liann m.a. aldrei tök- urn á töluðu máli. Afleiðingin varð sú að þegar liann óx úr grasi varð hann ekki samferða jafnöldrum sínum út í lífið heldur dvaldi hjá foreldrum sínum nieðan þeirra naut við og síðan hjá Þorsteini bróður sínum. Gekk hann að öllum almennum stöfum sem til féllu við heimilið og í atvinnurekstrinum og leysti þau vel úr hendi. Síðustu árin dvaldi hann á Hrafnistu f Hafnarfirði. Nánustu fjölskyldum þeirra bræðra og aðstandendum öllum er hér með vottuð innileg samúð við fráfall þeirra Helgi Hólm, ritstjóri FAXI 121

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.