Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1996, Side 30

Faxi - 01.12.1996, Side 30
FAXI JÍIUIíHII 1996 HH0 / heppni við þá bestu Viðtal við Geir Sverrisson, landsliðsmann í frjálsum íþróttum Á Suðurnesjum hef'ur löngum verið mikill áhugi fvrir hvers kvns íþrótt- um og þar hefur margt gott íþrótta- fólk haslað sér völl og jafnvel skar- að fram úr innanlands jafnt sem utan. Einn úr þessum hópi er ungur maður úr Keflavík, (íeir Sverrisson að nafni . Afrek hans eru að því feyti sérstök að hann hefur ekki að- eins verið landsliðsmaður í frjáls- um íþróttum heldur var hann í því frækna liði sem tók þátt í Olympíu- leikum fatlaðra í Atlanta nú fyrir skömmu. Eins og mörgum er kunnugt um, þá vantar á Geir ann- an handlegginn neðan við olnboga. Þessi fötlun hefur ekki staðið í vegi fyrir því að Geir næði þeim mark- miðum sem hann hefur sett sér. Geir er í vetur á síðara ári sínu á Iþróttakennaraskólanuin á Laugar- vatni og meðfram af því að vel er þekktur áhugi og fæmi Geirs á tölvu- sviðinu, þá sendum við lionum nokkr- ar spurningar um tölvunet og báðum hann að svara þeim fyrir lesendur Faxa. Segðu okkur í stuttu máli frá ferð- inni til Atlanta og þeim árangri sem þú náðir þar. Alls voru það 9 keppendur úr sundi og frjálsum íþróttum sem héldu utan þann 12. ágúst. Ferðin gekk nokkuð greiðlega til Atlanta, en flogið var í gegnum Orlando í Florida. Þegar komið var til Atlanta var okkur ekki hleypt inn í þorpið fyrr en við fengjum viðeigandi vegabréf. Það er svo sem viðtekin venja á slíkum mótum en ekki það að þurfa að bíða eftir gerð þessara „passa” í 5 klst vegna tölvu- bilana. Þetta átti eftir að gefa tóninn fyrir framkvæmd lcikanna og virtist sem skipuleggjendur mótsins hefðu ekkert lært á Ólympíuleikunum sem haldnir voru nokkrum vikum áður. Eins og alkunna er tókst framkvæmd joeirra ekki vel. Islensku keppendumir létu þó jiessa töf ekkert á sig fá, frjálsí- þróttamenn tóku æfingu við takmark- aðar aðstæðir í biðsalnum og sund- menn létta „landæfingu” og teygjur. Að því loknu var lítið annað hægt að gera en að leggjast til svefns með ferðatöskumar sem kodda. Ekki höfðum við verið stödd lengur en í ca. I klst. á erlendri grund þegar heldur kunnuglegur Islendingur í ein- kennisklæðnaði leikanna birtist. Skýr- inguna fékk ég um leið og ég gaf mig á tal við manninn. Kristján Svan- bergsson hét maðurinn og var Kefl- víkingur við nám í Atlanta. Hann hafði titilinn „envoy” og var liðinu til halds og trausts það sem eftir var ferð- arinnar. Sérstaklega reyndist Kristján okkur frjálsíþróttamönnum vel þar sem við gátum ekki treyst á samgöng- í móttöku hjá Vigdísi Finnbogadóttur forseta. Slappaö af frá æfingum. ur milli þorpsins og leikvangsins. Sundfólkið þurfti ekki að hafa þær áhyggjur þar sem sundlaugin var í göngufæri frá þorpinu. Kristján á mínar bestu þakkir skildar fyrir þá að- stoð sem hann veitti á erfiðum stund- um. Vistarverur vom eins og best verður á kosið en hins vegar gátu oft myndast langar biðraðir þegar setjast átti að snæðingi. Lítið var hægt að skoða af borginni fyrr en eftir keppni þar sem dagurinn gekk út á það að æfa, keppa eða hvílast. Dagskrá mótsins var strembin þegar keppni hófst, lágmark eitt hlaup á dag. Þær greinar sem ég keppti í voru 100 m hlaup, 200 m hlaup og 400 m hlaup. í öllum grein- unum hlaut ég silfurverðlaun og var um persónulega bætingu að ræða i 100 m og 200 m hlaupum. Sérstaklega góðan stuðning fengu íslensku keppendumir frá |>eim Höllu og Helgu Harðardætrum (Harðar rak- ara) sem hafa verið búsettar í Atlanta um áraraðir. Til gamans má geta að foreldrar þeirra hafa verið nágrannar mínir í fjöldamörg ár. Segja má að Suðurnesjamennirnir, Kristján og kona hans Herdís ásamt þeim Höllu og Helgu, séu stór hluti íslendingafc' lagsins í Atlanta sem hafði skipulag1 Það er engu líkt að standa á verðlaunapalli á stórmóti. Þá finna menn að all* erfiðið og puðið skilar árangri. 130 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.