Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1999, Blaðsíða 9

Faxi - 01.03.1999, Blaðsíða 9
m FAXI Mars 1999 Keflavík. Þangað flutti Ingunn að lík- induni utan úr Leiru, sennilega seint á þriðja áratugnum eða unt 1930. Hafi svo verið hefur Ingunn að líkindum búið í Steinum í Leiru eftir lát Ólafs skinnklæðasaumara, sem dó eins og fyrr segir árið 1922. En þetta má þó sjá í Húsvitjunarbókum Utskála. Þær Ingunn og Helga bjuggu síðan saman í húsi sínu þar til Ingunn dó að mig minnir 1948. Helga var einkaerfingi móður sinnar að ég ætla og frá Helgu komst bauna- stokkurinn úr búi liennar í Byggða- safnið, svo og fjöldi gamalla muna sem Hclga geymdi og hafði að líkind- um erft frá móður sinni, sem aftur fékk í sinn hlut muni úr búi Ólafs í Steinum, þó það sé óljóst, þar sem Ólafur og Ingunn bjuggu í óvígðri sambúð. Eftir lát Helgu, 1969, voru munimir úr búi hennar fluttir í geymsiu Byggðasafnsins í ntaí um sumarið. Ingunn í Steinum var stundum sögð nokkuð fljótfær og sérstæð, en einlæg eins og stundum gerist unt slíkt fólk. Hún uggði því ekki alltaf að sér eins og sagnir sýna sent lengi lifðu hjá gömlurn Keflvíkingum um hana og svör hennar. Einu sinni, þegar hún bjó í Steinum með Ólafi, bar svo við að Ólafur var að smíða næturgagn og hjá honunt var maður sem hét Einar. Spyr Ólafur þá manninn hvemig honum lítist á kopp- inn og segir: „Heldur þú að þessi kima sé ekki nógu stór undir hverja meðal- láfu Einsi?”. En áður en Einar gat sagt orð gall Ingunn við frammi í göngum og svaraði: „Þú þekkir nú láfuna á mér Ólafur minn, hún er nú bæði lítil og loðin!” Ingunn hafði þá staðið afsíðis frammi í göngum án þess að þeir Ólaf- ur og Einar tækju eftir því. Sögn þessa sagði mér Ólafur frá Litla-Hólmi í Leiru, en um aldur henn- WEB 'r FÉLAO tLORI BORGARA SUDURNESJUM Frá ferðanefnd Að lokinni fjölmennri og ánægjulegri ferð til Kanaríeyja 25. jan. - 22. febr. verður boðið upp á eftirfarandi ferðir: 13. apríl 6. maí: 25. maí ■ 12. júní: 18. júní - 16. júlí: 25. maí: 3. júní: 1. júlí: 28. júlí: 14. ágúst: 17.-22. ágúst: 4.-5. sept.: Vorferð til Benidorm Hálfdagsferð á Keflavíkurflugvöll Ferð um Þýskaland Dagsferð til Reykjavíkur Ferð um Skandinavíu Vikuferð um Norðurland Gullfoss-Geysir Dagsferð um Suðurnes Kirkjubæjarklaustur og nágrenni Haustferð á Þingvöll. Pantanir óskast sem fyrst í utanlandsferðir. Ferðanefndin vonar að nú fái allir eitthvað við sitt hæfi. Hafið samband, leitið upplýsinga. Geymið auglýsinguna. Lórý s.: 421-1844 - Jóhanna s.: 426-8177 Jóhanna s.: 423-7402 - Jónína s.: 421-1869 Björgvin s.: 421-1809. ar og uppruna veit ég ekki. Ólafur fluttist að Lilla-Hólmi frá Keflavík 1921 og getur verið að atvikið sem hún lýsir hafi átt sér stað 1921-1922, en e.t.v. er sögnin eldri og þá hefur Ólafur frá Litla-Hólmi haft hana eftir gönilum Leirumönnum. Af sögninni má þó ráða, að þau Ólafur og Ingunn hafi þá verið búin að búa saman nokk- uð lengi, annars hefði hún varla tekið jafn djúpt í árinni og hún gerði. Sögnin er líka skemmtileg heimild urn það að Ólafur í Steinum hafi stundað srníðar á búsáhöldum frant á síðustu ár sín og að næturgögn úr tré hafi þá ekki verið undanskilin. En fáar heimildir eru til um Ólaf og smíðar lians að ég ætla. Hluti sem eignaðir eru Ólafi þekki ég líka fáa nenia baunastokkinn og fáeina spæni, sem kontu úr búi Helgu og byggðasafnið eignaðist í ntaí 1969. Ólafur frá Litla- Hólmi sagði mér það, líklega á árun- um 1973 -1974, að nafni hans í Stein- um hefði einnig smíðað spæni handa nágrönnum sínum og sjálfum sér. En spónasmiðir voru fyrrurn jafn nauð- synlegir í hverri sveit og verslanir eru okkur í dag, hvar í við kaupunt okkur hnífa og gaffla. Bók mánaðarins 30% afsláttur Bókabúð Keftaóikur / /eiáuuu Sími 421 1102 VERKALÝÐS- OG SJÓMANNAFÉLAG KEFLAVÍKUR Skrifstofa félagsins er að Hafnargötu 80. Opið mánudaga tíl fimmtudaga kl. 9-16, föstudaga kl. 9-15. Síminn er 421 5777 FAXI 9

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.