Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.06.1999, Qupperneq 15

Faxi - 01.06.1999, Qupperneq 15
Fjör í sjóstandaveiðinni. Mæðgurnar Bryndís Schram og Kolfinna hampa góðum feng. ið er stór þáttur í svona skoðunarferð- um því margt af því fólki sem kemur í þær hefur vart séð fugla, nema ef vera skyldi dúfur á torgurn stórborg- anna. Ekki urðu fleiri skoðunarferðir haustiðl994 en hvalaskoðunarferðir frá Keflavík voru hafnar. FJÖLGARí SKOÐUNARFERÐ- UM Helga Ingimundardóttir hélt áfram að kynna Eldeyjarferðir en var farin að fallast á að vel mætti notast við höfrungana, sem reyndar eru livalir. Þegar korn fram á sumarið 1995 fór heldur að fjölga í þessum ferðunum en þó var aðeins farið tvisvar út að Eldey. Við fórum í Garðsjóinn og nær alltaf sáum við höfrunga í tugatali, oft hrefnur og fyrir kom að við sáum hnúfubak. Fugl var oftast í þúsunda- tali. Hann fylgir sílinu sem á sumrin gengur í stórum torfum inn í Faxafló- ann. Lundinn er geysivinsæll og strjál er af honum. Súlan þykir stórkostleg, ekki síst þegar henni nánast rignir úr háa lofti í sílistorfurnar eða sídina. Skoðunarferð í Garðsjó tekur aðeins um þrjá tíma og er það hæfilegt fyrir flesta sem sjaldan eða aldei hafa kont- ið á sjó. Sumarið 1995 fórum við með 145 farþega auk fjölda gesta sem vildu kynna sér þessar ferðir. Þetta sumar hófust einnig hvalaskoðunarferðir frá Húsavík. FLEIRIBÆTAST í HÓPINN Helga Ingimundardóttir sá enn al- farið um að kynna þessar skoðunar- ferðir og nokkurt samstarf hafði hún við Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur. Hún seldi einnig í ferðimar, ýmist beint eða með milligöngu ferðaskrifstofa. Gjald fyrir sjóferðina var kr. 3.900 á mann. Af því fékk ég kr. 2.000. Það var sam- komulag um að ég auglýsti aðeins sjóstangaveiðina. Fljótlega varð nokk- uð ljóst að fólk var ánægt með ferðir út í Garðsjó. Þangað var hægt að fara þótt ekki viðraði til ferðar út fyrir Garðskaga. Ég tók að fara alveg með Berginu og Leirunni og vakti athygli á því sem þar var að sjá, þ.e. fjölbreytt fuglalíf og fleira. Annaðhvort fór ég einn í þessar ferðir eða að Helga var með sem leiðsögumaður. Aðstaðan í smábátahöfninni í Gróf- inni er mjög góð og eru fiotbryggj- umar algjört skilyrði til þess að hægt sé að koma fólki vandræðalaust að og frá borði. Aðsókn í hvalaskoðunar- ferðirnar jókst nú mjög ört og árið 1996 urðu farþegar 432. Það sumar var þrisvar sinnum farið út að Eldey. Aukning varð líka í sjóstangaveiðina og nú stóð starfsemin nokkum veginn undir sér með því þó að ég reiknaði mér nær engin laun. Fyrir sumarið 1997 kynnti Helga hvalaskoðun undir heitinu H.l ferðir og var með sérstakan bíl í smölun. Ég hafði verið einn um þessar ferðir héðan en nú komu þeir Jón Sæmundsson og Valdimar Axels- son með bát sinn Hvalbak til viðbótar. Með okkur tókst gott samkomulag og við létum Helgu áfrarn um kynningu og sölumál, nteð þeim sömu kjörum og ég hafði verið upp á. Framanaf fór ég einn en Helga með Hvalbak ef báð- ir fóru, sem gjaman var. Þann 17. júní kom með mér dönsk stúlka er Mariane heitir. Hún var komin til Islands til þess að kynna sér höfrunga sem hún hafði valið sér sem viðfangsefni fyrir „ Masterpróf „ í líffræði. Hún var þá búin að fara einar 15 ferðir í hvala- skoðun frá Húsavík en lítið sem ekkert séð af höfrungum. Hún varð himinlif- andi þegar við sáum þá í tuga- eða hundraðatali í Garðsjónum. Hal'ði hún meðferðis búnað til þess að hlusta á hljóðin í höfrungunum. STEFNIR í KVÓTA? Uppúr þessu fór Mariane að fara sern leiðsögumaður. Helga starfaði eitthvað fyrir Samvinnuferðir, tók á móti hópum í flugstöðinni og fór leið- sögumaður þeirra um landið. Auk þess var hún í staifi hjá Fræðasetrinu í Sandgerði. Það var því mikið að gera hjá Helgu og um mitt sumarið var hún rneð lausamenn til þess að fara með okkur. en oft fór ég einn. Höfr- ungar sáust nánast í hverri ferð og um mitt sumarið sáum við hnúfubaka í flestum ferðum en það eru rniklar skepnur sem gera ótrúlegustu kúnstir. Hrefnur sáust annað slagið, mest eftir að kom fram á sumarið. Ég fór aðeins þrisvar út að Eldey en Hvalbakur aldrei. Andrea, bátur seni tekur 40 til 50 farþega, lór í hvalaskoðunaiferðir frá Hafnarfirði. Þeim gekk heldur illa það ég best veit. Aukning farþega hér syðra var ótrúleg. Með Hnossi fóru 797 manns og með Hvalbak um 500. Talsvert dró úr sjóstangaveiðinni en nú gat ég reiknað mér nokkur laun í fyrsta sinn. Veturinn 1998 flutti Guð- mundur Gestsson inn bát frá Bandaríkjunum sem tók með góðu móti 25 farþega. Skírði hann bátinn Gest. Guðmundur bættist nú í félags- skapinn með okkur svo við vorum nú þrír og gátum tekið um 50 farþega samtals í ferð. Fram að þessu hafði Helga séð um alla kynningu og símar 1 okkar hvergi nefndir. Við reiknuðum með áframhaldandi samstarfi við Helgu þótt hún haft verið að nefna það að lá sér bát sjálf. Við vildum lækka verðið til sam- ræmis við þá á Húsavík og taka lækk- unina að nokkru leyti á okkur. Samn- ingar við Helgu drógust á langinn. Um mánaðamótin maí-júní kom hún svo sjálf með bál, Lindu, en hann tók um 30 manns. Einnig kom á daginn að þeir sem ráku Bláa-lónið höfðu, ásamt Kynnisferðum, samið við eiganda M.S. Andreu um hvalaskoðunarferðir frá Keflavík. Við urðum því að hefja kynningu á okkar ferðum, þótt seint væri, og byggja á þeim sem engar ráð- stafanir höfðu gert fyrirfram. Við fór- um með verðið í kr. 2.800. ÓTRÚLEG FJÖLGUN FARÞEGA Aukningin í hvalaskoðunarferðun- um varð nú meiri en nokkurn hafði órað fyrir. Þrátt fyrir að við værum seint með okkar kynningu fengum við félagarnir yfir tvö þúsund farþega og Helga mun hafa fengið vel á fjórða þúsund. Ekki veit ég um hvað Andrea fór með marga en held að það hafi gengið frekar illa sem fyrr. Ég hélt saman skrá yfir þá 438 farþega sem ég fór með og reyndust jveir koma frá 27 löndum. Englendingar flestir, 81. þá Þjóðverjar 73, Bandaríkjamenn 51 og svo allt niður í einn farþega t.d. frá Jamaika og S-Afríku. Háskólinn sem Mariane nam við tók Hnoss á leigu í 5 daga. Ég var með hana og tvo prófessora þessa daga við að skoða höfrunga, taka upp hljóð þeirra og mynda neðansjávar. Þetta var að hluta til eitthvað í sambandi við lokaverkefni Mariane. Við fengum blíðu veður allan tímann og þau voru mjög ánægð með árangurinn. LOKAORÐ Þessa dagana er spáð mikilli aukn- ingu ferðamanna til Islands. Enginn vafi er á því, að verði vel að því stað- ið, munu hvalaskoðunarferðir frá Keflavík halda sínum lilut og vel það. Ég tel sarnt mikla þörf á því að geta boðið upp á fleira til skoðunar í Kefla- vík, sérstaklega þegar hætta verður við ferðir vegna veðurs. Æskilegt væri líka að geta boðið dagsferðir um Suð- umes. Duus-Kaffi þjónar nú m.a. far- þegum í hvalaskoðunarferðum en fleira þyrfti til að korna. Fræðasetrið í Sandgerði er gott svo langt sem það nær og það er fiskasafnið í Höfnunum líka, reyndar frábært einstaklingsfram- tak. Mikilvægast væri að komast áfram frá Stafnesi og út í Hafnir. Það væri góð viðbót við Reykjaneshring- inn, sem örugglega yrði vinsæl af ferðamönnum. Nær allir ferðamenn fara hér í gegn en mjög lítið hefur ver- ið gert til þess að fá þá til þess að hafa hér einhverja viðdvöl. Ef við förum í ferðir erlendis erum við dregin á söfn og úr einni skrautkirkjunni í aðra. Það væri t.d. góð tilbreyting að skoða Hvalsneskirkju. Ég tel að hingað komi fólk mikið til þess að sjá það sem er öðruvísi en það á að venjast. Lands- lagið uppfyllir þær óskir vel og við höfum margt fleira að bjóða en að mínu mat er í Reykjanesbæ um þessar mundir ol' miklum tíma varið í mas um þessa hluti en framkvæmdirnar FAXI 39

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.