Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.06.1999, Qupperneq 19

Faxi - 01.06.1999, Qupperneq 19
FAXI Jöní 1999 á og til þess viljum við byggja upp góða aðstöðu og metnaðarfullt vinnuumliverfi. Við stefnum hátt - en (því) hvað er auður og afl og hús ef eingin jurt vex í þinni krús? -----spyr Bjartur í Sumarhúsum. Við megum okkur lítils í öllu bramboltinu ef við gleymum því til hvers við erum að þessu. Við erum jú hér fyrir ykkur, kæru nemendur, hvert og eitt ykkar og þá sem á eftir ykkur korna. Ágætu útskriftamemar. í dag er stór dagur og að baki liggja mörg ár og mikil vinna. Þið hafið nú tekið við skírteinum ykkar, vitnisburði í tölum um árangur ykkar í hinum ýmsu greinum. Skólinn hefur þannig lagt á ykkur mat sem þið hafið staðist. En það verður ekki allt kennt í skóla og það verður ekki allt mælt í tölunr og sumt af því er einmitt hið verðmætasta í tilverunni og það sem gefur líiinu raunverulegt gildi. Eiginleika eins og háttvísi, sjálfsvirðingu, sjálfstraust, samvisku- serni, tillitssemi og samúð erekki hægt að læra af bók- inni heldur krefst það innsæis og skilnings á náungan- um og sjálfum sér ásamt þeiiri þjálfun og reynslu sem þið aflið ykkur við að takast á við lífið og í samskiptum við annað fólk. Til hamingju rneð daginn. Famist ykkur vel og lifið heil. nokkrir grunnskólanemendur próf í byrjunaráföngum í stærðfræði og ensku og þeir sem stóðust prófið geta því hafið nám hjá okkur í framhaldsáföngum í þessum greinum í haust. Sérstakt samstarf hefur verið við grunnskólann í Grindavík vegna fjögurra nemenda í 10. bekk skólans sem tóku samræmd próf í 9. bekk. HEIMSÓKN ÚR MENNT AMÁL ARÁÐUNEYTI Á seinasta kennsludegi annarinnar þann 3. maí kom Karl Kristjánsson, deildarsérfræðingur í menntamála- ráðuneytinu og tengiliður skólans við ráðuneytiö, á fund við kennara skólans. Þar kynnti hann hinn al- menna hluta nýrrar námskrár fyrir framhaldsskóla en hún tekur gildi 1. júní næstkomandi. Helstu breytingar eru þær að í nýju námsskránni er gert ráð fyrir 3 stúd- entsbrautum, félagsfræðibraut, málabraut og náttúru- fræðibraut. Nýjar brautalýsingar em ekki komnar fyrir , iðnbrautir og gert er ráð fyrir að skólinn ráði sjálfur innihaldi almennra brauta. Það verður verkefni næsta skólaárs að rita skólanámskrá fyrir Fjölbrautaskóla Suðumesja sem byggð verður á nýju námskránni. Oddný lauk ræðu sinni á að óska nýútskrifuðum nemendum til hamingju með áfangann og þakkaði þeim og samstarfsfólki í skólanum gott samstarf. Ólafur Jón Arnbjörnsson skólameistari Þessi viðburður er mjög sérstakur fyrir okkur öll hér í dag. Við emm að heiðra út- skriftanema og höfunr öll ástæðu til að fagna fyrir jreirra lrönd. Samtímis sér hvert okkar þennan viðburð frá eigin sjónarhorni. Fyrir mér er þessi at- höfn í dag og þessi út- skriftarhópur sérstakur vegna þess að þetta er fyrsti hópur nemenda sem ég fylgi frá því að þau komu inn í skólann og allt til út- skriftar. Fyrir foreldri er ef til vill hér í dag að verða að vem- leika draumur sem því ekki bauðst í æsku - og fyrir ' ykkur sem útskrifast - er hér um að ræða nrjög persónu- legan sigur sem sá einn þekkir sem hefur sjálfur reynt. Kennarar ykkar finna sennilega til nokkurs saknaðar jtví margra ára vinna er að baki og nú, þegar þið loksins j eruð orðin nægilega þroskuð til að læra hjá þeim, jrá eru þið að fara! En það er jrá til einhvers unnið því þó þið séuð að fara héðan þá eruð þið engan veginn að Ijúka námi, aðeins áfanga. En aukin nrenntun skiptir ekki einungis okkur sem hér sitjum máli. Fyrir atvinnulífið á Suðumesjum er það sjálfsagt meira virði í dag en flesta hér gmnar. Það liggja nú þegar fyrir upplýsingar um |rað að ef fram heldur sem horfir þá verður ekki einungis skortur á vel menntuðu fólki hér á svæðinu heldur er framtíð fyrir- tækja beinlínis stefnt í hættu. Það er nú þegar orðið, og verður einnig í framtíðinn, kapphlaup um vel menntað fólk til vinnu á öllu landinu. En |rað er einnig annað sem við þurfum að hafa í huga. Aukin alþjóðavæðing gerir það að verkum að ungt og velmenntað fólk getur hæglega sótt vinnu til annarra landa og það leitar þang- j að þar sem betur er búið að því. Ef við viljurn halda í það fólk sem hér er að útskrifast og fá þá aftur til Suð- umesja sem fara til frekara framhaldsnáms þá þurfum við að skapa þeim umhverfi sem er heillandi, veita þeim jrjónustu í samræmi við nútíma þarfir og ekki síst sýna þeim að við meturn mikils það sem jxir hafa á sig lagt og framlag þeirra til samfélags okkar. Það á sér vissulega stað viðhorfsbreyting og vissu- lega skal lofa það sem vel er gert - en við Suðumesja- menn þurfum að forgangsraða í ríkara mæli en gert er í þágu menntunar. Ánægjuleg þróun á sér nú stað með tilkomu samninga Miðstöðvar Símenntunar á Suður- nesjum og háskólastofnana víða um land um fjamám. Þelta mun gera ungum sem öldnum í ríkara mæli kleift að stunda nám héðan og styrkir fyrirtæki og stofnanir á svæðinu. Þá hefur ráðuneyti menntamála nú veitt fé til hönnunar viðbyggingar við skólann okkar. Skipuð hef- ur verið byggingamefnd sem í sitja Kristbjöm Alberts- son formaður skólanefndar, Guðmundur Björnsson verkfræðingur og Hjálmar Ámason alþingismaður og fyrrverandi skólameistari og mun nefndin verða undir j forsæti hans. Við sem hér störfum ætlum okkur að veita nemend- um á Suðumesjum menntun á við það besta sem völ er I B *> Áætlun/Schedule Keflavík - Reykjavík Mánudaga - Föstudaga Laugardaga - Helgidaga Mondays - Fridays Saturdays - Holidays Frá/From Frá/From Frá/From Frá/From Keflavík - Reykjavík Keflavík - Reykjavík 6:45 8:15 8:30 10:30 8:30 10:30 12:30 14:30 12:30 14:30 § 15:30 17:15 15:30 17:15 17:15 19:00 17:15 19:00 20:30 22:00 20:30 22:00 FAXI 43

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.