Straumar - 01.08.1927, Síða 6

Straumar - 01.08.1927, Síða 6
116 STRAUMAR til undirvitundar eða dulvitundar mannanna. Ef til vill væri betra að nota orðin „hugur“ og nsál“ í staðinn fyrir dagvitund og dulvitund, og merkir sál þá hið hugsandi og skapandi afl í oss (das denkende und organisierende Prinzip), sem liggur að baki bæði hugar og líkama. — Áþekka hugsun og fram kemur hjá J. Arthur Hill, heíi eg látið í ljós með þessum vísuorðum: Handan við æstan endanleikans straum eilífðin brosir — sem við ljúfan draum. Jakob Jóh. Smári. „Trúin á Jesúm Krist, gnðsson, í Kýja testamentinuu. Sunnudagskvöldið 26. júni flutti prófessor Haraldur Níelsson erindi i Frikirkjunni, er hann nefndi „ Trúin á Jesúm Krist, guðsson, í Nýja testamentinu“. Kirkjan var troðfull; komust færri inn en vildu. Hann kvað oss jafnan verða að leitu til Nýja testa- mentisins, er vér vildum glöggva oss á einhverju atriði kristinnar trúar. En vér mættum ekki gleyma að N. tm. væri ekki eitt heildarrit, heldur samsafn af mörgum rit- um, eftir ólíka höfunda. Væri ekkert óeðlilegt, að þeim bæri ekki saman í skilningi á öllum atriðum. Allir mundu þeir fúsir hafa gert þessi orð að játning sinni: „Eg trúi á Jesú Krist, guðssonu. En báðar hugmyndirnar, Kristur og guðs-sonur, hefðu áður verið til í gyðingdómnum og báð- ar verið heiti á hinum fyrirheitna Messíasi. Lýsti hann fyrst, hvern skilning menn hefðu lagt í þessi heiti fyrir daga Krists, og því næst gerði hann grein fyrir, hvernig þau hefðu færst yfir á Jesúm frá Nazaret, er hann kom fram og menn tóku að trúa því, að hann væri hinn fyrir- heitni leiðtogi eða Messías, hinn útvaldi Guðs. En N. tm.

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.