Straumar - 01.08.1927, Síða 11
STRAUMAR
121
eins og allur sannleikur, hefir nú gagnsýrt þjóðina svo,
að þeir eru færri, sem ekki beita óheilindum, ef vænlegra
þykir til sigurs.
En þó tekur út yfir, þegar loðmæli, óheilindi, rag-
menska, óheiðarleiki, fals og alþýðudekur, (eða er það bara
einföld heimska?) kemur jafn berlega í ljós á sjálfri presta-
stefnu íslands, Synodus, og nú varð í vor 1927.
Eg segi þetta ekki, af löngun til að mannskemma
neinn, en eg sé ekki, að slíkt megi vera óátalið og skal
leitast við að finna orðum mínum stað.
Eins og menn muna hafa nokkrar deilur orðið hér í
vetur um faðerni Krists. Á annan í Hvítasunnu var svo
haldinn safnaðarfundur í Dómkirkjunni í Reykjavík. Þar
flutti oddviti 8Óknarnefndar (S. Á. Glslason) „erindi, er hann
nefndi „Hvað virðist yður um Kristu. Gat hann þarmeðal
annars um ýmsa fyrirlestra, blaðagreinar og bækur, sem
flutt hafa að undanförnu meiri og minni árásir á trúar-
sannindi kristninnar og þótti skörin vera kominn upp í
bekkinn, er prestar og prestaefni færu að telja safnaðar-
fólki trú um að Jesús Kristur hefði ekki verið rétt
feðraður!
Að loknu erindi flutti hann þessa tillögu er gerð hafði
verið í samráði við sóknarnefndina: „Safnaðarfundurinn
lýsir hrygð sinni yfir þeim árásum er gerðar hafa verið
undanfarið á ýms meginatriði kristindómsins, og leyfir
sér að skora á prestastefnuna að taka ,þær til alvarlegrar
meðferðaru.
Viðaukatillaga kom frá Sigmundi Sveiiissyni og Jóni
Sigurðsyni, fulltrúa borgarstjóra: „Safnaðarfundurinn fel-
ur prestum safnaðarins að flytja þetta mál á prestastefn-
unniu. (Eftir frásögu S. Á. Gíslasonar í „Vísiu 8. júní
1927). Tillögurnar voru báðar samþyktar.
Þessa tillögu flytur svo Bjarni Jónsson dómkirkju-
prestur á prestastefnunni, auðvitað til þess að hún tæki
þær „til alvarlegrar meðferðaru. Þá talaði Árni prófastur
Björnsson i Görðum og flutti tillögu um málið, „i samráði
við ýmsa viðstadda prestau, (segir „Bjarmiu bls. 164 þ. á.)
og var fyrri hluti þeirrar tillögu, minnir mig, á þ i leið,