Straumar - 01.12.1928, Qupperneq 3
STBAUMAR
MÁNAÐABRIT UM KRISTINDÚM OG TRÚMÁL
2. ái'í
Reykjavlk, í desember 1928
12. tbl.
Hann kom þegar alt var orðið hljótt
Hann kom, þegar alt var orðið hljótt,
en úti var þögul vetrarnótt.
eg fann það svo undur skýrt og skjótt,
eg skelfdist og gladdist í einu.
Eg leit upp, en alt var orðið breytt,
mér ógnaði’ ei framar myrkur neitt,
en alt virtist ljómandi litum skreytt
frá ljóshaíi blikandi hreinu.
Og röddin bans hvíslaði hljótt og blítt,
sem hljómandi sönglag uncðsþýtt:
— Fagnaðarerindi flyt eg nýtt:
minn frið vil eg heiminum bjóða.
Eg kem til þeirra, er þreyttir þjást,
til þeirra, er veraldargengið brást;
hjarta mitt titrar af einskærri ást
til allra veraldarþjóða, —
Og úti var nú sem áður hljótt,
en inni í sál mér var Jólanótt,
því alt, sem er dimt og ilt og ljótt,
er orðið að vondum draumi,
því konungur ljóssins kominn er
og kertið frá jötunni stendur hér,
það ljómar og skín og birtu ber
að brúnni á Iieljarstraumi.
ittHrgrrót, Jónsdóttlr.