Straumar - 01.12.1928, Side 15
STRAUMAR
189
Streymandi magn um lífsins leynda þræði,
leitar frá blómsins rót að hjartans djúpi,
huldustu vegi helgra sifjabanda.
Himininn nálgast, fallast ljúft í faðma
fjarlægust öfl, er sálir okkar geyma.
Hugurinn kyrrist, hjartað einkis leitar;
hér finn eg guð og skil, að alt er heima.
Axel Oudmuudsbon.
Merk bók.
Páll postuli
og: fruiukristuiu um dng-n haus.
Eftir Magnús Jónsson prófessor
i guðfræði. — Reykjavík 1928-
Þessi merka bók er nýlega komin á bókamarkaðinn.
Segir hún frá einhverri ástsælustu trúarhetju kristninnar,
heiðingjatrúboðanum mikla, Páli postula. Um hann hefir
verið ritað mikið á erlendum tungumálum, en hér birtist
fyrsta skifti heilsteypt rit um Pál á íslenzkri tungu. Það,
sem áður heflr verið ritað um hann á vorri tungu, er
fremur lítið og alt í molum. Bókin er fyrst og fremst
v í s i n d a r i t. Höfundurinn byggir á þeirn meginsannind-
um, sem erlendir vísindamenn hafa komizt að fyrir ná-
kvæmar rannsóknir þeirra staða og vega, er Páll ferðað-
ist um, ásamt Bögu og siðum þeirra þjóða, sem hann heim-
sótti og lifði og starfaði með. Þá er og stuðst við rann-
sóknir fornra skjala og rita, sem varða sögu hans, auk
aðalheimildarinnar, Po9tulasögunnar og bréfa Páls í Nýja
testamentinu. — Um engan af mönnum frumkristninnar
vitum vér svo mikið, að unt sé að skrifa sögu hans, nema
Pál postula. Hann gnæflr einn upp úr hafl tímans svo