Straumar - 01.12.1928, Síða 16

Straumar - 01.12.1928, Síða 16
l'to S T R A U M A K skýr, að lýsa má manninum sjálfum og starfi hans all- nákvæmlega. Áður en tekið er að skýra frá Páii sjálfum, er i stór- um og ákveðnum dráttum sögð saga Síðgyðingdómsins og frumsafnaðarins um það leyti, sem Páll kemur fram á sjónarsvið sögunnar. Er það uauðsynlegt til skilnings á Páli sjálfum, því að altaf mótast mennirnir, starfssvið þeirra og starfshættir af umhverfinu. Páll postuli er eng- in undantekning í þeim efnum, Þá kemur kafii um æsku Páls og uppvaxtarár, mjög fróðlegur. Þar næst segir frá afturhvarfi Páls hjá Damaskus* og skoðunum hans á meginatriðum kristindómsins. (syndinni, holdinu, endurlausninni, lögmálinu, trúnni, verkunum og kristssambandinu). Er kafli þessi mjög skýr. Síðan er rak- ið kristniboðsstarf Pals meðal heiðingjanna og árangur þess. Ferðasögur Páls eru sagðar svo vel, að ánægja er að lesa þær. Það er sem vér sjáum þostulann sjálfan fyr- ir augum voium, þennan tilfinningaríka og viljasterka mann, trúarhetjuna áköfu og hinn auðmjúka drottins þjón. Hann hafnar öllu því, sem jafnan er talið dýrmætast hér í heimi, fyrir málet'ni Krists; leggur á sig erfiði og hætt- ur, gengur móti pyntingum og fjötrum — oft sjúkur — djarfur og ákveðinn, frjáls og glaður. Dauðinn var honum ávinningur og fagnaðarefni. Ekkert afl var svo máttugt í þessum heimi, að það gæti hrakið trúarhetjuna hársbreidd af þessum vegi, og þó gat hann eigi valið sér nokkurt tignara heiti heldur en „þræll Jesú Krist*“. öll þessi margþætta skapgerð nýtur sín ágætlega hjá höfundi. En þó ber ef til vill af um síðustu kafla bókar- innar, er hann lýsir Páli sem manni, líkamsvexti hans, heilsufari og lyndiseinkun; trúarhetjunni, siðameistaranum, og rithöfundinum. — Bókin endar á samanburði á kenn- ingu Jesú og kenningu Páls. Þegar höf. heflr í stuttu máli lýst prédikun Jesú, segir svo: „Ef vér víkjum svo að guðfræði Páls, sem nokkuð hefir verið lýst hér að framan, þá hljóta allir að sjá, að * Birtist sá kafli i „Straumum“, I. Arg. 2. tb).

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.