Straumar - 01.12.1928, Síða 18
192
STRAUMAR
vísindarit fullkomlega við alþýðuhæfi, en það hefir próf.
M. J. tekist. Bókin er alþýðlegt vísindarit. Fyrir
því getur hver sæmilega greindur maður haft hennar full
not. Og það er ósk mín, að hún mætti komast inn á sem
flest islenzk heimili. Hún fjallar um eitt af hugðarefnum
allra kristinna manna, og veitir rækilega þekkingu á sögu
frumkristninnar, einu af merkustu tímabilunum í sögu
mannkynsins, og stórvirkasta og athafnaríkasta manni
þess tímabils, postulanum Páli.
Prestar og guðfræðingar munu að vonum fagna bók-
inni sem góðurn gesti.
Bókin er vönduð að frágangi. Aftan við hana er upp-
dráttur, sem sýnir starfssvið og kristniboðsferðir Páls, en
framan við hana er mynd, sem varðveizt hefir á gömlum
bronsiskildi, og á hún að vera af postulunum Páli og Pétri.
Kr. F. Stefilnsson.
Biblmrannsóknir.
---- • Fraroh.
L ú k asar gu ð sp j all er efnisríkast samstofna guð-
spjallanna. Sérefni þess er mest og margar fegurstu frá-
sagnir guðspjallanna eru í því. Það er ritað til þess að skrifa
vandaða frásögn af Kristi, bygða á nákvæmum rannsókn-
um höfundar. Auk þess hefir höf. þann tilgang að sýna
fram á, að fagnaðarerindið sé ekki bundið við neina eina
þjóð, Gyðingana, heldur sé því ætlað að ná til allra þjóða.
Sýnir hann fram á, að fagnaðarerindinu hafi frá upphafi
verið vel tekið af heiðingjum. Af þessu sést, að ritið er
ætlað guðhræddum heiðnum mönnum, enda er það í upp-
hafinu tileinkað einhverjum „göfugum Þeofílusi“, en auk
þess ætlað til uppbyggingar heiðin kristnum söfnuðum.
Eins og áður er vikið að, er Lúk. samið upp úr Mark.,
Ræðuheimildinni, og einni eða fleiri heimildum öðrum.