Straumar - 01.12.1928, Side 20
194
STRAUMAR
annað er uppi á teningnum i Jóh. guðspj. Þar talar Jesú
um sjálfan sig við hvert tækifæri og segir berlega frá
því, að hann sé Messías. Kraftaverkin gerir hann fil að
sanna Messías-tign sína, og hyltist til að gera þau sem
stórkostlegust, (t. d. uppvakning Lazarusar). Kristmynd
Jóh.. guðspj. er því mjög svo ólík Kristmynd hinna guð-
spjallanna, og geta þær ekki samrýmst.
Alt bendir þetta til þess, að höf. er ekki að segja
sögur úr lífi Krists, heldur að ljrsa honum, hver hann var,
eftir þeim skoðunum, sem hann hafði um hann, en leggur
Kristi sjálfum lýsinguna í munn, en hér er ekki rúm til
að fara frekar út í Kristfræði Jóh.
Höf. Jóh. guðspj. hefir þekt samstofna guðspjöllin því
að á nokkrum stöðutn tekur hann sögur næstum orðréttar,
upp úr þeirn. En annars ber Jóh. guðspj. ekki saman við
þau í ýmsum verulegum sögulegum atriðum. T. d. skýrir
þar svo frá, að Jesú hafi hafið starfsemi sína í Júdeu og
starfað þar samtímis Jóhannesi skírara alllanga hríð. I
Júdeu kallar Jesú fyrstu lærisveinana til fylgdar við sig,
og þeir vita strax, að hann er Messías. En þetta er í beinni
mótsögn við hin guðspjöllin (sbr. Mark. 1.). En það mun
þó flestra álit, að í þeim efnum séu þau áreiðanlegri lieim-
ildir. — Guðfræði Jóh. er runnin að sumu leyti frá guð-
fræði Páls, en margt er þar þó úr heiðinni heintspeki,
sem kristnir menn reyndu snennna að bræða saman við
hina kristnu kenningu.
Af þessu sést, að Jóh.guðspjall hlýtur að vera ritað
nokkuð seint, eða eftir að samstofna guðspjöllin voru rit-
uð, — og guðfræði Páls var orðin ríkjandi. Er talið að það
muni ritað um aldamótin 100 eða laust eftir þau. Nánar
verður ekki kveðið á um það.
Höfundur Jóhannesarguðspjalls hefir Jóliannes postuli
Zebedeusson verið talinn. Ekkert stendur þó um það skýr-
um stöfum í guðspjallinu. En þeirrar skoðunar verður
fyrst vart laust fyrir 200 e. Kr. og hélzt hún siðan fram
á síðu8tu öld. Þá fóru menn að efast um, að svo gæti
verið, og má nú telja það eins sannað mál og hægt er
um slíkt efni, að Jóhannes postuli hafi ekki samið ritið,