Austurstræti - 27.07.1938, Blaðsíða 16
AUSTURSTRÆTI
Al þýð u kveðskapu r.
Vestfirskur hagyrðingur kveð-
ur, einn hryssingslegan þorra-
dag:
Fýkur mjöll um freðin völl
frosið brakar vatnaþak.
Nakin fjöllin næðir öll
níst við klakans heljartak.
★
í öðru hefti ,,Austurstrætis“
birtust nokkrar vísur eftir
hagyrðing er nefnir sig Loka.
— Hér kemur ein til viðbótar.
Segir Loki hana orta eina and-
vökunótt í skammdegi fyrir
mörgum árum.
Svífur svæðið yfir
svefn, — að augum stefnir.
Drauma sæta dreymir
drótt um myrka nóttu.
Blunda fögur, — bundin, —
blóm — í klakadróma.
Hvíslast héluhríslur
hnugnar um kaldan glugga.
★
hverja stranga uppeldisstofnun,
klæða þær í striga og nota á
] ær vöndinn, eins og í gamla
daga.
Gömul kona.
Eftirfarandi staka var einn-
ig ort í skammdegi norðanlands
af ónefndum höfundi:
Yfir hæð og daladrög,
dimmir hræðilega.
Raula ég kvæða raunalög
rökkrið fæðir trega.
★
Þegar Seyðisfjörður var raf-
lýstur, þóttu það vitanlega tíð-
indi mikil. Þá orti Karl heit-
inn Jónasson, spítalahaldari:
Nú er orðið alt um kring
uppljómað með raflýsing.
Hvergi skot sem skuggi er í —
Skyldi fólkið una því.
★
,,Austurstræti“ vill fara þess
á leit við hina mörgu reykvísku
hagyrðinga, að þeir sendi rit-
inu stökur sínar til birtingar.
Svo margir eru þeir, að úr
miklu ætti að vera að velja.
Mun verða reynt að birta dá-
lítið sýnishorn af Reykvískum
alþýðukveðskap í næstu heft-
um. Jafníramt heitir ritið 5
króna verðlaunum fyrir þá
stöku um ,,Austurstræti“, sem
útgef. líkar best. — Geta þeir,
80