Sjómaðurinn - 01.03.1939, Síða 36
28
S JÓMAÐURINN
Dan Anderson :
Jónsi matrós.
Hó og hæ! Jónsi matrós, byrinn blæs til ferðar þinnar,
nú er burtu hinnsta nóttin og í dag fer Tryggvi á sæ.
Hafirðu angrazt nóg með Fríðu þinni og mömmu kysst á kinnar
og svo keyrt í þig snapsinn, þá syng hó og hæ.
Hó og hæ! Jónsi matrós, ert þú hræddur um að Fríða,
að hún, hnjákan litla, bíði ekki og tryggðin fari á glæ?
Þó sem stjarna á morgunhimni titri hjartað víst af kvíða,
skaltu hrista af þér slenið og syng hó og hæ.
Hó og hæ! Jónsi matrós, kannski öll þín örlög ráða
ekki ástir kvenna, en hákarla í bláum perlusæ.
Kannski dauðinn bak við kóralrif þig hrifsi í hramminn bráða;
þetta er hrotti en ærlegt skinn og syng hó og hæ!
Kannski situr þú á rausnargarði í elli í Alabama,
meðan árin sálda rólega yfir hár og vanga snæ.
Kannski gleymist alveg Fríða þín hjá glyðru í Jokohama,
það er guðlaust en mannlegt og syng hó og hæ!
MAGNÚS ÁSGEIRSSON
íslenzkaði.