Sjómaðurinn - 01.06.1940, Page 14

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Page 14
SJÓMAÐURÍNN 8 létt akkeri, máluð upp öll flögg ofan dekks, málað stórum stöfum „lsland“ á þilfarið. Farið var af stað áður en þetta alt var komið í kring. Enginn skyldi segja um skipstjóra okkar, að hann lægi, þegar önnur skip sigldu. Ekki skyldi okkur heldur haldið hér i 10 daga eins og i Met- hill á suðurleið. Ekki höfðum við langt farið, þeg- ar við sáum hvar skip Sameinaða félagsins lá, og hafði það verið stöðvað af eftirlitsskipi, sem nú „heisti stoppflaggið“ okkur til viðvörunar. Var nú vélin slöðvuð sem snöggvast, en síðan var aftur sett á fulla ferð og slagur látinn standa, þó við værum einir okkar liðs. Skifti þá eftirlitsskipið sér ekki meira af okkur. Skyldi þar með okkur og danskinum. Var nú „siglt með dauðann í kjölfarinu", eins og Bretinn kallar siglingu utan herskipafylgdar við austurströnd Englands Alt gekk eins vel og hægt var. Þokuslæða var yfir og hægur vindur. Á mánudagsmorgun um 6 leytið voru m,enn vaktir allhvatlega með því að fara að hátunum. Sáu menn þá einhverja 2 svarta depla, sem sýndust mjög líkir kafhátsturnum, koma í áttina lil okk- ar með mildum liraða. Þegar nær kom, sást að þetta voru svonefndir „keisarar“, sem eru mjög litlir járnbátar, hafðir til að leila uppi kafbáta. Fóru þeir framhjá okkur með um 40 mílna ferð og ógurlegum hávaða. Langt til að sjá var þetla eins og kafbátsturn, sem sjórinn hvítfyssaði um. Allur er varinn góður, og var sjálfsagt að vekja menn, því ekki hefði þurft að spyrja að mót- tökunum, ef þetta liefðu verið þýskir kafbátar. Fóru menn nú að fá sér í nefið og hressa upp á sálina með kaffisopa, glaðir yfir að liafa i þetta skifti losnað við að fara í björgunarbátana. Var nú siglt áfram án viðkomu. Undanfarið höfðu kaf- bátar gert mikið að því að sökkva skipum i Mar- íufirði og helst á nóttunni. Af þeirri ástæðu ákvað skipstjórinn að fara i björtu yfir fjörðinn og sigldi því með hálfri ferð alt kvöldið til kl. 4 á þriðjudagsmorgun. Var þá siglt út frá Rattary- head um 70 milur og síðan vestur í Pentlands- fjörð. Um morguninn var komin talsverður vind- ur af suðri og kvika. Hefði ábyggilega orðið ó- þægilegt fyrir kafbát að athafna sig í þvi veðri, þó það væri ágætis ferðaveður. Skygni var mjög slæmt, en ekki var um annað að gera en að kom- ast vestur úr, sem allra fyrst, nota meðstraum og birtu. Lét því skipstjórinn „slag standa“. Um morguninn í birtingu sigldum við i gegn- um mikið rekald úr skipi. Voru þar á meðal bát- ur fullur af sjó, með engu sjáanlegu í, partur af brúklæðningu, stýrishús, hurðir og skápar og margt fleira. Var þetta hálf óliuggulegt, þvi mað- ur vissi livað liafði fylgt fjölunum. Af því, hvað þetta var þétt saman, var sjáanlegt, að skipið var nýsokkið. Ó-já, svona gengur það. Kl. 1% komum við að Pentli og liöfðum með- straum um hann. Kl. 4 e. m. vorum við komnir út á Atlantshaf. Höfðum við þá að baki okkar loftárásarhættu og að mestu tundurduflahættu, þó rekdufl séu orðin um allan sjó. Framundan var nú kafbálahættan. Vorum við nú svo lieppnir, að við fengum þokusúld, svo lít- ið sást, enda urðum við nú einskis varir. Á mið- vikudaginn fórum við yfir Færeyjabanka i góðu veðri. Á föstudagsnótt fórum við að eiga von á landsýn, og kl. um 4% sást Portlandsviti beinl framundan, var þá beigt vestur með landi um kl. 8y2 sáust Vestmannaeyjar; var það fögur sjón, er þær komu út úr þokuþykninu. Mátti segja, að um mann færi einhver notaleg friðsæld. Alt var svo vinalegt og ólíkt því, sem á undan var geng- ið, að manni fanst eins og hér væri maður orðinn öruggur um sjálfan sig. — Öruggur! Margir munu brosa. En það gera þeir einir, sem ekki vita hvað það er að sigla á reglulegu ófriðar-hættusvæði. 1 veislu einni, er haldin var í Chicago-horg, lét einn geslanna mjög ótvírætt í ljós við konu þá er sat við hliðina á honum, hve lítið álit hann liefði á Róbert Hutchins, forstöðumanni háskólans þar í borginni. En af því honurn fanst konan vera á öðru máli, þá kom liann með nýjar ásakanir á forstöðumann háskólans. — Loks sagði konan: „Þér vitið víst ekki hver eg er?“ Maðurinn játti því, að hann hefði ekki tekið eftir nafninu, þegar þau voru kynt. „Eg er frú Hutchins, kona manns- ins, sem þér hafið verið að tala um“. Maðurinn varð hljóður við, en sagði svo: „En þér vitið vísl ekki hver eg er?“ Þegar konan svaraði, að hún vissi það ekki, sagði maðurinn: „Guð sé lof“, stóð upp, hneigði sig fyrir konunni og gekk á braut. Enski rithöfundurinn Charles Lamb var eitt sinn að lialda ræðu og fussaði þá einn af áheyr- endunum. Lamh þagnaði þá sem snöggvast og sagði síðan: „Það eru þrenskonar verur sem livæsa: gæsir, slöngur og fifl. Gefið yður i ljós, svo við sjáum hver tegundin það er, sem hér hvæsir“.

x

Sjómaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.