Sjómaðurinn - 01.06.1940, Síða 23

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Síða 23
SJÓMAÐURINN 17 liimnariki, heldur en um morguninn, þegar við vorum niðri í Durban. Þar var staðið við um stund upp á hæð og horft niður i dalina. Var okk- ur hent á marga sögulega staði frá Búastríðinu og öðrum tímum. Man eg einkum eftir Fairydene- dalnum,, þar sem ein úrslitaorustan var háð og dalnum, sem kendur er við Gencral Botha. — Skömmu síðar var svo numið staðar á hóteli, sem kallað er „Hill-Crest“ eða „Fjállsbrún“, sem er siðasli veitingastaður, áður en komið er í hústaði frumstæðra negraflokka. Um leið og við fengum okkur hressingu þarna var heðið um miðdegis- verð fvrir hópinn, þegar komið yrði í hakaleið og eftir 20 mínútna dvöl var lialdið áfram. En nú tók við nokkuð öðruvísi land. Fyrst af fórum við á milli maísakra og illa ræktaðrá skóga eða lágra frumskóga. En einnig þeim gróðri lauk með því að við vorum stödd á fjallsbrún og horfðum niður í sendinn dal, sem var einkennilegur og athyglisverður, fyrir live margar liæðir og hóla gaf að líta út vfir alt. Þetta var líka .,1000 liæða dalurinn“ eða eins og hann er kallaður þarna „Tlie Valley of Thousand Hills“. í þessum dal hjuggu um 30.000 Zulunegrar. Ilafa fæstir þeirra haft nokkur önnur kynni af hvítum niönnuin, en ferðamönnuin, sem korna að lieim- sækja þá. Iíkt og við gerðum nú. Sérstakt leyfi yfirvalda þarf til ]iess að fara inn i þennan dal. Hvorttveggja er, að mikið er þarna af villidýrum, sem ekki má skjóta né veiða nema á vissum árs- tíma, og þá gegn gjaldi, líkt og við hér heima borgum fyrir veiðirétt í ám, og einnig til þess að veita fólkinu, sem þarna hýr, sem minstan á- troðning. Leiðin niður í dalinn er mjög brött og krók- ótt, sumstaðar meira en nokkurstaðar i „Kömb- um“. Tvær fullorðnar konur voru með í hílnum. Voru þær auðsjáanlega mjög hjartveikar, því þær tóku til að hljóða og biðja alla góða vætti að koma sér til hjálpar, því þetta ferðalag væri hrvllilegt. Rn ónærgætni bílstjórans fór alveg með þær veiku taugar, sem eftir voru, þegar hann sagði við þær: „Ef ])ið eruð hræddar, þá bara lokið Sugunum, eins og eg geri.“ Þegar niður i liliðina kom, flyktust að liilunum iiópar negrabarna, sem flest voru allsnakin. Hlupu þau meðfram hílunum, réttu iit hendurnar og æplu: „penny“. Eflaust hefir það verið það eina, seni þau kunnu að segja á okkar máli. Kynnir- niu varaði okkur við því að henda peningum til þeirra, og sagði að ef við vildum gefa fólkinu eitt- J'vað, þá hefðu þeir sjóð, sem, úr væri skift, eins jafnt og hægt væri, á meðal fólksins. Börnin fóru nú að verða til hinna mestu óþæginda og var oft mesta mildi, að ekki varð slys af, þegar þau hentu sér á aurbrettin, til þess að fá fría ferð spotta- korn í senn. Ekki var laust við, að ungu stúlk- urnar i hílnum færu hjá sér, þegar hálfstálpaðir strákar, með ósómann allan út i loftið, hlupu fram með. Var það nokkuð áberandi, live oft þær þurftu að leita einhvers á gólfinu. — Nú vorum við komin inn á milli bygginga þeirra, sem kallaðar eru „Kraal“. En för okkar var heitið til höfðingj- ans vfir dalnum, og var ekki staðnæmst fyr en þangað kom. „Kraal“ er eins og bóndabær hjá okkur. Þar býr ein fjölskylda í hverju, en peningsliús vant- ar; þeirra þarf ekki með. Stærð „Kraals“ fer vit- anlega eftir því, hve stór fjölskvldan er. Þetta „Kraal“ liöfðingjans, sem við skoðuðum, hefir eflaust verið það stærsta í þessum dal, því varla getur maður látið sér detta í hug, að margir menn hafi efni á að eiga 9 konur og með þeim 34 börn, eins og raunin var með þennan karl. Þegar okkur har að garði, stóð hann sjálfur i hliðinu og bauð okkur velkomin. Skarplegur karl en frekar grannvaxinn samanhorið við marga aðra, sem eg sá þarna. Þeir, sem liafa síðasla hlað Sjómannsins, geta séð liann, þar sem hann slendur við hliðina á mcv og eg lield á einum syni hans. Áður en gengið var inn í „Ivraalið“ var stað- næmst við grafreiti forfeðra hans, þar sem liann baðst velvirðingar þeirra á því, að hann tæki ó-

x

Sjómaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.